Nemandi í VA vinnur til verðlauna á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum

Daði Þór Jóhannsson, nemandi í grunndeild málm- og véltæknigreina við VA, náði frábærum árangri á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum, 15 – 22, ára sem haldið var í Hafnarfirði sl. helgi. Daði Þór landaði Íslandsmeistaratitli í þrístökki í flokki 16 – 17 ára pilta og nældi einnig í brons í langstökki.