Skólabyrjun

  • Skólasetning verður föstudaginn 19. ágúst kl. 8:30. Síðan taka við fundir með umsjónarkennurum og kennsla samkvæmt stuttri stundatöflu.
  • Skólaakstur hefst 19. ágúst.
  • Heimavistin opnar fimmtudaginn 18. ágúst kl. 18:00.
  • Nýnemar nota aðgangsorðið sitt úr menntagatt.is í INNU.
  • Ef lykilorðið er gleymt þá er hægt að fara inn á INNU.is og sækja þar um nýtt.
  • Bókalista er að finna á http://www.va.is/is/namid/bokalisti og nýjar bækur og ritföng eru m.a. til sölu í versluninni Tónspil.
  • Greiða þarf skólagjald til að hafa rétt á skólavist.