Flýtileiðir um vef
30.08.2010
Busavika í VA

Í annari kennsluviku haustannar eru nemendur að undirbúa busadaginn sem verður nk. föstudag. Glens og grín einkennir samskipti yngri og eldri nemenda. Það er þó mikilvægt að allt grín sé innan siðgæðismarka. Þeir nemendur sem treysta sér ekki til að taka þátt í uppákomum vikunnar þurfa að gefa sig fram við umsjónakennara. Það er mikilvægt að muna að "aðgát skal höfð í nærveru sálar".

Lesa meira...
26.08.2010
Skólinn kominn vel í gang

Nú ættu allir nemendur að vera komnir með bækur og farnir að rata um skólahúsnæðið. Það er mikilvægt að nemendur mæti í skólann í þá tíma sem þeir eru skráðir í. Einnig er mikilvægt að foreldrar fylgist vel með mætingu ungmenna sinna.

Að gefnu tilefni vil ég benda foreldrum á að VA hefur engin afskipti af dansleiknum sem Menntaskólinn á Egilsstöðum stendur fyrir á morgun, föstudag. Nemendur úr VA fara á eigin vegum.

Lesa meira...
23.08.2010
Rútuferðir fyrir dagskólanemendur.

Skólaakstur verður með svipuðu sniði og sl. vetur nema að nú mun Tanni travel sjá um aksturinn.

Fyrsta ferð verður frá Olís á Reyðarfirði kl. 07.35, frá Shell á Eskifirði kl. 07.50 þriðjudaginn 24. ágúst.  Áætluð koma að skólanum er kl. 08.20.

Brottför verður frá VA kl. 15.30 þriðjudaginn 24. sept. Aðra daga er brottför frá VA kl. 16.25.

Tekið verður á móti pöntun á rútukorti hjá ritara í fyrstu kennsluviku, 24 - 27. ágúst. Mikilvægt er að nemendur gangi frá kortapöntun sem fyrst.

Lesa meira...
19.08.2010
Upphaf kennslu á sjúkraliðabraut og leik- og grunnskólabraut

Kennsla á þessum brautum hefst í viku 36 eða eftir 6. september.

Nánari upplýsingar verða sendar í tölvupósti og settar á heimasíðuna í næstu viku.

Lesa meira...
17.08.2010
Viðgerðir á skólahúsnæðinu

Miklar viðhalds framkvæmdir eiga sér stað við skólann um þessar mundir. Verið er að skipta um þak, mála og ditta að ýmsu utanhúss. Þá er endurskipulagning í gangi innan dyra sem nemendur eiga eftir að taka eftir. Það er mikið atriði að allir gangi vel um húsnæði skólans og að verðandi nemendur tileinki sér góða umgengni. Í því skyni er nemendum bent á að hafa inniskó í skólanum til að nota yfir daginn því ekki er ætlast til að notaðir séu útiskór inni.

Lesa meira...
10.08.2010
Skiptibókamarkaður í Tónspil

Tónspil í Neskaupstað mun verða með skiptibókamarkað fyrir nemendur í framhaldsskólum nú á haustdögum.

Þeir nemendur sem eiga bækur frá fyrra námi ættu endilega að mæta með gömlu bækurnar og skipta þeim, þar er fjármunum vel varið.

Hafið samband við Tónspil í síma 477-1580 til að fá nánari upplýsingar. Bókalisti haustannar er á heimasíðu skólans.

Lesa meira...
05.08.2010
Skrifstofa VA opin.

Starfsemi VA er að komast í gang eftir sumarfrí. Unnið er við viðhald á bóknámshúsinu og við skipulangningu haustannar.

Þeir nemendur sem fengið hafa skólavist og gíróseðil heim þurfa að greiða þá sem fyrst því eftir helgi verður litið svo á að allir sem ekki hafa greitt innritunargjöldin ætli ekki að stunda nám við skólann í haust.

Skólasetning verður 23. ágúst kl. 15.00kennsla hefst 24. ágúst.

Þeir sem þurfa að fá upplýsingar eða ná sambandi við skólann hringi í síma 477-1620 alla daga fram að kennslu frá 09.00 - 16.00.

Lesa meira...
25.06.2010

Skrifstofa Verkmenntaskólans verður lokuð frá og með 28. júní til 05. ágúst.

Þeir sem þurfa að ná sambandi sendið tölvupóst á olga@va.is

Við vonum að starfsmenn, nemendur og aðrir velunnarar eigi ánægjulegt sumar.

23.06.2010
Úrvinnslu umsókna um skólavist lokið.

Í dag 23. júní voru bréf send út til nýnema sem sótt hafa um skólavist í VA. Allir fengu skólavist og er mikilvægt að þeir staðfesti hana með því að greiða skólagjöldin á tilsettum tíma. Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með 28. júní til og með 5. ágúst. Kennsla hefst þann 24. ágúst. Það er mikilvægt fyrir verðandi nemendur að fylgjast með heimasíðu skólans í ágúst því allar almennar upplýsingar verða birtar þar.

16.06.2010
Bréf send út í dag til endurinnritaðra nemenda

Í dag miðvikudag voru greiðsluseðlar sendir í pósti til endurinnritaðra nemenda VA. Það er mikilvægt að nemendur greiði innritunargjöldin á gjalddaga því annars er skólavist ekki trygg. Gerð stundartaflna byggir á þeim nemendum sem skráðir eru í nám og greiða skólagjöld.  Nýnemar fædd 1994 fá sín bréf þann 23. júní nk. Er það í samræmi við samræmdar reglur allra framhaldsskóla á landinu.

Ennþá eru nokkrir nemendur sem ekki hafa skilað lyklum af skápum eða bókum af bókasafni. Þessir nemendur munu ekki geta opnað fyrir innu til að skoða stundaskrá sína í ágúst áður en skólinn hefst.

11.06.2010
Úrvinnsla umsókna um skólavist stendur yfir.

Í dag 11. júní er síðasti dagur fyrir 10. bekkinga til að sækja um framhaldsskóla fyrir næsta skólaár.

Í framhaldinu verður unnið úr umsóknunum. Mennta - og menningarráðuneytið hefur innleitt nákvæmt dagatal um vinnslu umsókna og hvenær svör á að senda út til nemenda. Nýnemar geta vænst þeirra eftir 23. júní.  Eldri nemendur fá send bréf og gíróseðla í næstu viku, sem mikilvægt er að greiða á gjalddaga. Ellegar eiga þeir ekki vísa skólasókn í haust. Flestir nemendur sem sækja um nám í VA fá skólavist en stundum á annari námsbraut en sóst er eftir, vegna óuppfylltra skilyrða um námsárangur.

31.05.2010
Skil á bókum og lyklum

Þessa dagana er tiltekt eftir veturinn og undirbúningur fyrir næsta skólaár í gangi. Það er mikilvægt að nemendur skili gögnum sem sannarlega eru í eigu skólans svo þeir geti komið að hreinu borði í haust. EInnig er læst fyrir INNU hjá þeim sem skulda e-h til skólans eða í sjoppunni. Það mun hafa áhrif á aðgengi að stundaskrá nemenda í haust. Við viljum hvetja nemendur til að ganga frá sínum málum gagnvart VA sem allra fyrst.

26.05.2010
Brautskráning frá VA.
IMG_6165_4_JPG

Föstudaginn 21. Maí voru 39 nemendur brautskráðir frá VA.

7 stúdentar, þar af 2 með viðbótarnám til stúdentsprófs, 11 húsasmiðir, 2 vélvirkjar, 6 sjúkraliðar, 4 leiðbeinendur í leikskólum, 1 stuðningsfulltrúi í grunnskólum, 3 meistaranemar og 3 rafvirkjar en er þetta í fyrsta sinn sem skólinn útskrifar rafvirkja eftir nýrri námsskrá. Því miður gátu ekki allir verið viðstaddir athöfnina sem fram fór í kirkju – og menningarmiðstöðinni í Fjarðabyggð. Viðurkenningar voru veittar,  fyrir frábæran námsárangur sem Sigrún Inga Sigurlínusardóttir fékk ásamt viðurkenningu í íslenskur. Framfara viðurkenningu fékk Una Gunnarsdóttir, bróðir hennar Gísli Gunnarsson sem bæði var að ljúka rafvirkjun og viðbótarnámi til stúdentsprófs fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í rafvirkjun. Eyþór Halldórsson og Símon J Benediktson fengu viðurkenningar fyrir ágætan námsárangur í húsasmíði og Hallur R Hauksson fyrir frábæran námsárangur í vélvirkjun. Hann hélt ræðu fyrir hönd útskriftarnema og lagði hann áherslu á vináttuna í sínni ræðu.

Formaður skólanefndar Jón Björn Hákonarson hélt ræðu og lagði hann áherslu á mikilvægi félagslífs í framhaldsskólum og þess sem sú þátttaka skilar nemendum. Hann lagði einnig áherslu á hvað mikilvægt er fyrir Fjarðabyggð að standa vörð um Verkmenntaskólann og að íbúar þyrftu að styðja hann í verki með því að beina ungmennum sínum til náms þar. Einnig að nemendur frá VA og öðrum landsbyggðarskólum væru með sambærileg próf og nemendur frá stærri skólum en því er gjarnan haldið fram að sé ekki.

Ræðu skólameistara má finna á heimasíðunni undir ýmislegt eða að smella á þennan tengil.

20.05.2010
Sveinspróf
Picture_015.jpg

Dagana  14. – 16. maí sl. fór fram sveinspróf í  Verkmenntaskólanum.  8 nemendur þreyttu prófið sem var smíði  snúins tréstiga . af þessum átta nemendum voru 2 sem höfðu farið í gegn um raunfærnimat á vegum  Iðunnar á haustdögum og luku námi í dagskóla VA á vorönn.                                                

Nöfn þeirra sem luku sveinsprófi  talið frá vinstri:  Símon Jóhann Benediktsson, Eyþór Halldórsson, Árni Magnússon, Vilhelm Arnar Kristjánsson, Björgvin Óskarsson, Trausti Magnússon,  Jónas Bjarki Björnsson og Sveinn Daníel Sigurðsson.

Lesa meira...
19.05.2010
Brautskráning 21.maí kl. 16.00 í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði

Brautskráning verður frá Kirkju - og menningarmiðstöð Fjarðabyggðar föstudaginn 21. maí  kl. 16.00. Útskriftarefni mæti kl. 15.00. Tónlistarflutningur verður á athöfninni og Jón Björn Hákonarson formaður skólanefndar heldur ræðu ásamt fulltrúa nemenda. Brautskráðir verða 38 nemendur af hinum ýmsu brautum skólans.

Lesa meira...
19.05.2010
Prófasýning í VA, rúta í boði.

Á morgun fimmtudag verður prófasýning í VA kl. 11.30 - 13.00 þar  geta nemendur  komið og skoðað úrlausnir sínar úr prófum vorannar í viðurvist kennara. Það er mikilvægt að nemendur nýti þennan rétt sinn.

Rútan fer frá Olís á Reyðarfirði kl. 10.45. Frá Eskifirði kl. 11.00.  Brottför frá VA kl. 13.00

Einnig minnum við nemendur á að ef þeir eiga eftir að skila lyklum af skápum, bókum á bókasafn eða gera upp skuldir við sjoppuna, þarf að ganga frá því á morgun. Að öðrum kosti er ekki hægt að opna fyrir niðurstöður prófa á innu.

14.05.2010
Prófum lokið

Vorannar prófum við VA er lokið. Eingöngu eiga nokkrir nemendur eftir að ljúka sjúkraprófum á morgun,  laugardag.

Framundan er yfirferð prófa og úrvinnsla námsafkasta nemenda í lok annar. Einkunnir verða birtar á Innu - upplýsingavef framhaldsskóla nk. fimmtudag.

Mikilvægt er að nemendur sæki um nám fyrir næsta vetur sem fyrst.

Brautskráning nemenda frá skólanum verður næstkomandi föstudag, 21. maí kl. 16.00 í Kirkju - og menningarmiðstöð Fjarðabyggðar.

11.05.2010
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 18.00 - 20.00

Í dag þriðjudag verður opið hús í VA kl. 18.00 - 20.00. Þá gefst gestum tækifæri á að koma í heimsókn, skoða skólann, hitta starfsfólk og fá upplýsingar um hvaðeina sem skiptir máli fyrir nýja nemendur. Við bjóðum 10.bekkinga og aðstandendur þeirra sérstaklega velkomna.. Við vekjum sérstaka athygli gesta á verknámshúsi skólans sem er við hlið íþróttahússins en þangað er gaman að koma og kynna sér góða aðstöðu til verknáms. Verið hjartanlega velkomin í Verkmenntaskóla Austurlands.

