|
Kynning námsbrauta |
Listaakademía
Nám í háriðn
Nám í tréiðnum
Nám í rafiðn
Nám í vélvirkjun
Boðið verður uppá HAM námskeið í hugrænni atferlismeðferð á vorönn. Kennari er Orri Smárason sálfræðingur.
Á HAM námskeiði lærir fólk aðferðir til að takast á við margskonar tilfinningalega vanlíðan svo sem kvíða, þunglyndi, streitu og óöryggi.
Fyrsti tíminn verður fimmtudaginn 26. janúar kl 11:55 í stofu 9. Um er að ræða 6 skipti.
Skráning fer fram hjá Hrönn námsráðgjafa hronn@va.is fyrir þriðjudaginn 24. janúar
Það verða engar rútuferðir í og úr VA í dag vegna ófærðar og mikillar blindu á Oddskarði. Nemendur sunnan skarðs eru hvött til að fylgjast vel með á kennsluvefnum því það er kennt skv. stundarskrá í dag.
Einnig langar mig að ítreka við nemendur sem taka rútuna að vera vel búin daglega því ef þið þurfið út úr rútunni er ótækt að vera í þunnum sokkabuxum og lélegum skóm. Það er hávetur og mikilvægt að klæða sig í samræmi við það.
Boðið verður uppá HAM námskeið í hugrænni atferlismeðferð á vorönn. Kennari er Orri Smárason sálfræðingur. Á HAM námskeiði lærir fólk aðferðir til að takast á við margskonar tilfinningalega vanlíðan svo sem kvíða, þunglyndi, streitu og óöryggi. Fyrsti tíminn verður fimmtudaginn 26. janúar kl 11:55 í stofu 9. Um er að ræða 6 skipti.
Skráning fer fram hjá Hrönn námsráðgjafa hronn@va.is fyrir þriðjudaginn 24. janúar
Eins og er er ekki ráðlegt að fara yfir skarð. Fylgist áfram með, nýjar upplýsingar verða settar inn um kl. 12.20.
Sem stendur er Oddskarð ófært og rútan fer ekki. Við munum fylgjast með færð og veðri og biðjum nemendur sem ætluðu að taka rútuna og búa sunnan Skarðs að gera slíkt hið sama. Við munum athuga málið um 09.00. Fylgist vel með fréttum á þessari síðu í dag.
Rafdeild skólans fékk góðan gest í morgun, en starfsmaður rafmagnsvöruverslunarinnar Rönnig á Austurlandi, Örn Þorsteinsson kom færandi hendi.
Fyrirtækið gaf skólanum Hager rafmagnstöflur fyrir nemendur til að setja upp og tengja en það er einn af námsþáttum grunndeildar rafiðna. Þessar gjafir eru skólanum mikilvægar og gleðiefni. Við þökkum kærlega fyrir okkur.
Lesa meira...Lið VA háði drengilega baráttu við lið FVA á Rás 2 í kvöld og marði sigur eftir bráðabana 10 - 9. Krakkarnir stóðu sig vel og erum við afar stolt af frammistöðu þeirra. Nú bíðum við spennt eftir að heyra hverjir næstu andstæðingar þeirra verða. Til hamingju krakkar.
Fyrsta umferð liðs VA í spurningakeppninni Gettu betur fer fram í kvöld kl. 20.00 á Rás 2. Lið VA hefur undirbúið sig vel og er tilbúið í slaginn. Guðmundur Daði Guðlaugsson er þjálfari liðsins. Lið VA skipa Húnbogi Gunnþórsson, Guðjón Björn Guðbjartsson og Katrín Gunnarsdóttir. Við vonum að þau mæti spræk til leiks og geri sitt allra besta á móti liði Fjölbrautarskóla Vesturlands frá Akranesi. Áfram VA.
Að gefnu tilefni er mikilvægt að nemendur sem taka rútu til og frá skóla fylgist vel með og kynni sér vel þær breytingar sem hafa verið gerðar á tímatöflum rútuferða í Fjarðabyggð. Það kemur nemendum illa að missa af rútu í hvora áttina sem er.
Tímatöflur hanga uppi í báðum kennslubyggingum skólans.
Opnað hefur verið fyrir Innu og þar með stundarskrár nemenda. Nemendur þurfa sjálfir að prenta stundaskrárnar út. Kennsla hefst á morgun fimmtudag skv. stundaskrá. Fyrsta rútuferð frá Byko Reyðarfirði verður á morgun kl. 07.35 síðan gildir ný tímatafla um rúturferðir í Fjarðabyggð fyrir nemendur VA sem og aðra íbúa.
Kennsla í VA hefst fimmtudaginn 5. janúar kl. 8.30. Nemendur geta séð stundarskrár sínar í Innu miðvikudaginn 4. janúar kl. 15.00.
Heimavistin verður opnuð miðvikudaginn 4. janúar kl. 17.30. Fundur verður á vistinni með skólameistara og heimavistarstjóra á fimmtudaginn kl. 18.30. Mikilvægt er að allir nemendur heimavistar mæti.
