Flýtileiðir um vef
Kynning á námi í VA fyrir foreldra nýnema. 06.09.2010

Á morgun þriðjudaginn 7. september verður kynningakvöld fyrir foreldra nýnema haustannar, fædd 1994.

Á þessari kynningu verða stjórnendur, námsráðgjafi, umsjónakennarar og forvarnarfulltrúi. Þá verður einnig kosning tveggja fulltrúa í stjórn foreldrafélags VA úr röðum forráðamanna nýnema. Allir forráðamenn nemenda undir 18 ára aldri eru sjálfkrafa meðlimir í foreldrafélagi skólans.

Nánar
Gönguferð nemenda og kennara. 05.09.2010

Næstkomandi þriðjudag, þann 7. september verður árleg gönguferð nemenda og kennara VA. Að þessu sinni verður gengið frá Oddskarði niður Seldal og að reiðskemmu Blæs í Fannadal. Þar verður göngugörpum boðið upp á grillaðar pylsur. Þetta er skylduganga allra nemenda og mikilvægt að þeir mæti í góðum göngufötum og gönguskóm. Lagt verður af stað frá skólanum um kl. 10.30. Tveir fyrstu tímar þriðjudags verða kenndir samkvæmt stundarskrá.

Nánar
Busun 2010 03.09.2010
IMG_4486.jpg

Ídag fór fram busun við VA. Myndir má sjá hér.

Nánar
Fjölbreyttir kennsluhættir. 02.09.2010

Kennsla í VA er fjölbreytt og í þessari fádæma blíðu sem nú ríkir hafa kennarar verið duglegir að fara út úr skólahúsinu með nemendur og leggja fyrir þau útiverkefni. Á morgun er hefðbundin kennsla til 12.00 en eftir það hefst busun nýnema. Hún mun fara fram á bæjarbryggjunni fyrir neðan Egilsbúð. Nýnemar eru hvattir til að mæta með þann búnað sem þegar hefur verið kynntur fyrir þeim í lífsleiknitímum. Rútan fer á venjulegum tíma á föstudegi, kl. 15.00 frá bílastæðinu neðan við Egilsbúð. Góða skemmtun.

Nánar
Busavika í VA 30.08.2010

Í annari kennsluviku haustannar eru nemendur að undirbúa busadaginn sem verður nk. föstudag. Glens og grín einkennir samskipti yngri og eldri nemenda. Það er þó mikilvægt að allt grín sé innan siðgæðismarka. Þeir nemendur sem treysta sér ekki til að taka þátt í uppákomum vikunnar þurfa að gefa sig fram við umsjónakennara. Það er mikilvægt að muna að "aðgát skal höfð í nærveru sálar".

Nánar
Viðburðadagatal
< September 2010 >
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    
Hluti af viðmóti vefs

Símanúmer og aðrar upplýsingar | Aftur í flýtileiðir