Notendanafn og lykilorð að INNU, kennsluvef og tölvukerfi skólans
Nemendur geta fengið ný lykilorð með því að fara inn á www.inna.is/Nemendur og velja þar " gleymt lykilorð" og fá þá sent nýtt lykilorð á netfangið sem er skráð í innu fyrir viðkomandi nemanda. Þetta lykilorð gildir í tölvur skólans, kennsluvef og Innu.
Aðgangsorð að INNU.
Á heimasíðunni VA er krækja inn á Innu og einnig er hægt að fara beint inn á slóðina https://www.inna.is/Nemendur/
1. Þú smellir á tengilinn Gleymt lykilorð til hægri á innskráningarsíðu Innu.
|
|
Frummynd: 637 x 412 |
2. Slærð þar inn kennitöluna þína og velur Verkmenntaskóli Austurlands
3. Inna sendir sjálfkrafa notendanafn og lykilorð í tölvupósti á það netfang sem þú gafst upp við innritun.
4. Þetta lykilorð gildir bæði að Innu nemenda: https://www.inna.is/Nemendur/
og Kennsluvef
Ef þú vilt breytir lykilorði þínu er það gert í Innu og það lykilorð verður einnig lykilorð þitt að kennsluvef og tölvukerfi skólans við næstu uppfærslu, uppfært er á hverri nóttu.
Ef netfangið er ekki rétt skráð í Innu þá er hægt að senda póst á va@va.is með ósk um að fá netfang skráð í Innu.
Tölvupóstinn verður að senda úr því netfangi sem skrá á sem netfang þitt í Innu.
Forráðamenn nemenda geta mað sama hætti sótt aðgang að innu og fengið netfang sitt skráð í Innu.