Ný samgönguáætlun í Fjarðabyggð hefur í för með sér meira svigrúm fyrir nemendur til að komast á milli staða í Fjarðabyggð. Mikilvægt er að allir kynni sér vel þessa áætlun. Nemendur geta keypt annarkort eins og undanfarin misseri og þurfa að ganga frá því í fyrstu viku kennslu. Verðið fyrir nemendur eru 10.000 kr auk þess sem 20.000 kr. af jöfnunarstyrk þeirra verður dreginn af styrknum vegna ferðakostnaðar. Þetta á eingöngu við nemendur sem búa utan póstnúmers 740.
http://www.fjardabyggd.is/media/PDF/Samgongur_A3.pdf
Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með 22. desember. Skrifstofan opnar aftur þann 3. janúar 2012 kl. 10.00.
Opnað verður fyrir stundaskrár nemenda í Innu miðvikudaginn 4. janúar kl. 15.00.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 5. janúar kl. 08.30.
Lesa meira...
Rannsókn og greining (Háskólinn í Reykjavík) hafa rannsakað líðan og lífsstíl ungs fólks síðan 1992 og höfum við fengið skýrslur frá þeim þar sem niðurstöður nemenda VA eru bornar saman við landsmeðaltal. Núna í desember fengum við svo kynningu á þessum niðurstöðum sem og niðurstöðum frá unglingum í Fjarðabyggð á grunnskólaaldri. Þessar niðurstöður tengjast helst lífsstíl en á næstu önn munum við fá frekari skýrslu um líðan nemenda
Lesa meira...Opnað verður fyrir innu í dag, mánudag kl. 10.30. Þar geta nemendur séð útkomu prófa á haustönninni. Prófsýningin sem er í dag kl. 11.30 getur varpað ljósi á þá þætti lokaprófs sem nemendur þurfa frekari útskýringa við. Við hvetjum nemendur til að koma og skoða prófúrlausnir sínar.
Rútan fer frá Olís Reyðarfirði nk. mánudag kl. 10.30, frá Shell Eskifirði kl. 10.50. Prófsýning verður kl. 11.30 - 12.30.
Brottför frá VA verður kl. 12.45. Við hvetjum alla nemendur til að koma og skoða prófúrlausnir sínar.
Auglýsing verður í anddyri um staðsetningu kennara með prófin sín.
Síðastliðinn laugardag var haldin jólastund í Fél 413. Áfanginn gengur út á það að nemendur frá VA hitta nemendur frá grunnskólunum einu sinni í viku og gera ýmislegt skemmtilegt saman. Á jólastundinni var föndrað, spilað billjard, borðaðar smákökur og drukkið kakó. Auk þess sýndu nemendur VA ,,börnunum sínum" skólann sinn. Á myndinni má sjá hluta þeirra sem taka þátt í verkefninu.
Rútan fer frá Olís á Reyðarfirði kl. 08.05, frá Shell á Eskifirði 08.20 alla morgna á meðan á prófum stendur. Brottför er frá VA kl. 11.10.
Sá háttur er hafður á að ef rútunni seinkar vegna ófærðar eða veðurs þá hefjast próf þegar rútan kemur í skólann. Próftími allra eru tvær klukkustundir að hámarki.
Nemandi sem mætir of seint getur ekki hafið próf eftir að 45 mínútur eru liðnar af próftíma.
![]() |
Á morgun 1. desember er hefð fyrir því að halda litlu jólin í VA. Þá koma nemendur og starfsfólk saman í félagsaðstöðu nemenda syngja jólalög, borða piparkökur og drekka jólaöl með. Til viðbótar ætlum við að halda Gettu - betur æfingu fyrir nemendur en þeir munu etja kappi við starfsmenn í byrjun jólastundarinnar.
Á morgun fimmtudag verður síðasta hafragrautarveislan á önninni. Af því tilefni ætla fjórir starfsmenn VA að skemmta nemendum með söng. Söngvararnir eru á leið til Akureyrar ásamt kór Fjarðabyggðar um helgina til að syngja í Hofi - tónlistarhúsi Norðurlands. Þau sem skipa kvartettinn eru Björgúlfur Halldórsson, Heiðrún Helga Snæbjörnsdóttir, Margrét Perla Kolka og Þórður Júlíusson. Bæjarbúar eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir í austurenda VA (félagsaðstöðu nemenda).
Í dag eftir hádegi er nemendum fædd 1995 boðið á leiksýningu í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Þar munu þau sjá leikverkið Hvað ef ? eftir Guðmund Inga Þorvaldsson, Gunnar Sigurðsson og fleiri. Verkið hefur verið sýnt í Þjóðleikhúsinu og víðar. Þar eru dregnar fram kaldar staðreyndir varðandi neyslu vímuefna, einelti, sjálfsmynd og annað það sem brennur á unglingum á aldrinum 14-16 ára.
Það er afar kærkomið þegar nemendum á landsbyggðinni gefst slíkt tækifæri og erum við afar þakklát fyrir það. Nemendum úr elstu bekkjum grunnskóla er einnig boðið á sýninguna. Brottför frá VA er kl. 12.30 stundvíslega. Heimkoma er um 16.45.
Síðasta kennsluvika haustannar er runnin upp og afar mikilvægt er að nemendur nýti aðgengi að kennurum sem best þessa viku. Það er gert með því að mæta í tíma og vera undirbúin með spurningar ef eitthvað er óljóst varðandi námsefnið og komandi lokapróf í áföngum.
