Flýtileiðir um vef

Hjúkrunarfræðingur VA

Í skólanum starfar hjúkrunarfæðingur sem er starfsmaður Heilsugæslu HSA í Neskaupstað.

Viðtalstímar í skólanum eru á fimmtudögum frá kl. 8:30 – 12:00.

Viðtalsherbergi hjúkrunarfræðings  er í viðtalsherbergi kennara sem er á pallinum  milli 1. og 2. hæðar.

Skólahjúkrunarfræðingur veitir ráðgjöf og svarar spurningum um ýmis heilsufarsleg vandamál t.d.:

  • Meiðsli og sjúkdóma
  • Áfengis- og eiturlyfjaneyslu
  • Reykingar
  • Getnaðarvarnir, kynlíf, kynsjúkdóma og þungun
  • Mataræði og líkamsþyngd
  • Verki og vanlíðan
  • Tilfinningaleg og geðræn vandamál

Hjúkrunarfræðingur er bundinn þagnarskyldu.

Nemendur geta komið við eða sent fyrirspurnir á rafpósti á skolahjukrun@va.is. Fyrirspurnir mega
vera nafnlausar.

Auk viðtalstíma fyrir nemendur mun skólahjúkrunarfræðingur

  • vera í samstarfi við forvarnarfulltrúa skólans við vinna að forvörnum
  • sjá um eftirfylgni nemenda sem eiga við veikindi eða önnur vandamál að stríða
  • finna meðferðarúrræði fyrir nemendur sem á því þurfa að halda.

Lilja Ester Ágústsdóttir hjúkrunarfræðingur

skolahjukrun@va.is

Sími 477-1620

Viðburðadagatal
< September 2010 >
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    
Hluti af viðmóti vefs

Símanúmer og aðrar upplýsingar | Aftur í flýtileiðir