08.05.2010
Samningur um gestahús
SDC10368.jpg

Þann 11. janúar 2010 undirrituðu Olga skólameistari f.h. VA-tréiðaðardeild og Guðbjartur Hjálmarsson f.h. Svarthamra ehf.samning um smíði 14 fermetra gesthúss. Samningurinn fól í sér að Svarthamar leggur til allt efni er þarf til verksins en nemendur 4. annar í húsasmíði við VA sjá um framkvæmdarliðin. Húsinu er skilað fullbúnu utan sem innan og þar með töldum raflögnum sem nemendur í rafdeild VA sáu um að framkvæma.

Lesa meira...
01.05.2010
Próf og rúturferðir í VA í maí 2010.

Mánudaginn 3.maí hefjast próf í VA kl. 09.00.  Rútan fer frá Reyðarfirði kl. 08.05 og frá Eskifirði 08.15.  Brottför frá VA er  kl. 11.10.Nemendur þurfa að mæta með skriffæri og þau gögn sem leyfileg eru í hvert próf. Vakin er athygli á reglum um próf á veggjum skólans. Nemendur þurfa að mæta tímanlega í próf.  Listar með nöfnum þeirra hanga í báðum anddyrum, þar eru upplýsingar um í hvaða stofu hver nemendi á að taka sitt próf. Gangi ykkur vel í prófunum.

26.04.2010
Síðasta kennsluvikan.

Síðasta kennsluvikan er runnin upp.

Nemendur eru að ljúka námsefni annarinnar og að skila verkefnum. Nú skiptir máli að nýta tímann vel og skipuleggja sig bæð við að klára það sem fyrir hefur verið lagt og einnig sem undirbúning fyrir prófin sem hefjast mánudaginn 3.maí. kl. 09.00.

21.04.2010
Framhaldsskólaball í ME síðasta vetrardag

Í kvöld, síðasta vetrardag, verður framhaldsskólaball sem ME heldur í Valaskjálf.  NIVA verður með rútu á ballið. Að öðru leiti kemur VA ekki að skipulagi þessa dansleiks, né sendir kennara með rútunni. Ölvun ógildir miðann, þannig að það er von okkar að nemendur VA verði sjálfum sér og skólanum sínum til sóma.

14.04.2010
Gerð rafrænnar ferilskrár – Europass

Gerð rafrænnar ferilskrár – Europass – fimmtudaginn 15. apríl

 

Ársæll Þorsteinsson frá Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands mun kynna gerð rafrænnar ferilskrár, Europass, næstkomandi fimmtudag 15. apríl kl. 11:55 í stofu 1. Europass er safnheiti yfir staðlaða menntunar- og starfshæfnimöppu og hentar vel þeim sem stefna á nám eða störf í Evrópu í framtíðinni. Meginmarkmið Europass er að auðvelda gegnsæi menntunar og starfsreynslu, bæði heima og að heiman. Europass er einnig ætlað að auðvelda samhæfingu prófskírteina og viðurkenninga  og þar með auðvelda samanburð menntunar og reynslu yfir landamæri í Evrópu. Europass ferilskráin hentar ungu fólki sérstaklega vel þar sem hún er fyllt úr á netinu, er eins á rúmlega 20 tungumálum og lögð er áhersla á hæfni og færni ekki einungis með formlegum prófum heldur einnig á lífsins leið. Frekari upplýsingar má sjá á www.europass.is

08.04.2010
Söngkeppni framhaldsskólanna á Akureyri

Laugardaginn 10. apríl n.k. fer Söngkeppni framhaldsskólanna fram á Akureyri. Jóhanna Fanney Hjálmarsdóttir mun keppa fyrir hönd VA. Einnig munu núverandi og fyrrverandi nemendur af háriðnbraut sjá um greiðslu keppenda í umsjá deildastjóra brautarinnar Svanlaugar Aðalsteinsdóttur.

Ekki reyndist nægur áhugi meðal nemenda skólans á að fara í rútu norður, gista og vera í umsjá skólans á meðan á keppninni stendur. Því mun skólinn ekki taka ábyrgð á þeim nemendum sem fara á eigin vegum til Akureyrar þessa helgi né senda starfsmann til eftirlits með nemendum.

05.04.2010
Skrifstofa opnar eftir páskafrí.

Þriðjudaginn 6.apríl opnar skrifstofa kl. 09.00.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 7.apríl kl. 08.30. Kennslu á vorönn lýkur þann 30.apríl. Mikilvægt er að nemendur mæti og vinni vel það sem eftir lifir annar.

26.03.2010
Páskafrí
easterchick.gif

Í dag er síðasti kennsludagur fyrir páskafrí. Kennsla hefst aftur miðvikudaginn 7. apríl.

 

Skrifstofa VA er lokuð um páskana frá 29. mars – 6. apríl 2010.

 

Gleðilega páska.

24.03.2010
Hið ljúfa líf
ljufa_lif.jpg

Í kvöld er lokasýning leikfélagsins Djúpsins á verkinu Hið ljúfa líf. Sýningin hefst kl 21:00.

22.03.2010
Hið ljúfa líf
skjáauglýsing_(2).jpg

Vegna ófærðar og veðurs er sýningunni sem átti að vera í kvöld aflýst. Næstu sýningar verða þriðjudaginn 23.mars kl. 20:00 og miðvikudaginn 24. mars kl. 21:00.

Lesa meira...
19.03.2010
Frumsýning á Ljúfa lífi á laugardag.

Þá er loks komið að því að frumsýna leikritið Ljúfa líf eftir Benóný Ægisson í leikstjórn Árna Magnússonar.

Á morgun laugardag er frumsýning í Egilsbúð kl. 21.00.  Miðaverð er 1.500.- krónur.

Önnur sýning verður mánudaginn 22. mars kl. 20.00. Lokasýning verður svo miðvikudaginn 24. mars.

Miðasala er við innganginn og einnig er hægt að panta miða í VA í síma 477-1620 virka daga.

Það hefur gengið á ýmsu á æfingaferlinu en nú er allt að smella.

Mikil eftirvænting ríkir í herbúðum leikara en margir hafa lagt hönd á plóg til að koma öllu í höfn.

Er öllum velunnurum, aðstoðarfólki og fyrirtækjum þökkuð vel unnin störf við undirbúning.

GÓÐA SKEMMTUN.

16.03.2010
Leikfélagið DJÚPIÐ æfir á fullu.

Um þessar mundir er Djúpið, leikfélag VA að leggja lokahönd á æfingar á leikritinu Ljúfa Líf eftir Beníoný Ægisson.

Þetta er söngleikur og leikur hljómsveitin Stjörnustrákar undir í verkinu. Frumsýning verður laugardaginn 20. mars í Egilsbúð.

Miðasala er í Egilsbúð klukkutíma fyrir sýningu. Einnig er hægt að panta miða í skólanum á opnunartíma skrifstofu, 08.00 - 16.00.  Miðaverð er 1.500 krónur.

08.03.2010
Útskriftarefni hitta ritara!

Væntanleg úrskriftarefni þurfa að setja sig í samband við ritara vegna útskriftarhúfu sem þarf að panta fyrir miðjan mars. Ritari er með allar upplýsingar, þannig að þið snúið ykkur til hennar hið allra fyrsta.

05.03.2010
Val fyrir næstu önn.

Valdagur var í gær og þá völdu flestir nemendur rafrænt, nám fyrir næstu önn. Þeir sem ekki gengu frá vali sínu í gær þurfa að gera það hið allra fyrsta. Vinsamlegast snúið ykkur til umsjónakennara ykkar og gangið frá valinu. Nemendur fæddir 1990 eða fyrr snúa sér til áfangastjóra.

02.03.2010
Styrkur til leikfélagsins Djúpsins.

Nýlega fékk leikfélagið Djúpið styrk frá Agli Rauða að upphæð 100.000. kr  til uppsetningar á leikritinu Ljúfa líf eftir Benóný Ægisson sem nemendur eru að æfa um þessar mundir. Fyrr í vetur fékk Djúpið styrk frá Samvinnufélagi útgerðarmanna í Neskaupstað. Stefnt er á að frumsýna síðari hluta mars. Leikstjórn er samvinnuverkefni áhugasamra kennara og nemenda.

02.03.2010
Háskólakynning í ME

Háskólakynning verður í ME í dag á milli 11.00 - 13.30. Þar gefst nemendum tækifæri til að kynna sér nám á háskólastig. Rúta verður frá VA kl. 09.45.

02.03.2010
VALDAGUR

Fimmtudaginn 4. mars kl. 13:10 velja nemendur áfanga næstu annar á fundi með umsjónakennara sínum. Mikilvægt er að nemendur kynni sér áfangaframboð og skoði námsáætlanir sínar fyrir fimmtudag. Þeir nemendur sem þurfa aðstoð geta pantað tíma hjá námsráðgjafa.

Námsframboð má skoða hér

Lesa meira...
26.02.2010
Vegna árshátíðar !

Að gefnu tilefni langar okkur að taka það skýrt fram að nemendur fæddir 1994 fá ekki inngang á árshátíð né dansleik í Egilsbúð í kvöld sem nemendur VA halda . Við hvetjum foreldra því til að senda börn sín ekki á Norðfjörð í kvöld.

25.02.2010
Árshátíð VA

Árshátíð VA verður föstudaginn 26.febrúar í Egilsbúð.  Húsið opnar kl. 19.30 og sendur dansleikur til 03.00. Kynnar og skemmtikraftar verða Auddi og Gilzenegger.  Nemendur verða með annál og hópsöngur verður í umsjá Sigfúsar Ólafs Guðmundssonar sem einnig mætir með hljómsveit sína Stjörnustrákana . Það er mikill metnaður í stjórn NIVA og aðstoðarfólki þeirra að vel takist til og þau hafa lagt mikla vinnu í undibúning.  Matseðill verður tveggja rétta. Hægt verður að láta taka mynd af sér í sínu fínasta pússi á staðnum. Að sjálfsögðu er þetta áfengislaus skemmtun. Það er von allra að allir mæti með góða skapið og skemmti sér vel í góðum félagsskap.

Lesa meira...
22.02.2010
OPNIR DAGAR

Á morgun þriðjudag 23.febrúar hefjast opnir dagar í VA. Rútan fer frá Reyðarfirði á venjulegum tíma kl. 07.35. Kennt verður fyrstu tvo tíma dagsins. Síðan tekur óhefðbundin dagskrá við til 15.00 Brottför rútunnar verður frá VA kl. 15.15. Miðvikudag og fimmtudag hefst dagskrá kl. 09.30 og brottför frá Rf verður því kl. 08.35, frá Esk kl. 08.50. Heimferð verður kl. 15.15. Það er von okkar að þessir dagar heppnist vel og að allir mæti í valda dagskrárliði.  Föstudaginn 26. febrúar verur árshátið VA. Nánar um hana síðar. Góða skemmtun.

Lesa meira...
16.02.2010
Stuðningtímar í íslensku og stærðfræði

Boðið er upp á opna stuðningstíma í íslensku og stærðfræði á vorönn. Stærðfræðitímarnir eru á föstudögum kl. 13:10-14:10 í stofu 8. Kennari er Gunnar Ólafsson. Íslenskutímarnir eru á fimmtudögum kl. 8:30-9:30. Kennari er Ingibjörg Þórðardóttir. Mikilvægt er fyrir nemendur sem standa höllum fæti í þessum fögum að nýta sér þessa aðstoð sem fyrst.

Lesa meira...
15.02.2010
Opnir dagar í VA

Í næstu vikur eru opnir dagar í VA, frá þriðjudegi til fimmtudags. Kennsla er hefðbundin á mánudegi og tveir tímar kenndir að morgni þriðjudags, eftir það hefjast opnu dagarnir. Metnaðarfull dagskrá er í smíðum og verður hún birt á næstunni. Nemendur hitta umsjónakennara sína kl. 10.30 á morgun þriðjudag til að fá nánari upplýsingar um fyrirkomulag daganna. Vikan endar síðan með árshátíð nemenda á föstudagskvöldið 26. febrúar. Auglýsingar koma síðar. Það er mikilvægt að nemendur setji sig vel inn í dagskrána og mæti með opnum huga í skólann. Rútuferðir breytast aðeins og verða þær auglýstar mánudaginn 22.febrúar.

Lesa meira...
05.02.2010
Ball í ME föstudaginn 5.febrúar 2010.

 

Í kvöld heldur ME ball sem nefnist Barkinn.

Að gefnu tilefni skal tekið fram að VA hefur enga aðkomu að þessu balli og stendur ekki fyrir ferð á ballið í nafni skólans.

