VA nemendur í jólaskapi

Nemendafélag VA bauð samnemendum og starfsfólki upp á notalega jólastund í morgun en í dag er síðasti kennsludagur annarinnar samkvæmt stundatöflum. Eftir helgi hefjast vinnustofu- og námsmatsdagar. 

Boðið var upp á mandarínur, piparkökur og kakó og að sjálfsögðu voru nokkur jólalög sungin. Margir nemendur og starfsmenn voru einnig jólalega klæddir en í dag var jólapeysudagur í skólanum. Mátti sjá jólasveinahúfur og jólapeysur af ýmsum toga og margar hverjar ansi litríkar - jafnvel blikkandi.