Innritun á Starfsbraut (STB) er hafin

Innritun á Starfsbraut (STB) er hafin. Starfsbrautir eru fyrir nemendur sem hafa verið í námsverum eða í sérdeildum grunnskóla og/eða haft aðlagað námsefni. Innritunartímabilið er 1. febrúar til og með 28. febrúar.

Sótt er um í gegnum menntagatt.is með veflykli sem nemendur sækja sjálfir á síðuna.

Upplýsingar um Starfsbrautina í Verkmenntaskóla Austurlands veitir Margrét Perla Kolka Leifsdóttir (perla@va.is).

Hér má sjá uppbyggingu Starfsbrautarinnar í VA.