Enginn starfsmaður frá skólanum fer með rútu sem nemendur hafa tekið á leigu í egin nafni.

Forráðamenn sem leyfa ungmennum sínum að fara taka ábyrgð á þeim sjálfir.

Lesa meira...
03.02.2010
Veikindi og tilkynningar þeirra.

Forráðamenn nemenda yngri en 18. ára þurfa að tilkynna veikindi inn fyrir kl. 11.00 daglega. Aðrir hringja einnig inn fyrir 11.00. Kennaraforföll eru skráð á skjáinn og á heimasíðunni er hægt að sjá veikindi kennara. Því miður ekki fyrir 08.00. Þeir sem eiga eftir að sækja rútukortin þurfa að gera það til ritara sem fyrst, þeir greiða 5000.-kr við afhendingu. Síðan verður hluti af jöfnunarstyrknum tekinn í ferðakostnað og greiddur beint til skólans. Umsóknarfrestur v jöfnunarstyrks er 15.febrúar.

Lesa meira...
26.01.2010
Jöfnunarstyrkur nemenda.

Þeir nemendur sem hófu nám nú á vorönn og eiga eftir að sækja um jöfnunarstyrk til lin.is, þurfa að gera það fyrir 15. febrúar. Upplýsingar um umsóknarferlið eru á lin.is. Þá eru nokkrir nemendur sem ekki hafa vitjað um rútukortin sín hjá ritara. Það þarf að greiða 5000.- kr. við afhendingu kortanna.

Lesa meira...
22.01.2010
Bóndadagur
Til hamingju með daginn allir bændur. Að því tilefni er þorramatur í mötuneyti VA í hádeginu í dag. Lið skólans lauk keppni í gettu betur á miðvikudagskvöld í viðureign við Kvennó. Við óskum þeim velgengni í áfarmhaldandi keppni.
19.01.2010
Sigur í Gettu betur í gær.
Lið VA bar sigur úr býtum í fyrstu viðureign sinni við VMA í gærkvöldi í hljóðstofu Ríkisútvarpsins á Egilsstöðum. Liðið dróst á móti Kvennaskólanum í annari umferð og keppir á morgun miðvikudag kl. 20.00.Lið VA skipa þeir Ásgeir F Heimisson, Guðmundur D Guðlaugsson og Martin Sindri Rosenthal. Við óskum þeim góðs gengis á morgun. Áfram VA !
19.01.2010
Leiklistarnámskeið
IMG_3379.jpg

Um helgina héldum við leiklsitanámskeið. Á námskeiðinu leiðbeindi leikstjórinn Guðjón Sigvaldason krökkunum með textameðferð og tjáningu. Námskeiðið var haldið á heimavist skólans og voru um 20 krakkar sem mættu báða daganna. Námskeiði er liður í undirbúningi á uppfærsu Djúpsins sem er fyrir huguð nú á vorönn 2010.