Að vanda höldum við 1. desember hátíðlegan í félagsaðstöðu nemenda um kl. 10.00 - 10.50. M.a. mun Gettu - betur lið skólans takast á við valinn hóp starfsmanna í léttri æfingu fyrir keppni vetrarins sem fram fer í upphafi árs 2012 á Rás 2.
Rútuferðir verða með hefðbundnu sniði í prófunum og verða þær auglýstar í lok þessarar viku.
Í morgun var öllum nemendum skólans safnað saman í félagsaðstöðu nemenda þar sem dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur.
Undanfarin ár hefur Jónasar Hallgrímssonar verið minnst. Að þessu sinni var ákveðið að tileinka Einari Braga Sigurðssyni Eskfirðingi daginn en hann hefði orðið 90 ára á þessu ári.
Eftir skelegga innsetningu Ingibjargar Þórðardóttur íslenskukennara var það hlutverk nemenda í íslensku 503 að taka saman æviágrip skáldsins og var það Sunna Þórðardóttir sem las það. Þar voru rifjuð upp helstu ritverk og trúnaðarstörf sem Einar Bragi sinnti. Fram kom í máli Sunnu að Einar Bragi gaf Grunnskólanum á Eskifirði grafíkmyndir úr einkaeigu sem og allt bókassafn sitt.
Að lokum flutti Katrín Hulda Gunnarsdóttir ljóð eftir skáldið.
Um helgina voru nemendur listaakademíu VA á leiklistarnámskeiði undir dyggri stjórn leikstjórans Guðjóns Sigvaldasonar.
Unnið var með allskyns hópefli og spuna, einnig fengu nemendur að elda fyrir hópinn sem vakti mikla lukku. Má með sanni segja að nemendur hafi staði sig frábærlega og farið á kostum í spunavinnunni.
Hár og tíska frá ýmsum þjóðum
Á dögum myrkurs settu nemendur á 3. önn í hárdeild VA upp sýningu í Þórsmörk. Sýningin var samvinnuverkefni þriggja áfanga: iðnfræði, iðnteikningar og hárgreiðslu.
Nemendur unnu meðal annars ritgerðir, teikningar og hönnuðu og útfærðu greiðslur á dúkkum og einnig á módelum. Allt var þetta til sýnis í Þórsmörk ásamt því sem nemendur kynntu landið sem þeir völdu í því rými sem þeir fengu úthlutað.
Lesa meira...Helgina 4.-6. nóvember lögðu 69 nemendur Verkmenntaskólans af stað í menningarferð til Akureyrar. Meðal þess sem nemendur gerðu sér til skemmtunar var að fara í keilu, bíó og á skauta. Á laugardagskvöldinu borðuðu þau tveggja rétta máltíð á Bautanum og fóru í leikhús að sjá Svörtu kómedíuna. Með í för voru félagslífsfulltrúar skólans Elvar og Perla auk foreldranna Oddnýjar Eddu Helgadóttur, Gunnþórs Ingvasonar, Arnars Guðmundssonar og Stefaníu Freysteinsdóttur. Foreldrar nemenda við skólann hafa stutt vel við bakið á skólanum og nemendafélaginu bæði með gæslu á viðburðum á vegum skólans, styrkjum og þátttöku í ýmiskonar hópastarfi.
Lesa meira...![]() |
Nemendur í hárdeild Verkmenntaskóla Austurlands verða með sýningu fimmtudaginn 10.nóvember í Þórsmörk. - listasmiðju Norðfjarðar. Yfirskrift sýningarinnar er „Hár og tíska frá ýmsum þjóðum“.
Þarna sýna nemendur 1. og 3. annar hárdeildar afrekstur vinnu sinnar í þremur áföngum, iðnfræði, iðnteikningu og hárgreiðslu. Þetta er gert með því að nemendur velja sér land/þjóð til að vinna með, skrifa ritgerð í iðnfræði, teikna myndir í iðnteikningu og vinna hárgreiðslur á æfingahöfðum í hárgreiðslu. Á sýningunni munu nemendurnir vinna ítarlegar með sitt þema á módelum og verða með uppstillingar verkefna í rýminu sem þeir fá úthlutað í Þórsmörk.
Á sýningunni verða nemendur á 1. önn einnig með verkefni sem þau vinna á æfingahöfðum í mismunandi útfærslum.
Þá munu nemendur af öðrum brautum vera með atriði á sýningunni í upplestri og tónlist.
Það eru kennarar hárdeildar sem stjórnað hafa undibúningi sýningarnar, þær Svanlaug Aðalsteinsdóttir, Eydís Ásbjörnsdóttir og Anna Bjarnadóttir.
Við vonumst til að sjá sem flesta.
Um þessar mundir er unnið að þjóðháttasöfnun um hefðir og siði í framhaldsskólum á vegum Þjóðminjasafn Íslands. Skólinn hefur, fyrir sitt leyti, samþykkt að söfnun þessi megi fara fram innan sinna vébanda. Tilgangur söfnunarinnar er að kynnast þeirri menningu sem ríkir meðal nemenda, og er hún jafnframt hluti af meistaraverkefni í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Aðallega er spurt um eigin reynslu nemenda og verða öll svör ópersónugreinanleg.
