Iðnmeistaranámi er í stórum dráttum skipt í tvo hluta, almennan hluta og sérgreinahluta eða fagnám. Almenni hlutinn, sem er sameiginlegur öllum iðngreinum, er kenndur í VA. Hann skiptist í almennar bóklegar greinar og rekstrar- og stjórnunargreinar.
Fyrirkomulag kennslu: Meðalnámstími er 3 annir. Námið fer fram í Verkmenntaskóla Austurlands og nemendur kennt verður samkvæmt stundaskrá frá kl. 18:00 á föstudag, laugardaga og sunnudaga. Gert er ráð fyrir að kennsla fari að einhverju leyti fram í myndkennslubúnaði VA, FAS, ME og jafnvel víðar.
Kostnaður: Samkvæmt reglum um öldungadeildarnám skal nemandi greiða 1/3 af kostnaði við námið. Miðað við 15-20 nemendur í námi er kostnaður við hverja önn áætlaður u.þ.b. 40.000 kr. Námsgögn eru greidd af nemendum eins og í öðru framhaldsnámi.
Fagnám: Fagnámið fer fram í móðurskólum viðkomandi iðngreina en getur verið í tengslum við VA eftir því sem um semst.
Almennar bóklegar greinar
| Íslenska | ÍSL242, 252 | 4 ein. |
| Erlend tungumál | ENS/DAN 212, 323 | ??5 ein. |
| Tölvunotkun | TÖL103 | 3 ein. |
| Viðskiptastærðfræði | STÆ243 | 3 ein. |
| Val iðngreinar | ??10 ein |
Stjórnunar- og rekstrargreinar
| Stjórnun | MST104 | 4 ein. |
| Kennsla/þjálfun | MKE102 | 2 ein. |
| Rekstrarumhverfi | MRU102 | 2 ein. |
| Bókhald og skjalavarsla | MBS101 | 1 ein. |
| Reikningsskil | MRS103 | 3 ein. |
| Valeiningar | Mismunandi eftir iðngreinum | 4-7 ein. |
Skipulag vorannar 2012
Eingöngu verður kennd stærðfræði á vorönn 2012