18.01.2010
Gettu betur !
Í kvöld mánudaginn 18.janúar keppir VA við Verkmenntaskólann á Akureyri í Gettu betur. Hefst keppnin kl. 19.30. Þetta verður æsispennandi keppni en lið VA hefur æft að undanförnu undir liðstjórn Halls Ragnars Haukssonar. Við óskum keppendum velfarnaðar í keppninni. Áfram VA.
15.01.2010
Leiklistarnámskeið fyrir nemendur VA.
Nú um helgina verða áhugasamir nemendur VA á leiklistarnámskeiði undir stjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Þetta námskeið verður góður undirbúningur fyrir nemendur leikfélagsins Djúpsins en þeir stefna á að setja upp söngleik á vorönninni.
15.01.2010
Námskeið framundan í VA
Smáskipanámskeið verður haldið dagana 29 - 31. jan., 13-14.feb., 26- 28. feb. Námskeiðinu lýkur 6. mars. Kennari er Magni Kristjánsson skipstjóri. Námskeiðið kostar 60.000kr Skráning í s.4771620 eða hjá marino@va.is Framundan eru fleiri námskeið sem auglýst verða síðar, bæði handverksnámskeið og vinnutengd námskeið.
08.01.2010
Íþróttakennslan á vorönn.
Af óviðráðanlegum orsökum mun ekki vera starfandi íþróttakennari við skólann á vorönn 2010. Af þeim orsökum færist ábyrgð kennslunnar og uppfylling lögbundinnar einingar í íþróttum, á herðar nemenda sjálfra. Þeir sjá um að hreyfa sig valkvætt í hverri viku, í sundi, líkamsrækt eða á skíðasvæðinu í Oddskarði. Þeir nemendur sem æfa íþróttir hjá þjálfara þurfa að skila undirrituðu vottorði þar um. Mismunandi eyðublöð fá nemendur hjá ritara. Nánari upplýsingar verða settar á heimasíðu skólans í næstu viku.
08.01.2010
Rútuferðir.
Brottför rútu frá VA er 10 mínútum eftir að síðasta tíma lýkur á hverjum degi. Kl.16.25 mán., þri., mið., fim. Kl. 14.15 á föstudögum. Vakin er athygli nemenda á breyttri tímatöflu skólans. Rútukort eru í smíðum og verða afhent í næstu viku hjá ritara. Nemendur þurfa að greiða 5.000.- kr. við móttöku kortsins.
05.01.2010
Upphaf vorannar 2010
Gleðilegt nýtt ár. Á morgun 6/1 hefst kennsla kl.08.30. Nemendur geta nálgast stundatöflur sínar á Innu eftir 13.00 í dag. Bókalisti er á heimasíðunni og er mikilvægt að nemendur útvegi sér námsgöng sem fyrst. Rútuferðir verða með sama hætti og á haustönn. Brottför frá Olís Reyðarfirði kl. 07.35 og frá Shell Eskifirði kl. 07.50. Unnið er að gerð nýrra rútukorta fyrir þá sem hafa þegar sótt um þau. Ef einhverjir hafa gleymt því, er hægt að sækja um þau til ritara fyrir föstudag, 8/1.
04.01.2010
Vélstjórnarréttindi < 750 kW
Fyrirhugað er að kenna vélstjórn fyrir réttindi á skip undir 12 metrum að lengd. Um er að ræða bóklegt og verklegt nám. Verklegi þátturinn felst í almennri vélstjórn og bilanagreiningu og skal tilsvara 16 kennslustundum. Námið veitir réttindi til að vera vélavörður á skipi með 750 kW vél og minni og 12 metrar og styttra að skráningarlengd. Lesa meira...
23.12.2009
Opnunartími skrifstofu
Skrifstofa VA verður lokuð vegna jólaleyfa starfsfólks til mánudagsins 4 janúar kl.09.00. Ef þig vantar upplýsingar bendum við á heimasíðuna eða á póstföngin marino@va.is eða olga@va.is.
18.12.2009
Staðfesting rútukorta.
Nemendur sem ætla að ferðast með rútu á milli Reyðarfjarðar, Eskifjarðar og í skólann í Neskaupstað þurfa að senda póst þess eðlis sem allra fyrst á sigrun@va.is. Að öðrum kosti er ekki víst að þið fáið öruggt pláss í rútunni.
15.12.2009
Annarlok !
Prófum er lokið í VA þetta haustið, sjúkrapróf fóru fram í dag. . Á morgun miðvikudaginn 16.12. eftir 16.00 geta nemendur skoðað einkunnir sínar á Innu. Prófsýnig verður fimmtudaginn 17.12. kl. 11.30 - 13.00. Rútan fer frá Olís Reyðarfirði kl. 10.45, frá Eskifirði kl.11.00. Brottför til baka frá VA verður kl.13.00. Námsráðgjafi verður í húsi á fimmtudag fyrir þá sem vilja hitta hana. Þeir sem ætla að endurnýja rútukortin þurfa að ganga frá því við ritara á fimmtudag.
09.12.2009
Ný rútukort á vorönn.
Rútuferðir hafa gengið vel á haustönninni og stefnt er að því að halda þeim áfram á vorönninni 2010. Nú þurfa þeir nemendur sem ætla að endurnýja rútukort sitt að skrá sig hjá Sigrúnu fyrir nýju korti. Mikilvægt er að þetta gerist sem allra fyrst. Þeir sem ekki hafa skráð sig fyrir jólafrí geta ekki gengið að því að fá far með rútunni á næstu önn.
07.12.2009
Prófin í fullum gangi.
Haustpróf standa yfir í VA þessa dagana. Nemendur eru hvattir til að mæta tímanlega í rútuna á og einnig í prófin. Ekki er leyfilegt að skila prófi fyrr en 45 mínútur eru liðnar af próftíma. Listi með nöfnum og stofunúmerum er að finna við báða innganga að morgni prófdags. Munið að fara vel yfir úrlausnir svo ekkert gleymist. Gangi ykkur vel.
02.12.2009
jólastund
Í gær 1. des var árleg jólastund meðal nemenda og kennara þar sem boðið var upp á piparkökur og jólaöl. Sungin voru jólalög við undirleik Ágústar Ármanns. Á undan jóladagskránni var æfingakeppni milli kennara og liðs Gettu betur nemenda. En þau keppa í byrjun janúar í svæðisútvarpi Rásar 2. Kennarar höfðu betur að þessu sinni.
30.11.2009
Gettu betur og jólastund.
Á morgun 1. desember kl. 10.00 ætlar Gettu betur lið VA að taka æfingakeppni við öflugt lið kennara sem skipað verður Ingibjörgu Þórðardóttur, Jóhanni Zoega og Smára Geissyn. Á eftir munum við síðan gæða okkur á piparkökum og jólaöli.
28.11.2009
Vísindaferð erfðafræðinema
Fimmtán erfðafræðinemar úr VA og ME fóru í vettvangsferð til Reykjavíkur mánudaginn 23. nóvember undir stjórn kennara síns, Þórðar Júlíussonar. Þar heimsóttu þau Blóðbankann, Íslenska erfðagreiningu og erfðafræðideild HÍ í náttúruvísindahúsinu Öskju. Í Blóðbankanum fengu þau fyrirlestur um starfsemina og skráðu sig flest sem blóðgjafa með tilheyrandi viðtölum og sýnatökum. Hjá ÍE voru þeim kynntar grunnforsendur fyrirtækisins og fengu fræðilega útskýringu á starfseminni. Auk þess fengu þau m.a. að kíkja inn í lífsýnageymsluna þar sem sýni úr um 120 þúsundum einstaklinga er að finna. Í HÍ var þeim kynnt námsframboð skólans og starfsaðstaða í Líffræðiskor. Í lokin kíktu nemendurnir við í Land-og ferðamáladeild. Ferðin var vel heppnuð og ætti að vera gott veganesti fyrir nemedur sem eru að ljúka framhaldsskóla.
28.11.2009
Lokaspretturinn
Síðasta kennsluvika annarinnar rennur upp á mánudag. Kennt verður til hádegis á fimmtudag, kl. 12.35. Rútan fer frá VA kl. 12.45. Fyrstu prófin verða síðan á föstudag kl. 09.00. Rútan fer frá Reyðarfirði kl. 08.05 alla prófadaga og frá Eskifirði 08.15.
24.11.2009
Gjöf frá Johanni Rönning
Við erum afar þakklát Johanni Rönning h.f. fyrir gjöf til rafdeildar skólans, 5 töflukassa til kennslu í raflögnum við framhaldsdeildina. Það var einkum Ingimar Sigurðarson sem vann að því að við fengjum þessar gjafir. Er hann á myndinni ásamt deildarstjóra rafdeildar Hjálmari Jóhannessyni og Olgu Lísu Garðarsdóttur skólameistara. Rekstur rafdeildarinnar væri ekki svipur hjá sjón ef ekki nyti við góðrar samvinnu skólans við atvinnufyrirtæki í Fjarðabyggð. Lesa meira...
20.11.2009
Hár og tíska
Sýning hársnyrtideildar gekk frábærlega, á 3ja hundrað manns komu í Þórsmörk og skoðuðu verk nemenda. Einnig settu nemendur í íslensku 503 og Gleymérei systurnar skemmtilegan svip á sýninguna. Eins og myndirnar bera með sér var fjölbreytt þema sem nemendur unnu með. Þá mátti einnig sjá myndir nemenda í iðnteikningu á öllum veggjum. Þetta var afar skemmtilegur viðburður og þökkum við öllum sem lögðu hönd á plóg en það er mikil vinna að setja svona sýningu upp. Lesa meira...
18.11.2009
Smáskipaprófi lokið.
Síðastliðna helgi lauk smáskipaprófi (12 m.) í VA. Það voru 27 vaskir verðandi skipstjórar sem luku prófi og geta nú siglt á vit veiða og ævintýra. Stefnt er á að bjóða annað sambærilegt námskeið í byrjun næsta árs og í framhaldi af því annað stig sem nær upp í 24 metra skipstjórn. Nánar auglýst síðar. Við óskum þessum skipstjórum til hamingju með áfangann.
17.11.2009
Hár og tíska í 50 ár
Hársnyrtinemar Verkmenntaskóla Austurlands verða með Sýningu í listasmiðjunni Þórsmörk í Neskaupstað , 19. nóvember kl. 19:00-22:00. Á sýningunni munu nemendur á 3. önn á háriðnbraut sýna afrakstur vinnu sinnar í 3 áföngum. Þeir hafa kynnt sér 10 ára tímabil í tískusögunni til hlýtar og vinna hár og fatnað á módeli fyrir sýninguna. Einnig vinna nemendur greiðslur á æfingarhöfði samkvæmt því tímabili sem þeir fjalla um. Að endingu útfærir hver nemandi sitt tímabil í myndum, tónlist og andrúmslofti tímabilsins. Þá verða fyrstu annar nemendur með sýningu á afrakstri vinnu sinnar í vetur. Þeir ætla svo að spreyta sig í frjálsri vinnu á æfingarhöfði. Lesa meira...
12.11.2009
Próftækni- og prófkvíðanámskeið
Próftækni- og prófkvíðanámskeið í boði fyrir áhugasama. Þar verður farið yfir hvernig hægt sé að hafa stjórn á kvíðanum, breyta hugsunarhættinum og skipuleggja sig í prófaundirbúningnum. Skráning er hjá Perlu námsráðgjafa eða Sigrúnu ritara fyrir 18. nóvember. Einnig er hægt að senda tölvupóst á perla@va.is. Margrét Perla Kolka Leifsdóttir, námsráðgjafi Lesa meira...
11.11.2009
FRÁVIK Í PRÓFUM
Nemendur með greiningar (lestrarerfiðleika, athyglisbrest og fl.) og nemendur sem þjást af miklum prófkvíða eiga rétt á að sækja um frávik í prófum. Með fráviki er átt við: Stærra letur, lituð blöð, sérstofur, upplestur á prófi og lengri próftíma. Vinsamlegast farið til námsráðgjafa og gerið grein fyrir ykkar stöðu fyrir föstudaginn 20. nóvember. Margrét Perla Kolka Leifsdóttir, námsráðgjafi. Lesa meira...
10.11.2009
Innritun fyrir vorönn
Innritun stendur yfir fyrir vorönn 2010. Þeir sem hyggjast stunda nám í VA á næstu önn þurfa að sækja um á þar til gerðu eyðublaði á hemasíðunni fyrir 30.nóvember. Einnig er mikilvægt að núverandi nemendur gangi frá vali sínu hjá áfangastjóra. Á heimasíðunni er að finna áfanga í boði , þar sem hægt er að sjá námsframboð vorannar.
10.11.2009
Lok þriðja fjarvistatímabils
Þriðja fjarvistatímabili lýkur n.k. föstudag. Þá eiga foreldrar von á að fá bréf um þau sem ekki hafa staðið sig í mætingu í skólann. Það skiptir máli að mæta og sinna námi sínu enda stutt eftir af önninni. Þeir nemendur sem ekki hafa valið fyrir næstu önn þurfa að ganga frá því í þessari viku hjá áfangastjóra.
07.11.2009
Styttist í annarlok
Nú eru tæpar fjórar vikur eftir af kennslu haustannar. Mikilvægt er að nemendur sinni náminu vel þessar vikur, skili verkefnum og gangi frá námsefninu til að hafa það sem aðgengilegast til annarloka.
04.11.2009
Menningarferðin til Akureyrar
Við viljum minna foreldra á að nemendur undir 18 ára þurfa að skila undirrituðu plaggi í síðasta lagi á morgun, fimmtudag. Það er mikilvægt að nemendur séu vel búnir þar sem allra veðra er von á þessum árstíma. Lokaskipulag er í gangi á vegum NIVA. Það er von okkar að nemendur verði sjálfum sér, aðstandendum og skólanum sínum til sóma á Akureyri.
03.11.2009
Svínaflensa.
Svínaflensan hefur gert vart við sig meðal starfsmanna VA. Ég bið nemendur og forráðamenn að fylgjast með tilkynningum á skjá skólans sem einnig birtist á heimasíðunni.Þar eru allar fréttir settar inn jafnóðum um fjarveru kennara.
30.10.2009
Menningarferð til Akureyrar
Fyrirhugað er að NIVA nemendafélag VA fari í menningarferð til Akureyrar um næstu helgi. Forráðamenn nemenda yngri en 18 ára þurfa að gefa skriflegt leyfir fyrir ferð ungmennis. Eyðublað er hjá ritarar og þarf að skila því til baka í síðasta lagi fimmtudaginn 5.11. Enginn sem ekki skilar undirrituðu leyfi fær að fara. Tveir starfsmenn skólans fara með í ferðina. Skipulag er alfarið í höndum nemenda.