Þetta er alfarið rafræn upplýsingasöfnun þar sem svarað er með tölvupósti, en eingöngu er leitað til 18 ára nemenda og eldri. Allar nánari upplýsingar um söfnunina eru veittar í síma 5302273 og ennfremur er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið agust@thjodminjasafn.is.
Skólinn hvetur nemendur til að taka þátt í söfnuninni og stuðla þannig að því að varðveita mikilvæga þekkingu sem annars er hætt við að færi forgörðum. Frásagnir nemenda verða með tíð og tíma ómetanlegar heimildir um lífið í skólanum.
Þjóðminjasafnið hefur safnað heimildum um þjóðhætti með spurningaskrám í meira en hálfa öld. Svörin eru varðveitt í skjalasafni stofnunarinnar og hafa flest þeirra verið slegin inn í rafrænan gagnagrunn.
Það voru spenntir ferðalangar sem hófu menningarferðina frá Norðfirði í dag kl. 13.00. Síðan söfnuðu rúturnar tvær nemendum upp frá Eskifirði og Reyðarfirði. Nemendur fóru ekki einir heldur fóru tveir kennarar með, þau Perla og Elvar félagslífsfulltrúar ásamt fjórum foreldrum sem tóku áskorun um að fara í helgarferð með nemendum. Afar vel þegin stuðningur og mikilvægur. Nemendur munu fara í keilu, á skauta, í leikhús og út að borða. Þessi ferð er aðal skemmtun nemenda á haustönn og hefur stjórn NIVA unnið vel að skipulagningu ásamt Perlu og Elvari. Það er von okkar að ferðin gangi sem allra best, að nemendur skemmti sér vel, verði sjálfum sér, aðstandendum og skólanum sínum til sóma á Akureyri.
![]() |
Nú liggur fyrir niðurstaðan úr Gettu betur prófinu. Alls tóku 34 nemendur prófið - 15 stúlkur og 19 strákar. 50 spurningar voru í prófinu og höfðu nemendur að meðaltali 10,04 rétt svör. Sá sem kom best út úr prófinu hafði 25 rétt svör og sá næsti 23. Þeir sem komast í liðið hafa á bilinu 14,5 til 25 rétt svör. Þeir sem hafa verið valdir í liðið og komu best út úr prófinu eru (í stafrófsröð):
Guðbjartur Freyr Gunnarsson
Guðjón Björn Guðbjartsson
Hrönn Hilmarsdóttir
Húnbogi Sólon Gunnþórsson
Katrín Hulda Gunnarsdóttir
Sigrún Hilmarsdóttir
Smári Björn Gunnarsson
Þjálfari liðsins er Guðmundur Daði Guðlaugsson. Hann er 21 árs og stúdent af félagsfræðibraut frá V.A.. Guðmundur var fimm sinnum í Gettu betur liði skólans – m.a. síðastliðið skólaár.
Nemendur geta fengið að skoða niðurstöðu sína úr prófinu hjá Elvari eða sent póst á elvar@va.is .
Á velheppnuðum dansleik í gærkvöldi blésu 35 nemar í áfengismæli og staðfestu þannig að þeir hefðu ekki neytt áfengis. Nöfn þeirra voru síðan sett í pott, svokallaðan edrúpott, og nafn eins nemanda dregið út í morgun. Sú heppna að þessu sinni er Sylvía Hákonardóttir og fær hún þriggja fjarvistastiga frádrátt að launum. Rúmlega 70 gestir voru á dansleiknum sem fór mjög vel fram. Þrír foreldrar tóku að sér gæslu í sjálfboðavinnu og þökkum við þeim kærlega fyrir aðstoðina.
Vegna dansleiks sem haldinn verður í kvöld, fimmtudaginn 27. október á Rauða torginu verður gefið frí í fyrsta tíma á morgun, föstudag. Rútan fer því 40 mínútum seinna af stað frá Reyðarfirði og Eskifirði. Brottför verður kl. 08.15 frá Rf og kl. 08.25 frá Esk.
Það voru svangir nemendur sem tóku hraustlega til matar síns þegar þau fengu hafragraut og lýsi í morgunsárið í dag. Það er næringarhópur heilsueflingar sem stendur að þessari hugmynd og verður boðið upp á graut á fimmtudögum út önnina. Nokkrir nemendur mættu með eigin skálar aðrir fengu plastdiska að láni. Framvegis þurfa nemendur að mæta með eigin diska. Um 40 % nemenda þáðu graut á fyrsta degi.
Lesa meira...
Á miðvikudaginn 26. október kemur möguleikhúsið í heimsókn til okkar og sýnir okkur leikverkið Völuspá eftir Þórarin Eldjárn.
Leiksýningin fer fram í íþróttahúsinu kl. 9:00-10:00. Skyldumæting er fyrir nemendur á náttúru- og félagsfræðibraut. Aðrir nemendur eru einnig velkomnir á sýninguna.
