Gettu betur - önnur umferð

Lið Verkmenntaskóla Austurlands er komið áfram í aðra umferð í spurningakeppni framhaldsskóla, Gettu betur. Liðið mætir Menntaskólanum á Akureyri í 16 liða úrslitum mánudagskvöldið 6. febrúar.

VA var eitt af þremur tapliðum úr fyrstu umferð sem komst áfram á stigafjölda, en 3 stigahæstu tapliðin komust áfram. Hvetjum alla til að stilla á Rás 2 í kvöld kl. 19.30 og fylgjast með viðureign VA og MA.