27.10.2009
Lífsleikni
Í dag miðvikudaginn 28. október koma félagar í Ástráði (forvarnarstarf læknanema) og verða með kynfræðslu fyrir lífsleikninema. Fræðslan fer fram í stofu 9 og er hvor fyrirlestur um 90 mínútna langur. Mætið vel! Hópur 1 kl. 14:00-15:30 Hópur 2 kl. 12:30-14:00 Lesa meira...
21.10.2009
Vetrarfrí í VA
Vetrarfrí er í VA fimmtudaginn 22. og föstudaginn 23. okt. Það er von okkar að nemendur jafnt sem kennarar njóti þess að líta upp úr skólabókum og njóti tilverunnar á annan uppbyggilegan hátt. Kennsla hefst samkvæmt stundarskrá mánudaginn 26. október. kl. 08.30.
21.10.2009
Valdagar í Verkmenntaskóla Austurlands
Dagana 21. október – 6. nóvember eru valdagar í Verkmenntaskóla Austurlands. Þetta eru tæpar 3 vikur sem nemendur fá til að velja en aðaláhersla er lögð á að nemendur velji í vikunni 26. – 30. október. • Nemendur fæddir 1993 velja hjá umsjónarkennara miðvikudaginn 28. október kl. 10:50 í stofu 8 • Nemendur fæddir 1992 velja hjá umsjónarkennara miðvikudaginn 28. október kl. 10:50 í stofu 9 • Nemendur fæddir 1991 velja hjá umsjónarkennara miðvikudaginn 28. október kl. 10:50 í stofu 12 • Nemendur sem eru eldri en 18 ára hitta áfangastjóra miðvikudaginn 28. október kl. 10:50 í stofu 11 Nemendur eru hvattir til að skoða vel námsframboð vorannar 2010 sem liggur frammi hjá ritara og koma vel undirbúnir í valtímana. Það er mikilvægt að nemendur velji einn áfanga í varaval Lesa meira...
20.10.2009
Vetrarfrí framundan
Það styttist í langþráð vetrarfrí sem verður 22., 23. okt. fyrir nemendur og kennara VA. Kennsla verður síðan hefðbundin mánudaginn 26.10. Námsframboð fyrir næstu önn verður gefið út í dag og eru nemendur beðnir að undirbúa valið sem verður nk. miðvikudag, 28.10. með því að skoða Pésann vel.
20.10.2009
Veikindi
Þessa dagana er töluvert um veikindi nemenda og kennara. Í dag eru allir kennarar að kenna, sumir fyrir aðra. Kennsla í tréiðndeild er í dag og á morgun þrátt fyrir fjarveru kennara. Nemendur Nonna og Jóhanns St. eiga að mæta í stofu 2 (teiknistofuna) þar fá þeir fyrirmæli um vinnu. Reiknað er með að kennsla verði hefðbundin eftir helgi, mánudaginn 26.10. Nemendur sem taldir eru með svínaflensu eiga að halda sig heima í viku skv. fyrirmælum sóttvarnarlæknis.
13.10.2009
Smáskipapróf (pungapróf)
Smáskipaprófs (pungapróf), námskeið verður haldið í Verkmenntaskóla Austurlands. Kennsla hefst föstudaginn 16. okt kl. 15:00. Kenndar verða þrjár helgar í heildina, föstudag, laugardag og sunnudag. Ennþá er hægt að skrá sig á námskeiðið. Námskeiði kostar 50.000 kr Lesa meira...
12.10.2009
Rausnarskapur.
Alcoa, VHE og Launafl hafa styrkt Verkmenntaskóla Austulands mjög rausnarlega á þessu ári með tækjakaupum fyrir verknámsdeildir skólans. Búnaðurinn sem um ræðir er m.a. mjög fullkomið kennsluborð í vökvatækni frá FESTO ásamt tilheyrandi hugbúnaði, Allen-Bradley iðntölvur ásamt mótorum og hraðabreytum, 10 stk Dell borðtölvur, Berker instabus hússtjórnarkerfi. Þessar gjafir gerbreyta og bæta aðstöðu skólans til verknámskennslu og nemendur munu verða mun betur búnir fyrir atvinnulífið. VA er með þessu orðinn einn albest búni framhaldsskólinn í stýri- og iðntölvukennslu á landinu. Kunnum við þessum fyrirtækjum bestu þakkir fyrir rausnarlegar gjafir. Lesa meira...
07.10.2009
Miðannarmat.
Í dag miðvikudag ljúka kennarar að skrá og gefa miðannarmat. Niðurstöður birtast á Innu vefnum föstudaginn 09.okt. og geta nemendur og aðstandendur farið yfir miðannarmatið þar. Allir kennarar leggja mat á námsframvindu nemenda og birta þeim námslega stöðu sína með einkunnum eða umsögnum. Á haustönn 2009 gildir miðannarmatið 20% af heildareinkunn nemenda.
05.10.2009
Launafl afhendir Verkmenntaskólanum í Fjarðabyggð 10 tölvur.
Föstudaginn 25. september afhenti Launafl Verkmenntaskólanum í Fjarðabyggð 10 tölvur af gerðinni Dell Vostro 220. Þetta er hluti af 12 milljóna króna styrk til tækjakaupa sem Alcoa Fjarðaál, VHE og Launafl sameinast um að kaupa með það að markmiði að efla kennslu, þjálfun og auka áhuga fólks á iðnnámi, sérstaklega á sviði raf- og járniðna. Lesa meira...
02.10.2009
Færð á Oddskarði
Vetur konungur gerði vart við sig í dag og nú er mikilvægt að nemendur séu ekki að halda yfir Oddskarð á illa búnum bílum. Þá leggjum við áherslu á að nemendur séu með inniskó í skólanum. Munið að hringja inn veikindi fyrir 11.00 á morgnana í 477-1620.
21.09.2009
Haustganga
Árleg gönguferð nemenda og kennara var farin fimmtudaginn 17. Sept í frábæru gönguveðri, stafalogni og 14°hita. Gengið var á Lollann sem er um 540 metra hár og stendur sunnan við fjörðinn. Flestir nemendur skólans mættu og nutu útiveru. Í lok göngu voru grillaðar pylsur við Norðfjarðarána. Sumir nemendur kældu sig eftir gönguna og syntu í ánni. Lesa meira...
16.09.2009
Tilmæli frá sóttvarnarlækni vegna inflúensu.
Eins og allir vita geysar inflúensa um heimsbyggðina. Skv. tilmælum frá sóttvarnarlækni ber að taka því alverlega ef einstaklingur smitast. "Þeir sem eru með einkenni inflúensu eru mest smitandi í upphafi veikinda og til að draga úr smiti í samfélaginu hvetur sóttvarnalæknir fólk til að vera hitalaust heima í tvo sólarhringa ef það hefur fengið einkenni inflúensu." Samkvæmt skólareglum VA þarf að skila læknisvottorði við endurkomu í skólann eftir a.m.k. þriggja daga veikindi. Mælst er til þess að nemendur geri það.
16.09.2009
Gönguferð nemenda og kennara á morgun fimmtudag kl. 11.00 - 15.00
Árleg gönguferð nemenda og kennara VA verður farin á morgun fimmtudag 17. sept kl. 11.00 frá VA. Farið verður inn í sveit og gengið þar, bærinn skoðaður frá nýju sjónarhorni. Grillað verður í lok göngu. Það er skyldumæting í gönguna.
14.09.2009
Leikfélagið Djúpið
Leikfélagið Djúpið Fundur hjá leikfélaginu í hádeginu á miðvikudaginn 16.september kl:12:35 í stofu 5. Allir velkomnir, nýir meðlimir sérstaklega boðnir velkomnir. Fundarefni starf vetrarins ! Hlökkum til að hitta ykkur. Stjórn Djúpsins og Verndari Lesa meira...
11.09.2009
Smáskipapróf (pungapróf)
námskeið verður haldið í haust í VA ef næg þáttaka fæst, nánari tímasetning ákveðin síðar. Markmið námsins er að mennta þá sem hyggjast afla sér réttinda til skipstjórnar á skipum styttri en 12 metrar. Um er að ræða tvo áfanga samkvæmt aðalnámskrá auk styttri námskeiða, samanber neðangreint. Lesa meira...
08.09.2009
Kynningafundur forráðamanna nýnema.
Kynningafundur fyrir aðstandendur nýnema verður í stofu 5 í bóknámshúsi kl. 20.00 í kvöld þriðjudag 08.09. Það er von okkar að sem flestir sjái sér fært að mæta. Kaffi verður á könninni að loknum fundi.
04.09.2009
Jöfnunarstyrkur.
Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? · Opnað hefur verið fyrir umsóknir um jöfnunarstyrk vegna skólaársins 2009-2010! · Umsóknarfrestur er til 15. október næstkomandi. · Hægt er að sækja um styrkinn í gegnum netbanka eða Innu, vefkerfi framhaldsskólanna. Kynntu þér reglur um námsstyrki og leið-beiningar um skráningu á www.lin.is Hægt er að skrá umsókn á Innu eða netbankanum! Lánasjóður íslenskra námsmanna Námsstyrkjanefnd Lesa meira...
03.09.2009
Busadagur og heimferð á eftir.
Á morgun hefst busun kl. 13.00. Reiknað er með að hún standi í 1,5 tíma. Eftir það geta nemendur farið í sturtu í sundlauginni með þeim skilyrðum að hafa meðferðis hrein föt í poka og handklæði, fara úr óhreinum fötum utan við sundlaug og skilja pokann með þeim óhreinu eftir þar. Á þessu má sjá að það er mikilvægt að nemendur mæti í "druslu"fötum og hafi hrein og þurr með ásamt handklæði. Rútan fer frá Egilsbúð kl. 15.15. Kennarar munu verða á staðnum og fylgjast með. Góða skemmtun.
03.09.2009
Hljóðbækur
Þeir nemendur sem þurfa aðstoð við að útvega sér hljóðbækur er bent á að hafa samband við námsráðgjafa sem allra fyrst. Athygli er vakin á nýjung hjá Blindrabókasafni Íslands en núna er hægt að fá hljóðbækur í gegnum niðurhal. Frekari upplýsingar má sjá á vef Blindrabókasafnsins www.bbi.is og hjá námsráðgjafa.
02.09.2009
Busadagar í VA
Þessa viku stendur innvígsla nýnema yfir. Þar gera eldri nemendur þeim yngri ýmisskonar grikki. Reynt er að hafa aðgerðir innan siðsamlegra marka. Á föstudaginn eftir hádegi, kl. 13.00 fer lokabusun fram. Eru foreldrar hvattir til að ræða þessi mál við ungmenni sín, foreldrar nýnema að fylgjast með viðbrögðum, sjá til þess að þau mæti með réttan útbúnað i skólann á föstudag, aukaföt, sundföt og handklæði. Alls ekki að mæta í sínum bestu fötum. Góða skemmtun.
02.09.2009
Fjarnemar athugið.
Lesa meira...
02.09.2009
Rútukort - síðasti dagur til að sækja um kort.
Lesa meira...
26.08.2009
Sjúkraliðabraut
Kennsla hefst fimmtudaginn 3.9. og eiga þá allir nemendur að mæta í verkmenntaskólann kl. 16 til að hitta kennara og læra á kennsluvefinn. Þeir sem ekki hafa tök á því að mæta eru beðnir að hafa samband með tölvupósti á netfangið marino@va.is
25.08.2009
Fyrirkomulag á skipulögðum skólaakstri
Upplýsingar til nemenda og foreldra: Í ljósi þeirrar staðreyndar að Fjarðabyggð telur sér ekki fært að niðurgreiða að fullu skólaakstur framhaldsskólanema verður eftirfarandi fyrirkomulag í boði á haustönn 2009. Framhaldsskólanemar geta keypt rútukort sem gildir á haustönn 2009 milli Norðfjarðar, Eskifjarðar og Reyðarfjarðar. Staðfestingagjaldið sem greiða þarf fyrir kortið er kr. 5.000,- fyrir haustönnina. Greiðsla staðfestingagjaldsins jafngildir skuldbindingu um að sækja um jöfnunarstyrk (akstursstyrk) til Lánasjóðs íslenskra námsmanna ásamt umboði um að hluti styrksins renni til Verkmenntaskóla Austurlands til að standa straum að kostnaði við skólaaksturinn. Síðasti umsóknardagur fyrir rútukortin á haustönninni er fimmtudagurinn 3. september n.k. og staðfestingargjaldið ber að greiða við móttöku kortsins, mánudaginn 7. september. Eingöngu verður boðið uppá rútukort þ.e. stakar ferðir verða ekki í boði. Lesa meira...
24.08.2009
Fréttir af rútugjaldi á haustönn.
Á morgun þriðjudag munum við birta framkvæmdarformið á rútugjaldinu sem tekið verður upp nú á haustönninni. Ég bið alla um að kynna sér það vel.
21.08.2009
Fyrsti skóladagurinn með meiru.
Þrátt fyrir snúið fyrirkomulag gekk fyrsti kennsludagur annarinnar stórslysalaust. Kennsla næstu viku verður samkvæmt stundaskrá. Rútan fer frá Olís Reyðarfirði kl. 07.35, frá Shell Eskifirði kl. 07.50. Brottför frá VA er kl. 16.40. Ekki verður innheimt gjald fyrir ferðir í næstu viku. Nemendur þurfa að fylgjast vel með tilkynningum um form og framkvæmd gjaldtöku fyrir önnina sem væntanleg er í næstu viku.
19.08.2009
Aðgangur að Innu og neti
Til að komast inn í innu og í tölvukerfi skólans þurfa nemendur að sækja aðganginn sinn á skrifstofu skólans eða senda póst á vidar@va.is og fá þá lykilorðið sent í tölvupósti.
19.08.2009
Rútuferð vegnar skólasetningar.
Rútan fer frá Reyðarfirði á morgun fimmtudag kl. 14.00, frá Eskifirði kl. 14.15. Brottför til baka frá VA að lokinni skólasetningu um 16.30. Föstudaginn 21. ágúst fer rútan frá Olís á Reyðarfirði kl. 07.35, frá Eskifirði kl. 07.50. Kennt verður samkvæmt stundaskrá mánudags í 30 mín. tímum til kl. 12.40. Rútan fer frá VA kl. 12.50 þennan dag. Tímasetning rútuferða í næstu viku verða settar á netið á föstudaginn.
18.08.2009
Fimmtudagur 20. ágúst - dagskrá.