Góða skemmtun
Fimmtudaginn 27. október er valdagur í VA. Kennsla fellur niður kl. 10:50 á meðan val fer fram en nemendur velja áfanga fyrir næstu vorönn. Mikilvægt er að nemendur hafi aðgang að Innu til að geta valið. Þessi tímasetning og framkvæmd á við dagskólanemendur VA. Nemendur sem eru í fjarnámi, nemendur á sjúkraliðabraut, nemendur á námsbraut fyrir leiðbeinendur í leikskólum og stuðningsfulltrúa í grunnskólum ganga frá sínu vali með því að hafa samband við áfangastjóra, símleiðis eða í tölvupósti. Mikilvægt er að allir nemendur hafi skoðað og farið yfir námsframboðið áður en valið fer fram. Upplýsingar um námsframboðið er að finna hér á heimasíðunni undir námið – vorönn 2012
Framundan er tveggja daga vetrarfrí hjá nemendum og starfsmönnum VA. Öll kennsla fellur því niður föstudaginn 21. okt. og mánudaginn 24. okt og skrifstofur skólans verða lokaðar.
Við vonum að allir njóti þess að hvíla sig á miðri önn og komi endurnærðir til starfa á þriðjudaginn.
![]() |
VA er heilsueflandi framhaldsskóli.
í morgun kl. 09.30 var verkefni landlæknisembættisins, heilsueflandi framhaldsskóli formlega hleypt af stokkunum í VA. Af því tilefni var dagskrá í íþróttahúsinu. Þeir sem héldu tölu þar voru Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri, Stefán Þorleifsson íþróttafrömuður, Kristján Þór Magnússon verkefnisstjóri hreyfingar frá Landlæknisembættinu, Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir hópstjóri næringarhópsins, Karl Jóhann Birgisson fulltrúi Síldarvinnslunnar og Þórhildur Eir Sigurgeirsdóttir nemandi í listaakademíu VA spilaði á píanó. Góður rómur var gerður að öllum erindum. Karl Jóhann kom færandi hendi og afhenti skólanum tvo vatnshana og áfengismæli að gjöf frá Síldarvinnslunni. Páll hvatti okkur til dáða og fagnaði þessu skrefi í samfélaginu. Það er ljóst að heilsueflingin mun smita út frá sér og hafa góð áhrif á fleiri en nemendur og starfsfólk skólans. Stefán hvatti unga fólkið til að hreyfa sig og gera hreyfingu að föstum þætti í daglegu lífi. Það er frábært að hafa slíka fyrirmynd og sjá hvernig heilbrigður lífsstíll og viðhorf virka í raun. Þorbjörg hefur leitt undirbúning innleiðingar næringar en það er þema fyrsta ársins og einn af fjórum þáttum sem teknir eru fyrir í heilsueflingunni. Hin atriðin eru hreyfing, geðrækt og lífsstíll. Þorbjörg kynnti að á næstunni yrði boðið upp á hafragraut einu sinni í viku, nemendum að kostnaðarlausu. Einnig að heilsueflingin væri langhlaup og engar öfgar yrðu við framkvæmd hennar. Heilsueflingin snýst um að hafa valkosti um heilsusamlega næringu. Kristján Þór hvatti okkur til dáða og setti verkefnið formlega í gang með því að afhenda einkennisfána verkefnisins sem blaktir nú við hún við skólann. Einnig verður merki verkefnisins sett upp í skólanum. Allra síðasti dagskrárliðurinn var að Guðrún Smáradóttir stýrði viðstöddum í Zumba dans - leikfimi.
Viðstöddum var síðan boðið upp á hressingu í skólanum, nýjar gulrófur sem gulrófnabændur gáfu okkur af þessu tilefni, mjólk og heimabakaða skúffuköku frá Heiðu matráði skólans. Sérstakur verkefnisstjóri VA um heilsueflinguna er Margrét Perla Kolka. Þeir sem eru áhugasamir geta lesið nánar um verkefnið á slóðinni http://www2.lydheilsustod.is/heilsueflandiframhaldsskolar .
Lesa meira...
Haustið 2010 hóf VA að innleiða hugmyndafræði heilsueflandi framhaldsskóla en það er samstarfsverkefni skólans og Landlæknis/Lýðheilsustöðvar. Hugmyndafræðin felur í sér að nálgast forvarnir út frá víðtæku og jákvæðu sjónarhorni með samstarfi nemenda, starfsfólks, aðstandenda og nærsamfélagsins.
Nú er komið að því að verkefninu verði formlega hleypt af stokkunum og því verður setningarhátíð í skólanum miðvikudaginn 19.október frá kl. 9:10-10:30 í íþróttahúsinu. Á hátíðinni koma fram nemendur og starfsmenn skólans sem og gestir bæði úr nærsamfélaginu og frá Landlæknisembættinu. Í lokin verða nemendum boðið upp á léttar veitingar í félagsaðstöðu skólans. Dagurinn verður að öðru leiti hefðbundinn og verður kennt bæði fyrir og eftir hátíðina. Aðstandendur og aðrir áhugasamir eru boðnir velkomnir á hátíðina.
Í dag, þriðjudaginn 18. október, verður vinnustofa starfsfólks vegna verkefnisins frá kl. 14:10-17:00 og fellur kennsla því niður í tveimur síðustu tímunum dagsins. Rútuferðinni verður flýtt og fer rútan kl. 14:15 frá skólanum.
Miðannarmat
Miðannarmat skólans leggur grunn að lokaeinkunn hvers áfanga, en matið gildir allt að 20%. Matið byggir m.a. á prófum, verkefnaskilum, vinnubrögðum og ástundun.
