Afmælisstund í VA

Verkmenntaskóli Austurlands er 30 ára í ár og er eitt og annað gert í tilefni þess.

Í gær var nemendum og starfsfólki VA boðið í hádegismat í mötuneyti skólans. Nemendur í listaakademíu VA sáu um tónlistina á meðan borðhald fór fram og fluttu hugljúf jólalög.