Gettu betur

Gettu betur lið VA - á myndina vantar Jóhann Gísla
Gettu betur lið VA - á myndina vantar Jóhann Gísla

Mánudaginn 30. janúar mun Gettu betur lið Verkmenntaskóla Austurlands etja kappi við Menntaskólann á Ísafirði. Keppendur VA hafa verið duglegir að æfa í janúarmánuði en æfingar hófust nóvember. Lokaundirbúningurinn fyrir viðureignina á mánudaginn verður keppni við kennara skólans í dag, en sú hefð hefur skapast að keppendur skólans keppi við kennara sína skömmu fyrir fyrstu viðureign.

Eins og í fyrra munu þau Marta Guðlaug Svavarsdóttir, Þorvaldur Marteinn Jónsson og Sigurður Gunnþórsson keppa fyrir hönd VA. Auk þeirra hafa Jökull Sigurbjarnason, Hekla Gunnarsdóttir og Jóhann Gísli Jónsson æft með liðinu og verða til taks ef forföll verða. Þessi sex manna hópur hefur æft mikið og náð vel saman. Mikill hugur er í okkar fólki fyrir mánudaginn þó andstæðingurinn sé sterkur.