Nú hafa kennarar lokið við að meta námslega stöðu og ástundun nemenda við skólann, m.a. í þeim tilgangi að veita nemendum aðhald og leiðbeiningar við námið.
Forráðamönnum er bent á að kynna sér vel niðurstöður miðannarmatsins í Innu og stuðla með þeim hætti að góðum tengslum við nemendur og ekki síst við starfsfólk skólans. Árangursrík samskipti heimila og skóla skila sér oftast í betri líðan og námsárangri nemenda. Þá eru forráðmenn hvattir til að hafa samband við umsjónarkennara ef skýringa er þörf.
![]() |
Styrkur úr Samfélagssjóði Alcoa, tilhanda nemendum í raf - og málmiðnnámi.
Í morgun var nýnemum í iðnnámi sem sótt höfðu um nám í grunndeild raf - eða málmiðiðndeilda veittur námstyrkur.
Um er að ræða styrk sem Alcoa Fjarðaál, Háskólinn í Reykjavík, VA og ÞNA sóttu um sl. vor í alþjóða samfélagssjóð Alcoa.Styrkurinn til VA var veittur til að efla aðsókn grunnskólanemenda til náms í raf - eða málmiðngreinum. Styrkurinn til VA er til þriggja ára og munu verðandi nemendur í umræddum iðngreinum fá tækifæri til að sækja um styrk næstu tvö árin. Því miður sótti engin stúlka um styrk að þessu sinni eða í nám á umræddum brautum á þessu skólaári en þær eru sannarlega hvattar til að sækja um nám og styrk næstu ár.
Nemendurnir sem fengu styrk að þessu sinni eru þeir; Andrés Þorsteinsson, Kristófer Dan Róbertsson, Ármann Ingi Sigurðsson allir í námi í grunndeild rafiðnbrautar og Snæþór Ingi Jósepsson í námi í grunndeild málmiðnbrautar. Þeir eru efnilegir iðnaðarmenn.
Það er afar jákvætt að verðandi nemendur eigi þess kost að sækja um styrk fyrir námi og ætti að vera mikil hvatning. Styrkupphæðin eru 160.000 krónur á skólaárinu, greiddar í fjórum jöfnum greiðslum á skólaárinu. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um reglur sjóðsins á heimasíðunni.
Vinjettuhátíð í Nesbæ.
Sunnudaginn 2.október kl:20:00 ætla nemendur Listakademíu VA að taka þátt í Vinjettuhátíð í kaffihúsinu Nesbæ. Rithöfundurinn Ármann Reynisson er höfundur bókanna sem nemendur ætla að lesa úr og les hver nemandi tvær sögur. Einnig ætla nemendur listaakademíu að vera með tónlistaratriði milli upplestra.
Við hvetjum alla til að koma og hlýða á skemmtilegar sögur, tónlist og fá sér kaffi í huggulegheitum á sunnudagskvöldi í Nesbæ.
Kennsla í VA fellur niður eftir kl. 13.00 mánudaginn 26. september vegna útfarar Ágústs Ármanns Þorlákssonar tónlistarmanns.
Ágúst var einn af okkur, eiginmaður Sigrúnar okkar, bróðir og mágur, auk þess að vera æskuvinur margra starfsmanna, kórstjóri, píanókennari og góður vinur og félagi allra sem kynntust honum. Hann var okkur innan handar með allan undirleik í skólastarfinu undanfarin ár, m.a. í útskriftum skólans. Ágúst var einn af aðal stuðningsaðilum og kennari í tilraunarstarfi okkar sl. vetur við þróun listaakademíunnar LÍA 102 sem m.a. setti upp Múlan rús sl. skólaár. Við söknum hans mikið og sendum öllum ættingjum og vinum hans okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Kennt verður til 12.35. Rútan til Eskifjarðar og Reyðarfjarðar fer kl. 13.00. Nemendur sem skráðir eru í mat geta nært sig fyrir brottför.
ART - kennsla í VA í fyrsta sinn.
Á þessari önn er í fyrsta skiptið kenndur ART- áfangi. Áfanginn er hluti af námsframboði á framhaldsskólabraut.
ART stendur fyrir Aggression Replacement Training. Um þrískipta þjálfun er að ræða. Í fyrsta lagi félagsfærni sem er atferlisþáttur námsefnisins. Í örðu lagi sjálfsstjórn (reiðistjórnun) sem kalla mætti tilfinningahluta námsins. Í þriðja lagi siðræn röksemdarfærsla sem er þáttur sem höfðar til vitsmuna.
ART er kennt í fjölda leik- og grunnskóla á landinu og er Austurland þar framarlega í flokki.
Kennari er Elvar Jónsson en hann hefur lokið réttindanámi í ART þjálfun.
Nánari upplýsingar um ART er að finna á http://www.isart.is/ . En samkvæmt þeirri síðu þá er VA fyrsti framhaldsskólinn sem kennir ART.