Kennarafundur kl. 10.00 Skólasetning kl. 15.00 í austurenda VA, félagsaðstöðu nemenda. Heimavist opnar kl 16.00. Fundur með skólameistara og heimavistarstjóra kl. 17.00 í matsal heimavistar fyrir heimavistarbúa og aðstandendur þeirra.
07.08.2009
Undirbúningur fyrir haustönn 2009.
Undirbúningur er nú í fullum gangi fyrir haustönnina. Stundatöflur nemenda verða aðgengilegar eldri nemendum á Innu þann 19. ágúst kl. 13.00. Skólasetning verður 20. ágúst kl. 15.00. Þar fá nýnemar aðgang að Innu (upplýsingakerfi framhaldsskóla) og hitta upsjónarkennara sína. Heimavistin opnar fyrir nemendur 20.ágúst kl. 16.00. Fundur verður með heimavistabúum og forráðamönnum þeirra sama dag kl. 17.00 í matsal heimavistar. Kennsla hefst föstudaginn 21. ágúst kl. 08.30. Kennt verður eftir tímatöflum mánudags 30. mín tímar í senn. Tímataflan verður birt hér þegar nær dregur. Mikilvægt er að þeir nemendur sem ekki hafa greitt innritunargjöldin geri það hið fyrsta þar sem annars verður ekki reiknað með þeim við skipulag haustannar.
04.08.2009
Skrifstofan opnar á fimmtudag kl. 09.00
Skrifstofa VA opnar nk. fimmtudag kl. 09.00. Stundaskrár nemenda verða ekki tilbúnar fyrr en um 20. ágúst. Síminn er 477-1620 fyrir þá sem vantar almennar upplýsingar um haustönnina. Bent er á að ýmsar upplýsingar er að finna á heimasíðunni, einnig verða nýjustu fréttir setta inn hér jafnóðum.
14.07.2009
Úthlutun úr menningar og styrktarsjóði, Samvinnufélags útgerðarmanna
Í sumarúthlutun styrkja úr menningar og styrktarsjóði, Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað fékk VA eftirfarandi styrki: 250.000 krónur til eflingar félagslífs nemenda, 150.000 krónur til kaupa á kennslu og íþróttatækja fyrir starfsbraut fatlaðra , 300.000 krónur til áframhaldandi uppbyggingar íþróttaakademíu VA og 100.000 krónur til leikfélagsins Djúpsins sem mun á hausti komandi halda leiklistarnámskeið fyrir áhugasama nemendur
26.06.2009
Sumarleyfi starfsfólks.
Skrifstofa VA verður lokuð frá og með 29. júní til 06.08. vegna sumarleyfa starfsfólks, hægt er að senda fyrirspurnir á olga@va.is eða marino@va.is.
22.06.2009
Úrvinnsla í fullum gangi.
Verðandi nemendur ættu að hafa fengið póst um skólavist í VA næsta skólaár. Ef einhverjar spurningar vakna þá hikið ekki við að hafa samband við skólann, s.nr: 477-1620. Skrifstofan verður opin til 26. júní en lokar þá til 06.08 vegna sumarleyfa. Hægt er að senda fyrirspurnir á marino@va.is.
15.06.2009
Bréf send út í þessari viku.
Nánast allir sem sóttu um skólavist hafa verið samþykktir inn í Verkmenntaskóla Austurlands. Í dag og næstu daga munum við senda nemdendum og forráðamönnum bréf þar um og greiðsluseðil fyrir innriturnargjöldum. Verðská VA er að finna á heimasíðunni.
12.06.2009
Innritun lokið - umsóknum svarað.
Innritun í VA er lokið. Unnið er að úrvinnslu umsókna og verða svör send til umsækjenda nk. þriðjudag, 16. júní. Ef einhver hefur gleymt að sækja um, þá eru ennþá laus pláss í skólanum á haustönn 2009.
10.06.2009
Síðasti dagur innritunar á morgun.
Á morgun þann 11. júní er síðasti dagur innritunar í framhaldsskóla. VA býður upp á fjölbreytt nám á mörgum brautum, ennþá getum við bætt við okkur nemendum á flestar brautir. Velkomin í VA.
02.06.2009
Innritun
Innritun í dagskóla haustið 2009 er hafin. Umsækjendur sækja um á umsóknarvef Menntagáttarinnar. 10. bekkingar fá veflykil sinn afhentann í grunnskólanum. Einnig má sækja um veflykil á vef Menntagáttarinnar. Yfirlit yfir námsbrautir við Verkmenntaskóla Austurlands má finna hér á heimasíðunni. Inntökuskilyrði á brautir eru einnig aðgengilegar hér á síðunni. Smellið á "nánar" til að fá tengil á umsóknareyðublað. Umsóknarfrestur er til 11. júní nk. Verið velkomin í Verkmenntaskóla Austurlands. Lesa meira...
23.05.2009
Útskrift VA
Í dag útskrifuðust 53 nemendur frá VA. Athöfnin fór að þessu sinn fram í Kirkju - og Menningarmiðstöð Austurlands. Nýstúdentarnir Bergey Stefánsdóttir og Soffía Björgúlfssdóttir sungu þrjú lög við undirleik Ágústar Ármanns á píanó og Benedikts Ernis Stefánssonar á gítar (bróður Bergeyjar). Flutningur þeirra var afar hugljúfur og "puntuðu" stúlkurnar athöfnina mikið. Að vanda var nokkuð um verðlaunaveitingar en sú sem vakti mesta athygli var brautskráning fyrstu konunnar í vélvirkjun frá VA, Fanneyjar Jónu Gísladóttur. Þetta var föngulegur hópur af öllum brautum skólans, flestir af félagsfræðibraut. VA var slitið við þetta tækifæri í 22 annað skiptið og í 12 sinn sem stúdentar voru brautskráðir.Til hamingju öll.
19.05.2009
Opnun fyrir einkunnir - prófasýning
Hægt verður að skoða niðurstöður prófa á Innu á föstudaginn kl. 10. Prófasýning verður í skólanum á milli 12 .00 og 13.00 sama dag. Rútuferð verður frá Reyðarfirði kl. 11.05 og frá Eskifirði kl. 11.20.
19.05.2009
Opið hús var í VA
Opið hús var í VA í dag kl. 18.00. Við það tækifæri afhenti Alcoa, Launafl og Vélsmiðja Hjalta Einarssonar glæsileg kennslutæki sem nýtast munu í iðn og rafstýringum á raf – og málmiðnbrautunum. Með þessum tækjum er VA orðinn best búni skóli landsins á þessu sviði. Við í VA eru afar þakklát fyrir þessar höfðinglegu gjafir sem eru a.m.k. 12 milljóna virði. Nemendur okkar munu verða vel búnir út í atvinnulífið eftir lærdóm sem þessi tæki munu nýtast við. Gestirnir sem heimsóttu skólann hittu kennara sem voru búnir að koma kennsluefni vel fyrir og það er von okkar að gestirnir hafi farið ríkari heim um eina framhaldsskólann í Fjarðabyggð. Lesa meira...
18.05.2009
Opið hús í VA
Opið hús verður í Verkmenntaskóla Austurlands þriðjudaginn 19. maí kl. 18:00 – 20:00. Þar gefst foreldrum/aðstandendum nemenda VA og verðandi nemendum tækifæri til að heimsækja skólann, skoða aðstöðu hans og hitta starfsmenn. Það sýnir sig að því betur sem foreldrar setja sig í aðstöðu barna sinna því betur gengur þeim. Verknámshús VA var stækkað í vetur og tekið í notkun í upphafi vorannar, þeir sem áhuga hafa á iðnnámi eru hvattir til að koma og kynnar sér aðstöðuna. Við sama tækifæri mun skólinn taka við kennslutækjum á málm- og rafiðnbrautum sem Alcoa, Vélsmiðja Hjalta og Launafl hafa styrkt skólann með. Það er von okkar að sem flestir mæti og heimsæki okkur. Boðið verður upp á kaffi og súkkulaði. Lesa meira...
18.05.2009
Áhugasviðskönnun fyrir nemendur VA.
Nemendum býðst að taka áhugasviðskönnun í maí og byrjun júní hjá náms- og starfsráðgjafa VA. Könnunin kostar 2500 kr fyrir nemendur skólans. Vinsamlegast hafið samband við námsráðgjafa, hronn@va.is
15.05.2009
Prófum lokið.
Í dag var síðasti prófdagur. Til hamingju með að vera búin. Á mánudaginn 18. maí verða sjúkrapróf fyrir þá sem voru veikir á prófdögum. Ekki verður um aðra möguleika á að taka prófin. Gangi ykkur vel.
13.05.2009
Prófalok, opnun fyrir einkunnir á Innu og prófsýningngar.
Síðasti prófadagur er nk. föstudag, sjúkrapróf mánudaginn 18. maí. Opnað verður fyrir einkunnir á Innu föstudaginn 22. maí kl. 10.00. Prófasýnig verður sama dag milli 12.00 - 13.00. Rútuferð verður frá Reyðarfirði föstudaginn 22. maí kl. 11.05 og frá Eskifirði 11.20. Gangi ykkur vel að ljúka vorönninni.
07.05.2009
Lóðarhreinsun og tiltekt við VA
Starfsmenn VA tóku til hendinn í dag og fegruðu umhverfi VA. Þarna voru dugnaðarforkar á ferð og sáust faglegir og öruggir taktar með stungurekur, kantskera, hrífur, klórur, rekur og hjólbörur. Seinni hlutinn verður unninn í næstu viku. Lesa meira...
30.04.2009
Rútuferðir í prófunum.
Prófin hefjast mánudaginn 4. maí. Rútuferðir verða 30 mín. seinna en venjulega frá Reyðarfirði. Brottför kl. 08.05. Frá Eskifirði 08.20. Brottför frá Neskaupstað kl. 11.15. Aðrar rútuferðir milli staða eru í tenglsum við flugáætlanir.
30.04.2009
Górillur á ferð í Neskaupstað í dag.
Það sluppu 22 górillur úr dýragarði VA í nótt og ganga nú lausum hala um Neskaupstað. Það er ljóst að þær verða fangaðar þegar líður á daginn. Við vonum að bæjarbúar taki þeim vel og að allt fari vel fram.
29.04.2009
Síðasti kennsludagur runninn upp.
Síðasti kennsludagur VA er 30. maí. Mánudaginn 4 maí er fyrsti prófadagur. Hægt er að nálgast próftöfluna á heimasíðunni. Undirbúningur fyrir próf byggir á lærdómi, næringu og hvíld. Aðbúnaður og vinnuaðstaða er til staðar í VA virka daga, sumum gæti hentað vel að nýta bókasafnið. Gangi ykkur vel.
23.04.2009
Sumarkoma.
Gleðilegt sumar kæru nemendur og aðstandendur. Nú er nákvæmlega ein vika eftir í kennslu á vorönninni. Síðasta fjarvistartímabilið er í lok næstu viku og mikilvægt að nemendur mæti vel út önnina.
21.04.2009
Þjóðleikur - lokahátíð á Egilsstöðum.
Föstudaginn 23 og laugardaginn 24 apríl er lokahátíð Þjóðleiks, verkefnis Þjóðleikhússins og áhugaleikhúsa á Austurlandi. Djúpið - leikfélag VA mun sýna Eftir lífið sem þau settu upp í mars í leikstjórn Katrínar H Sigurðardóttur. Sýningar þeirra verða á föstudag kl. 19.00 og laugardag kl. 10.00 f.h.. Þeir sem ekki sáu verkið í VA hafa þarna tækifæri til að sjá þessa frábæru sýningu og ásamt fjölmörgum öðrum sýningum. Góða skemmtun. Nánari upplýsingar um leiksýningarnar er að finna á www.leikhusid.is/?PageID=836
17.04.2009
Ferð til Akureyrar vegna söngkeppni framhaldsskólanna.
Að gefnu tilefni viljum við láta foreldra og aðra aðstandendur vita að skólinn tekur ekki ábyrgð á nemendum sem fara til Akureyrar vegna söngkeppni framhaldsskólanna. Nemendur sem fara norður eru á egin vegum.
14.04.2009
Fyrirlestur um geðheilsu og þunglyndi.
Miðvikudaginn 15.04 kl. 20.00 verður opinn fundur um geðheilsu og þunglyndi í sal Nesskóla. Það er Salvör Bjarnadóttir verkefnisstjóri "Þjóðar án þunglyndis" sem verður aðal fyrirlesari fundarins. Það er von okkar að allir sem láta geðheilsu ungmenna sig varða mæti og fræðist. Aðstandendur nemenda VA eru hvattir sérstaklega til að mæta.
14.04.2009
Lokasprettur vorannar í VA
Kennsla hefst á morgun miðvikudag 15.04 eftir páskafrí. Það eru 11 dagar eftir af kennslu vorannar. Þessa daga þurfa nemendur að nýta vel; mæta, skila fyrirlögðum verkefnum, sinna náminu og ekki síst að hefja undirbúning fyrir próf.
07.04.2009
Páskafrí í VA.
Skrifstofa VA verður lokuð frá 7. - 14. apríl. Kennarar og starfsfólk óska nemendum og aðstandendum þeirra gleðilegra páska.
02.04.2009
Páskafrí nálgast.
Síðasti kennsudagur fyrir páska er á morgun föstudag. Kennsla hefst aftur miðvikudaginn 15. apríl. kl. 08.30, akademían byrjar 07.30. Það er von okkar að nemendur endurnæri sig vel og komi fullir orku í lokasprett annarinnar fram í maí.
30.03.2009
Ófærð.
Í dag 30.mars er hávetur í veðurkortunum og ekkert ferðaveður. Þeir nemendur sem ekki komast í skólann í dag þurfa að vera duglegir að skoða kennsluvefinn og fylgjast með þar, vinna þau verkefni sem upp eru gefin og vera svo undirbúnir í tíma á morgun. Gangi ykkur vel.
26.03.2009
Páskafrí nálgast.
Í dag er viku kennsla eftir fram að páskafríi. Það er mikilvægt að allir skili þeim verkefnum sem liggja fyrir og hnýti alla enda varðandi mætingu, vottorð og þ.h.. Gangi ykkur vel.
20.03.2009
Miðnætursýning - lokasýning á Eftir lífinu.
Í kvöld kl. 00.00 verður lokasýning á Eftir lífinu í leikstjórn Katrínar H Sigurðardóttur. Sýningar hafa gengið vel og erum við afar stolt af leikurum og aðstandendum sýningarinnar sem hafa unnið frábært starf. Njótið vel.
20.03.2009
Gestir í VA.
