„Pub“quiz á heimavistinni

Nemendafélagið hélt svokallað pubquiz á heimavist skólans í gærkvöldi (fimmtudagskvöld) fyrir nemendur og starfsfólk skólans. Ekki var um hefðbundið barsvar að ræða þar sem enginn var barinn en spurningarnar voru á sínum stað.  Mætingin var með besta móti og voru spurningarnar fjölbreyttar og skemmtilegar en þeim var skipt í þrjá flokka. Fyrst var spurt um kvikmyndir og tónlist, svo árið 2010 og þar á eftir fána og spjallþætti. Síðan kom aukaflokkur sem fjallaði um norska sjónvarpsþáttinn Skam þar sem kennaraliðið fór á kostum og tryggði sér sigurinn. 

                                                                         Sigurliðið