Í byrjun skólaársins var hin árlega busavígsla þar sem nýnemar í VA eru vígðir inn í skólann af eldri nemendum. Mikil áhersla var lögð á að þetta fær vel fram og að ekki yrði gengið of hart að nemendum. Miklar umræður hafa verið um réttmæti busavígslna, hérna í skólanum, í öðrum framhaldsskólum sem og í fjölmiðlum. Í kjölfarið ákvað skólinn að gera könnun á því hvernig nýnemar sem tóku þátt í busavígslunni í ár upplifuðu hana. Könnunin tók til nemenda fæddir 1995 og var nafnlaus. Niðurstöðurnar voru mjög afgerandi. Tæp 97% vildu hafa busavígslur í framhaldsskólum. Tæp 90% voru á þeirri skoðun að vígslan í ár hefði heppnast vel. Helsta umkvörtunarefnið var leiðinlegt veður og að busunin hefði verið of væg. Af þeim atriðum sem þau voru ánægðust með nefndu einhverjir að böðlarnir hefðu staðið sig vel í að láta þá vera sem ekki höfðu áhuga á því að taka þátt. Í skilaboðum til stjórnanda skólans sem og samtölum við nýnemana komu fram óskir um að busavígslan yrði leyfð áfram. Eins komu fram þau rök að busavígslan sé skemmtileg leið til að nýnemar kynnist. Í henni séu allir jafnir og að þetta sé góð leið til að brjóta ísinn.
Könnunina í heild má sjá á þessari slóð. Aðgangsorð: busar
http://www.surveymonkey.com/sr.aspx?sm=Zy7_2bzA59hiqJYq4zYbaidA0K6Ru31PaR2r3c5M8kdJs_3d
Comernius styrkur til nemenda í þýsku.
Verkmenntaskóli Austurlands hefur fengið fjárstyrk frá Comenius verkefnasjóði til samstarfs við þýskan framhaldsskóla, Max Plankt Gymnasium í Tríer. Skólinn er í samstarfi við ME og FAS um þátttöku í verkefninu sem felst í því að nemendur frá íslensku skólunum fara til Trier og dvelja þar á þýskum heimilum í hálfan mánuð og læra þýsku, auk þess sem þeir vinna að þema verkefnisins í samvinnu við þýska jafnaldra sína. Þemað að þessu sinni er landbúnaður. Þýsku nemendurnir koma svo í heimsókn til Íslands, líklega á haustdögum 2012. Þeir munu ferðast um landið og dvelja nokkra daga á Austurlandi. Verkefninu lýkur með skýrslu um samstarfið 30. september 2013.
Þetta er mikill fengur fyrir nemendur í þýsku og kemur til með að styrkja þau í málinu og ekki síður verða þeim hvatning til frekari dáða í þýsku.
Rútukortin komin í hús
Rútukortin eru afhent gegn greiðslu kr. 5000 hjá ritara. Vinsamlegast sækið kortin sem allra fyrst.
Gróðursetning og lífsleikni nýnema
Á morgun föstudag munu nýnemar gróðursetja tré í landi Neskaupstaðar en það er hefð sem skapast hefur við skólann. Að því loknu verður langur lífsleiknitími hjá þeim sem felst í ýmsum verkefnum tengdum Safnahúsinu og fleiri þáttum. Nemendur fá hressingu í tímanum og í lok dags flytur rúta þau á Reyðarfjörð.
Mývatnsferð nemenda
Undanfarna tvo daga hafa nemendur VA verðið við Mývatn í náttúruskoðun, ýmist að læra um jarðfræði svæðisins eða lífríkið. Það eru raungreinakennarnir Einar Þórarinsson, Gunnar Ólafsson og Þórður Júlíusson sem kennt hafa nemendum í þessari ferð og fyrri ferðum sem farnar hafa verið. Nemendur munu síðan vinna úr gögnum af Mývatnssvæðinu á næstu vikum í tímum í viðkomandi áföngum.
Vegna veikindaskráninga frá og með miðvikudegi 14. september.
Að gefnu tilefni verður breyting á veikindaskráningum nemenda VA frá og með miðvikudeginum 14. september. Eftir þann dag og framvegis þurfa allir nemendur sem tilkynna sig veika að skila læknisvottorði til skólans til þess að veikindi séu tekin gild og skráð sem slík. Ef nemandi skilar ekki læknisvottorði er fjarvera ekki tekin gild sem veikindi.
Skráning fyrir rútukortum.
Mánudagurinn 12. september er allra síðasti dagurinn til að skrá sig í skólarútuna frá Reyðarfirði og Eskifirði á haustönn 2011.
Nemendur greiða 5000.- þegar kortið verður afhent eftir nokkra daga og þurfa síðan að merkja við skólaakstur þegar þeir sækja um jöfnunarstyrk til LÍN fyrir 15. október.
Skráning og afhending fer fram hjá skólaritara.
Nýnemakynning fyrir forráðamenn árgangs 1995 í matsal heimavistar.
Eins og aðstandendur vita verður kynning í kvöld um skólann og það starf sem þar fer fram.
Mikilvægt er að a.m.k. einn aðili frá hverjum nemanda mæti.
Áætlað er að kynningin standi til 21.30.
Busun.