Í dag koma góðir gestir til okkar frá Fáskrúðsfirði og Stöðvafirði. Þetta eru nemendur efstu bekkja grunnskóla sem koma og fræðast um skólann. Þau fara m.a. í smiðjur og fá að fylgjast með nemendum okkar í verknáminu.
17.03.2009
Fáar sýningar eftir.
Nú fækkar óðum sýningum á Eftir lífinu. Við hvetjum þá sem ætla í leikhús að ganga frá miðum sem fyrst til að tryggja að þeir komist á sýningu. Góður rómur hefur verið gerður að sýningunni sem sýnd hefur verið fyrir fullu húsi fram til þessa. Góða skemmtun.
10.03.2009
Háskólakynning í ME.
Næstkomandi fimmtudag verður háskólakynning fyrir alla nemendur sem hyggja á háskólanám eftir framhaldsskóla. Kynningin verður í ME. Rúta fer frá VA kl. 12.00 og heim kl. 15.15. Það er mikilvægt að nemendur skrái sig hjá ritara á kynninguna. Þarna gefst gott tækifæri til að kynna sér námsframboð í öllum 8 háskólum landsins.
09.03.2009
Kynningar fyrir grunnskólanema.
Sl. fimmtudag og föstudag mættu nemendur grunnskóla á Austurlandi í kynningu í VA. Þar fengu þau upplýsingar um námsframboð í skólanum frá Hrönn Grímsdóttir námsráðgjafa. Einnig hittu þau nemendur sem fræddu þau um félagslífið í skólanum, fengu að fara í valdar smiðjur í verknáminu og fengu smá hressingu í boði skólans. Það er von okkar að þau hafi farið heim reynslunni ríkari og verður tekið vel á móti þeim í haust ef þau velja VA sem framhaldsskólann sinn.
08.03.2009
Sýningar hafnar á Eftir lífinu.
Frumsýning Leikfélagsins Djúpsins á Eftir lífinu í leikstjórn Katrínar H Sigurðardóttur gekk frábærlega s.l. föstudagskvöld fyrir fullu húsi og skemmtu leikhúsgestir sér vel á einkar frumlegri uppsetningu. Leikmynd er vel hugsuð og nýtist kennslustofa 1 vel. Í lok sýningar var leikarahópnum og leikstjóra vel fagnað. Sýningar verða á eftirfarandi dögum: Mánudag 9.mars – kl: 20.30 Miðvikudag 11.mars – kl: 20.30 Fimmtudag 12.mars – kl: 20.30 Mánudag 16.mars – kl: 20.30 Miðvikudag 18.mars – kl: 20.30 Fimmtudag 19.mars - kl: 20.30 AUKASÝNING Föstudag 20.mars - kl: 00.00 MIÐNÆTURSÝNING - LOKASÝNING Miðapantanir í síma: 847-7806 milli kl. 16 - 18. virka daga. Góða skemmtun.
04.03.2009
Frumsýning á Eftir lífinu nálgast
Lokaæfingar standa yfir á Eftir lífinu í leikstjórn Katrínar H Sigurðardóttur. Frumsýning verður nk. föstudag kl. 20.30 í VA. Hægt er að nálgast miða í síma 847-7806 hjá Soffíu kl. 16 - 18. Örfá sæti eru laus á frumsýninguna.
02.03.2009
HAM - hugræn atferlismeðferð í VA.
Boðið verður upp á námskeið í hugrænni atferlismeðferð fyrir nemendur VA. Orri Smárason sálfræðingur hjá HSA heldur námskeiðiðið. Hugræn atferlismeðferð er sú gerð sálfræðimeðferðar sem hlotið hefur mestan rannsóknarstuðning. Á HAM námskeiði lærir fólk aðferðir til að takast á við margskonar tilfinningalega vanlíðan svo sem kvíða, þunglyndi, streitu og óöryggi. Námskeiðið byggir á fræðslu, umræðu og einföldum heimaverkefnum. Engin krafa er gerð um að neinn tali fyrir framan hópinn eða ræði sín persónulegu mál. Námskeiðið mun hefjast 6. mars og verður einu sinni í viku í sex skipti í Verkmenntaskólanum. Kennt verður á föstudögum kl 14-16. Þeir sem vilja skrá sig gera það hjá Hrönn Grímsdóttur náms- og starfsráðgjafa VA, í síma 4771620 eða hronn@va.is
23.02.2009
Opnir dagar - rútur og hópar.
Nú hafa verið birt nöfn þeirra sem hafa valið hópa. Þau eru birt við anddyrin. Einhverjir hafa ekki valið sem er miður því þeir hinir sömu fá fjarvist þessa daga, m.ö.o. það er skyldumæting á opna daga. Kennt er tvo fyrstu tímana á þriðjudag og svo hefst dagskrá, sjá hér neðar á síðunni. Á miðvikudaginn eru Austfirsku Ólympíuleikarnir í ME á Egilsstöðum. Þangað er líka skyldumæting. Rútutímar hafa verið auglýstir í skólanum. Fimmtudagur og föstudagur eru þéttskipaðir af skemmtilegum uppákomum og það eiga allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Upplýsingar um staðsetningar atburða og námskeiða er að finna á veggjum skólans. Rútuferðum hefur verið breytt fim og föst morgna, einnig auglýst í skólanum. Munið að taka með græjur í þá atburði sem þið hafið valið, sundföt á kajaknámskeið, myndavélar í ljósmyndahóp o. fl. Góða skemmtun á opnum dögum.
20.02.2009
Söngkeppni VA
Söngkeppnin fór vel fram í Nesskóla og tóku 7 keppendur þátt við undirleik Húsbands Frú Lúlú. Öll atriðin voru metnaðarfull og átti dómnefnd erfitt með að velja úr hópnum. Sigurvegari söngkeppninnar var Soffía Anna H Herbertsdóttir, söng hún lagið “Halelúja” við íslenskan frumsaminn texta eftir systur sína, Hönnu Lísu. Takk fyrir frábæra skemmtun og til hamingju keppendur með fína frammistöðu. Lesa meira...
19.02.2009
Dagskrá opinna daga
Hér er dagskrá opinna daga. Nemendur verða að vera í einhverjum hóp alla daga. Sumir hópar eru bara fyrir hádegi, aðrir eftir hádegi og enn aðrir allan daginn. Nemendur velja því amk 6 atriði fyrir hvern dag (3 fyrir hádegi og 3 eftir hádegi), eða hópa sem er yfir allan daginn og forgangsraða þeim 1, 2,3. Ef nemendur velja hóp sem er stjörnumerktur þá eru það hópar sem ná yfir lengri tíma. Smelltu á "Meira" til að sjá dagskránna. Lesa meira...
19.02.2009
Söngkeppni VA - undankeppni
Í kvöld verður undankeppni VA fyrir söngkeppni framhaldsskólanna sem haldin verður í lok annar á Akureyri. Keppnin hefst kl. 20.00 í sal Nesskóla. Aðgangur er ókeypis og öllum opin. Hljómsveitarstjóri er Guðjón Birgir Jóhannson. Dómarar verða Jón Hilmar Kárason, Anna Hlíf Árnadóttir og Þorvarður Sigurbjörnsson. Góða skemmtun.
16.02.2009
Hugræn atferlismeðferð - HAM fyrir nemendur VA.
Boðið verður upp á námskeið í hugrænni atferlismeðferð fyrir nemendur VA. Orri Smárason sálfræðingur hjá HSA heldur námskeiðiðið. Hugræn atferlismeðferð er sú gerð sálfræðimeðferðar sem hlotið hefur mestan rannsóknarstuðning. Á HAM námskeiði lærir fólk aðferðir til að takast á við margskonar tilfinningalega vanlíðan svo sem kvíða, þunglyndi, streitu og óöryggi. Námskeiðið byggir á fræðslu, umræðu og einföldum heimaverkefnum. Engin krafa er gerð um að neinn tali fyrir framan hópinn eða ræði sín persónulegu mál. Námskeiðið mun hefjast 6. mars og verður einu sinni í viku í sex skipti í Verkmenntaskólanum. Kennt verður á föstudögum kl 14-16. Þeir sem vilja skrá sig gera það hjá Hrönn Grímsdóttur náms- og starfsráðgjafa VA, í síma 4771620 eða hronn@va.is
16.02.2009
Margt í gangi í VA.
Kynningarfundurinn um Ungt fólk 2007 gekk vel á fimmtudagskvöldið, þangað mættu áhugasamir foreldrar ásamt kennurum VA. Námskynning frá háskóla í Esbjerg í Danmörku tók á móti nemendum í bítið í dag, mánudag, þar sem möguleikar eru miklir til ýmisskonar náms. Þá verður undankeppni VA fyrir Söngvakeppni framhaldsskólanna haldin í Nesskóla nk. fimmtudagskvöld kl. 20.
12.02.2009
Fyrirlestur um neyslu nemenda í VA.
Í kvöld munu rannsakendur frá HR koma til að útskýra niðurstöður úttektar á VA úr rannsókn sem gerð var á landsvísu árið 2007 um lífstíl og neysluhegðun ungs fólks. Þá verður Steinar Gunnarson lögreglumaður á fundinum ef spurningar vakna um stöðu mál í dag. Allir foreldrar nemenda í VA hafa þegar fengið bréf um þennan fund en allir foreldrar ungmenna í Fjarðabyggð eru velkomnir. Fundurinn verður í sal Nesskóla kl. 20.00.
11.02.2009
Umgengni í VA
Nú þegar snjór er úti er afar mikilvægt að nemendur og gestir í VA fari úr útiskóm í anddyri. Bleyta getur verið lífshættuleg á bónuðum dúkum. Það sama á við í verkkennsluhúsi skólans.
09.02.2009
Lampasöfnun leikfélagsins Djúpsins.
Lampasöfnun leikfélagsins Djúpsins. Þessa dagana stendur undirbúningur og æfingar leikfélagsins á fullu fyrir Eftirlífið eftir Sigtrygg Mangason í leikstjórn Katrínar H Sigurðardóttur. Frumsýning er áætluð þann 6. mars í VA. Leikhópinn bráðvantar lampa fyrir leikmyndina. Lamparnir meiga vera allavega, litlir, stórir, fallegir, ljótir, gamlir, nýir. Þeir sem geta lagt hópnum lið vinsamlegast hafið samband við skólann, 477-1620. Lesa meira...
06.02.2009
Þorrablót VA
Þorrablót VA fór vel fram á föstudagskvöldið. Þar mættu nemendur prúðbúin og skemmtu sér vel. Norðfirðingurinn Hlynur Ben fór á kostum sem veislustjóri, hélt salnum við efnið með söng og glensi. Það er þó ekki á neinn hallað þegar nefndir eru sérstaklega þeir Jóhann Óli formaður NIVA og Ólafur Freyr varaformaður sem lögðu mikla vinnu í vídeó klippur, annál og dagbókarskrif. Skemmtu allir sér vel yfir léttu gríni þeirra, efnilegir uppistandarar þar. Lesa meira...
28.01.2009
Undirbúningur VA blóts og leiksýninga.
Þessa dagana er allt á fullu í undirbúningi fyrir þorrablót VA þann 6. febrúar sem haldið verður í Egilsbúð. Leikfélagið Djúpið er einnig á fullu við æfingar á Eftirlífinu eftir Sigtrygg Magnason. Áætlað er að frumsýna verkið þann 6. mars í Verkmenntaskólanum. Nánar um það síðar. Gettu bettur þátttöku skólans lauk á mánudag þegar lið VA keppti við Borgarholtsskóla sem vann drengilega keppni. Við erum stolt af okkar keppendum sem stóðu sig með prýði. Nú fylgjast allir landsmenn með úrslitum keppninnar sem hefst í ríkissjónvarpinu fljótlega.
26.01.2009
Gettu betur stund á heimavistinni.
Í kvöld, mánudaginn 26. janúar verður Gettu betur súkkulaðikaka og mjólk á heimavistinni kl. 19.45. Það er um að gera að mæta og klappa fyrir okkar krökkum og sýna þeim samstöðu. Þau keppa við Borgarholtsskóla. ÁFRAM VA.
25.01.2009
Lok fyrsta fjarvistartímabils í vikunni.
Nú rennur upp síðasta vika fyrsta fjarvistartímabils, það er mikilvægt að allir fari vel yfir skólasóknarreglur og að öll vottorð skili sér til ritara. Það er krafa um að allir mæti í alla tíma, rétt eins og gert er á vinnumarkaði. Nemendur eru í æfingabúðum fyrir komandi ár og mikilvægt að temja sér góða mætingu og vinnureglur.
20.01.2009
Gettu betur - önnur umferð.
Lið VA hafði betur í viðureign sinni við Framhaldsskólann á Laugum í gær. Dregið var í framhaldinu og andstæðingur VA í næstu umferð verður Borgarholtsskóli. Það er mikil vinna framundan hjá liðinu okkar því Borgó er verðugur andstæðingur. Um 35 nemendur og starfsmenn fylgdust með keppninni í útvarpinu í matsal heimavistar þar sem boðið var upp á mjólk og skúffuköku.
19.01.2009
Íþróttavakning í framhaldsskólum - sund.
Þessa viku er sund á dagskránni. Allir nemendur fá kort hjá stjórn NIVA til að framvísa í sundlaugum í Fjarðabyggð. Eftir 200. m. sund er stimplað á þau. Keppnin snýst um að sem flestir syndi alla daga vikunnar og skólinn fái sem flest stig en eitt stig er gefið fyrir hverja 200 m. Nú ríður á að mæta í sund og synda 200 m. Frítt er í laugar í Fjarðabyggð fyrir nemendur með sundkort.
19.01.2009
Gettu betur í kvöld kl. 20.00 á Rás 2.
Til að auka spennu og samstöðu er mjólk og súkkulaðikaka í kvöld kl. 19.30 á heimsvistinni í boði VA . Þar ætlum við að fylgjast með okkar fólki sem keppir við Framhaldsskólann á Laugum. Áfram VA.
16.01.2009
Gettu betur
Í gær fimmtudag var æfing fyrir Gettu betur lið VA. Þar kepptu kennarar og lið skólans. Keppinn var æsispennandi, nemendur unnu með 35 stigum gegn 32 stigum kennara. Liðið er skipað Halli Ragnari Haukssyni, Kristínu Hrönn Halldórsdóttur og Martin Sindra Rosenthal. Lið kennara í gær var skipað Jóhanni Zoega, Ingibjörgu Þórðardóttur og Þorvarði Sigurbjörnssyni. Lið VA keppir í fyrstu umferð nk. Mánudag kl. 20.00 við Framhaldsskólann á Laugum í hljóðveri Rásar 2 á Egilsstöðum. Við óskum þeim velfarnaðar. Lesa meira...
15.01.2009
Jöfnunarstyrkur
Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is Hægt er að skrá umsókn á Innu eða netbankanum! Ath. að þeir sem völdu aðstoðartíma ?Allt árið? þegar sótt var um vegna náms á haustönn 2008 þurfa ekki að endurnýja umsókn vegna vorannar 2009. Ef nemandi skipti um skóla frá því þegar umsókn var skráð þarf að tilkynna það til LÍN (lin@lin.is) Umsóknarfrestur vegna skólaársins 2008-2009 er til 15. febrúar Lánasjóður íslenskra námsmanna Námsstyrkjanefnd Lesa meira...
12.01.2009
Djúpið - leikfélag.
Leikfélagið Djúpið er komið af stað með leiksýningu vetrarins í samstarfi við Þjóðleik. Í kvöld verða prufur fyrir val á leikendum í leikritið Eftirlífið eftir Sigtrygg Magnason sem æfingar eru að hefjast fyrir. Leikstjóri verður heimakonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir stúdent frá VA vorið 2008. Áhugasamir eiga að mæta i matsal heimavistar kl. 19.45 í kvöld, 12.01.
12.01.2009
Sveinspróf í VA og IH.
Í desember luku 6 nemar sveinsprófi í húsasmíði frá VA, verkefni þeirra var að smíða stiga. Gekk það vel hjá öllum. Þá luku 3 nemar sveinsprófi i háriðn eftir 5 annir í VA, frá Iðnskólanum í Hafnarfirði í liðinni viku. Gekk það einnig vel hjá þeim. Óskum við öllum til hamingju með lok náms sem og öllum sem luku námi frá skólanum í desember. Þessir nemendur munu útskrifast frá VA þann 23. maí í Kirkju og menningarmiðstöðinni í Fjarðabyggð.
06.01.2009
Kennsla á vorönn og rútuferðir
Kennsla hefst á morgun miðvikudag samkvæmt stundarskrá. Það er mikilvægt að allir mæti vel strax frá fyrsta degi. Nemendur/aðstandendur munið að hringja fyrir 11.00 ef um veikindi er að ræða. Rútuferðir verða eins og áður, fyrsta ferð frá Reyðarfirði kl. 07.35 og svo koll af kolli. Þeir sem ekki hafa greitt skólagjöld komast ekki í innu og geta ekki hafið nám.
02.01.2009
Upphaf vorannar
• Opnað verður fyrir stundaskrár í INNU kl. 13:00 þriðjudaginn 6. janúar n.k. fyrir þá nemendur sem hafa greitt skólagjöldin. • Nýjir nemendur þurfa að nálgast aðgangsorð í INNU á skrifstofu skólans • Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 7. janúar 2009. • Bókalisti annarinnar er undir Námið-vorönn 2009 Lesa meira...
31.12.2008
Laust pláss í VA á vormisseri.
Ennþá er hægt að taka við nemendum í skólann fyrir vorönn 2009.Það eru einnig laus pláss á heimavistinni . Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 477-1620 föstudaginn 2. janúar milli 10 - 14. Skólinn opnar mánudaginn 5. janúar kl. 09.00. Starfsfólk VA óskar öllum gleðilegs nýs árs með þökk fyrir það liðna.
22.12.2008
Jólafrí og opnun skrifstofu.
Skrifstofa skólans verður lokuð á Þorláksmessu og aðfangadag. Opið verður frá 10.00 - 14.00 29. des. og 30. desember. Skrifstofan opnar þann 5. janúar kl. 09.00. Starfsfólk Verkmenntaskóla Austurlands óskar nemendum, aðstandendum og velunnurum Gleðilegra jóla og heillaríks komandi árs.
22.12.2008
Námslok á haustmisseri
14 nemendur luku námi nú á haustönn. Óskum við þeim innilega til hamingju með það. Þau útskrifast 23. maí ásamt 29 nemum af vormisseri.
15.12.2008
Rútuferðir þann 18.12.
Afhending einkunna verður á fimmtudaginn 18. des. kl. 10.30 og prófasýningar í kjölfarið til 12.30. Þann dag fer rútan frá Reyðarfirði kl.09.35 og frá Eskifirði kl. 09.50. Brottför verður frá VA kl. 12.30. Rútuferðir verða síðan á vorönninni eins og verið hefur í haust. Nánar um það síðar.
12.12.2008
Lokadagar haustannar 2008.
Framundan eru tveir síðustu dagar prófa, auk sjúkraprófa þann 16.desember. 18. desember kl. 10.30 verður afhending einkunna hjá nemendum yngri en 18 ára og opnað fyrir niðurstöður prófa á Innu hjá eldri nemendum. Prófasýning verður í skólanum frá kl. 11.00 - 12.30 sama dag. Nemendur eru hvattir til að skoða próf sín og fara yfir þau, það getur verið gagnlegt fyrir alla.
05.12.2008
Rútuferð á laugardögum prófatímabilsins.
Rútan fer á sama tíma frá Reyðarfirði á morgun og næsta laugardag, eins og undanfarna morgna, kl. 08.05. Heimferð verður frá VA kl. 11.15 báða laugardagana. Gangi ykkur áfram vel í prófunum.
03.12.2008
Kennslu lokið á haustönn 2008. Breyting á fyrstu rútuferð á morgnanna.
Kl. 12.35 í dag, 3. des. lauk kennslu í VA þetta árið. Próf hefjast 4.des. kl. 09.00. Fyrsta rútuferð færist aftar um 30 mín. alla prófadaga (líka laugardaga) aðrar ferðir haldast óbreyttar. Bestu óskir um gott gengi í prófunum.
03.12.2008
Styrkir til VA.
Verkmenntaskólinn fékk tvo styrki frá SÚN - samvinnufélagi útgerðamanna í Neskaupstað 2.desember. Leikfélagið Djúpið fékk 400.000 þúsund krónur til uppsetningar á Þjóðleiks leikriti á vorönn 2009. Þá fékk íþróttaakademían 300.000 þúsund króna styrk fyrir rekstrarkostnaði. Í haust hafa 15 nemendur verið í akademíunni og verður fjölgun nemenda á vorönn. Þessir styrkir munu styrkja starfsemi skólans mikið og erum við þakklát og hræð yfir jákvæðum undirtektum stjórnar samvinnufélagsins.
03.12.2008
Jólastund nemenda og starfsfólks VA.
Annan desember var árleg jólastund nemenda og kennara í Verkmenntaskólanum. Þar komu nemendur og starfsfólk saman, sungu jólalög við undirleik Ágústar Ármanns, hlustuðu á jólasögu sem Pjetur St. Arason las, drukku jólaöl og borðuðu piparkökur. Síðan héldu allir aftur í tíma og héldu námi áfram. Lesa meira...
28.11.2008
Tilnefning til verðlauna
Verkmenntaskólinn hefur verið tilnefndur til verðlauna fyrir framkvæmd á og lokaskýrslu um Leonardo verkefni. Er verkefni skólans meðal níu verkefna sem tilnefnd eru sem voru valin úr fimmtíu og fimm verkefnum sem unnin voru á árunum 2005 til 2006. VA verkefnið snérist um gagnkvæmar heimsóknir kennara og nemanda Verkmenntaskólans og John Bauer skólans í Värnamo í Svíþjóð. Nánar er hægt að fræðast um verkefnið á heimasíðu skólans. www.va.is/Ýmislegt/Ferð til Värnamo. Skólinn er afar stoltur af þessari tilnefningu.
26.11.2008
Hugsa fyrst - kaupa svo
Þann 27. nóvember verður erindi um kauphegðun. Þetta er sígilt umræðuefni og nauðsynlegt núna þegar fólk þarf að ígrunda vel það sem á að eyða fjármunum í. Nánari upplýsingar um erindið er að finna á vef nemendafélagsins www.niva.is.
20.11.2008
Gettu betur lið VA.
Gettu betur lið VA var valið eftir drengilega innanhússkeppni sem kennarar skólans stóðu fyrir. Samdar voru spurningar í öllum flokkum og niðustaða varð að lið VA er skipað Halli Hauksyni, Kristínu Hrönn Halldórsdóttur og Martin Sindra Rosenthal, varamaður sem æfir með liðinu er Jón Björgólfsson. Þjálfari er Óskar Ágúst Þorsteinsson fyrrverandi Gettu betur keppandi VA.
18.11.2008
Stutt í annarlok.
Í dag eru réttar tvær vikur eftir af kennslu á haustönninni. Mikilvægt er að allir leggist á eitt um að ljúka þeirri vinnu sem eftir er með glans. Síðasta fjarvistatímabil er runnið upp og ættu allir að skoða mætingu sína til að tryggja að missa ekki próftökurétt í blálokin. Skólasóknarreglur eru á heimasíðunni og gott að rifja þær upp.
13.11.2008
Próftækni og prófkvíða námskeið fyrir nemendur VA.
Fyrri hluti námskeiðsins verður í dag fimmtudag 13. nóvember kl. 10.50 í stofu 1. Seinni hlutinn verður miðvikudaginn 19.nóv. kl. 9.35 í stofu 11. Það er Hrönn Grímsdóttir námsráðgjafi sem sér um þessi námskeið. Þau eru nemendum að kostnaðarlausu.
12.11.2008
Heilsuefling í VA
Stór hópur nemenda skokkaði eða gekk 3 km um bæinn um 11 í morgun. Þar með voru nemendur að stimpla sig inn í hreyfi - forvarnar- og heilsueflingarátak það sem Menntamálaráðuneytið hefur hrundið af stað. Næsta uppákoma verður í janúar. Það voru nemendur í íþróttaakademíunni og nemendafélaginu sem sáu um framkvæmdina .
10.11.2008
Foreldra/aðstandenda fundur fyrir nemendur í VA sem ekki eru lögráða, fædd 1992 og 1991.
Næstkomandi miðvikudag kl. 20.00 verður fundur í VA fyrir aðstandendur nemenda fædda 1991 og 1992. Á þessum fundi verður skólinn kynntur og helstu mál sem snúa að þessum aldurshópi rædd. Það er mikilvægt að sem flestir sjái sér fært að mæta. Samkvæmt nýjum lögum sem samþykkt voru frá Alþingi í vor og tóku gildi 1. ágúst sl. eru allir foreldrar ungmenna á umræddum aldri sjálfkrafa meðlimir í foreldraráði VA, gr. 50. Stefnt er á að kjósa foreldraráð á fundinum. Kaffiveitingar verða á boðstólum.
10.11.2008
Sundlaugin opin í kvöld fyrir VA nemendur o.fl.
Í dag 10. nóvember og mánudaginn 17. nóv. verður sundlaugin á Neskaupstað opin til 22.00 í stað 20.00. Þetta er tilraun til að bjóða ungmennum í Fjarðabyggð upp á meiri afþreygingu og skemmtilegan möguleika til að eyða tíma sínum í góðra vina hópi í þessu glæsilega mannvirki.
04.11.2008
Námskynning frá HA
Á miðvikudag verður námskynning frá Háskólanum á Akureyri. Þarna gefst verðandi háskólastúdentum gott tækifæri til að kynna sér flestar brautir skólans en á kynningunni verða nemendur frá HA tilbúnir að svara spurningum um námið. Kynningin er öllum opin. Hún hefst kl. 14.15 og verður í stofu 5.
04.11.2008
Kaffihúsið Nesbær
Nesbær hefur aukið þjónustu við bæjarbúa með því að opna Kaffihúsið á þriðjudagskvöldum frá 20 - 22.30. Þar gefst nemendum kostur á að hittast, spjalla og spila á spil með heitu kakói á góðu verði. Þatta er tilbreytinga í afþreyingu ungmenna í Fjaraðbyggð.
31.10.2008
Menningarferð til Akureyrar
Í dag föstudag munu nemendur VA halda í menningarferð til Akureyrar. Þau gista þar á Gistiheimili Akureyrar, ætla í leikhús að sjá Músagildruna, sýna sig og sjá aðra. Við erum sannfærð um að þau verða skólanum sínum til sóma. Heimkoma er áætluð síðdegis á sunnudag.
29.10.2008
Starfsbraut í VA
Í haust tók til starfa starfsbraut í VA. Í deildinni eru þrír nemendur sem koma bæði úr Fjarðabyggð og af Fljótsdalshéraði. Þriðjudaginn 28. október komu góðir gestir frá Kvenfélaginu Nönnu í Neskaupstað í heimsókn og færðu brautinni stafræna myndavél. Nemendur og kennarar tóku á móti þeim með kaffi og meðlæti. Á myndinni afhendir Ragnheiður Hall formaður kvenfélagsins Olgu Lísu skólameistara gripinn. VA færir Kvenfélaginu Nönnu sínar bestu þakkir fyrir gjöfina Lesa meira...
27.10.2008
Ný tímatafla á rútum
Nú hefur vetrardagskrá gengið í garð hjá Austfjarðaleið sem tengist flugáætlun að hluta. Það er mikilvægt að notendur kynni sér vel breytta tíma á brottförum bæði í og frá VA. Bent er á vefsíðu tímatöflu www.austfjardaleid.is Þar kemur ekki inn fyrsta ferð sem er óbreytt frá Reyðafirði kl. 07.35. frá Eskifirði 07.50.
21.10.2008
Valdagar í Verkmenntaskóla Austurlands
Valdagar í Verkmenntaskóla Austurlands Dagana 21. október – 7. nóvember eru valdagar í Verkmenntaskóla Austurlands. Þetta eru tæpar 3 vikur sem nemendur fá til að velja en aðaláhersla er lögð á að nemendur velji í vikunni 27. – 31. október. • Nemendur fæddir 1992 velja í lífsleiknitímum miðvikudaginn 22. október og föstudaginn 24. október. • Nemendur fæddir 1991 velja í umsjónartíma þriðjudaginn 28. október kl. 10:50 í stofu 1. • Nemendur sem eru eldri en 18 ára nálgast valblað hjá áfangastjóra og skila því til áfangastjóra í síðasta lagi 31. október. Nemendur eru hvattir til að skoða vel námsframboð vorannar 2009 sem liggur frammi hjá ritara og koma vel undirbúnir í valtímana.
16.10.2008
Löng helgi!!!
Löng helgi!!! Það verður frí frá kl.13:10 fimmtudag 16.okt. og kennsla hefst aftur kl.11:55 mánudag 20.okt. samkv. stundaskrá. Skólameistari.
Viðburðadagatal
< September 2010 >
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    
Hluti af viðmóti vefs

Símanúmer og aðrar upplýsingar | Aftur í flýtileiðir