Á morgun föstudag er hinn eiginlegi busadagur VA, kennt verður til 13.00 en þá storma eldri nemendur með nýnema niður á bryggju við Safnahúsið í busun. Að því loknu hafa busar tækifæri á að fara í sundlaugina til að fara í sturtu og skipta um föt. Það eru eldri nemendur sem annast busun og þau hafa fengið skýrar línur með framkvæmdina. Mikilvægt er að nýnemar/busar mæti í "drasl" fötum og skóm ásamt því að vera ekki með verðmæti í fórum sínum(síma, skartgripi, gleraugu) Félagslífsfulltrúar verða viðstaddir framkvæmdina og fylgjast með og sjá til þess að allt fari vel fram. Við vonum að nýnemar og aðrir hafi gaman af.
Vegna mötuneytis VA
Nú hefur verið ákveðið að allir nemendur í dagskóla hafa rétt á að vera í mötuneyti. Skilyrði þess eru að þau festi niður hvaða þrjá til fimm daga þau vilja vera í mat vikulega. Máltíðin kostar 750 krónur og fer skráning fram hjá ritara. Skráningu þarf að vera lokið fyrir haustönnina þann 7. september.
Haustönnin hefur farið vel af stað og góð aðsókn hefur verið í skólanum. Flest allir áfangar skólans eru að verða fulllmannaðir. Síðasti dagur til að skrá sig í skólann, staðnám eða fjarnám er fimmtudagurinn 1. september. Eftir það verður ekki tekið við fleiri skráningum í skólann.
Busaball í ME föstudaginn 26. ágúst.
Tilkynning einkum til forráðamanna nemenda yngri en 18. ára.
Nemendafélag VA skipuleggur ferð á busaball sem haldið verður á morgun föstudaginn 26. águst í Valaskjálf á Egilsstöðum.
Lagt verður af stað með rútu frá VA kl. 22:00. Rútuferðin kostar kr. 1800 og miðinn á ballið kr. 2500. Ef færri en 40 skrá sig í rútuna gæti hún orðið eitthvað dýrari.
Þar sem nemendafélag VA, NIVA ætlar að bjóða nemendum upp á rútuferð á ballið sendum við annan félagslífsfulltrúa okkar með rútunni og verður hann á ballinu. Rútan leggur af stað frá Norðfirði (Olís) kl. 22, Eskifirðir (Shell) kl.22:30, Reyðarfirði (Shell) kl. 22:45.
Hér er að sjálfsögðu um áfengislausa skemmtun að ræða og ölvun ógildir miðann. Verði nemandi uppvís af ölvun verður haft samband við foreldra sem eiga nemendur yngri en 18 ára og ætlast er til þess að þeir sæki ungmennið í Egilsstaði. Aðrir nemendur verða teknir til hliðar og fá ekki aðgang á ballið.
Rútan leggur af stað kl. 3:15 heim aftur. Nemendur sem ekki skila sér í rútuna fyrir þann tíma verða skildir eftir og þurfa forráðamenn að sækja þá til Egilsstaða.
Skólinn getur ekki tekið ábyrgð á nemendum sem fara á eigin vegum.
Nemendur eru hvattir til að vera sjálfum sér og skólanum sínum til sóma.
Allar nánari upplýsingar er að fá hjá Perlu eða Elvari elvar@va.is í síma 477-1620, Perla perla@va.is gsm 893 6669.
Elvar og Perla
Félagslífsfulltrúar VA
Töflubreytingar haustannar 2011
Töflubreytingar standa yfir þessa viku. Þeim líkur föstudaginn 26. ágúst. Það er eingöngu áfangastjóri sem annast töflubreytingar.
Nemendur þurfa að mæta í alla tíma því þegar er farið að merkja við í tímum og fjarvera úr tímum er strax farin að telja. Sjá skólasóknarreglur í almenna hluta námsskrár VA sem er hér á heimasíðunni.
Rútuferðir næstu daga og vikur.
Rútan fer frá Olís á Reyðarfirði á morgun 23. ágúst kl. 07.35, frá Shell Eskifirði kl. 07.50.
Brottför frá VA veður kl. 14.00. Skóla lýkur kl. 13.30 þannig að hægt veður að fara í Tónspil bókabúð ef vill áður.
Aðra daga er sami tími á rútu frá Rf og Esk en frá VA alla virka daga kl. 16.25. Á föstudögum kl. 15.00.
Opnað fyrir INNU - stundaskrár í dag föstudaginn 19. ágúst.
Eins og þið vitið hefur verið opnað fyrir stundarskrár nemenda í INNU - upplýsingavef framhaldsskóla.
Sama aðgangsorð að vefnum gildir og áður.
Stundaskrá þriðjudags gildir nk. þriðjudag og því er mikvægt að allir læri þriðjudaginn vel og hafi stundarskrána tiltæka á fyrsta skóladegi.
Tímatafla þriðjudags verður með annarskonar sniði en venjulega sem betur verður útfært og birt hér á mánudaginn.
Rúta fer frá Olís Reyðarfirði kl. 07.35 og frá Shell Eskifirði kl. 07.50. Tanni travel annast aksturinn.
Skólasetning verður í Íþróttahúsinu (staðsett sunnan við VA) kl. 08.30. Gengið er inn vestari innganginn að norðan verðu.
Upphaf kennslu á sjúkraliðabraut.
Kennsla hefst á sjúkraliðabraut þriðjudaginn 30. ágúst. Kennt verður alla þriðjudaga á önninni kl. 18.00 - 21.00. Þeir nemendur sem verða í fjarfundaverum þurfa að mæta á sinn stað, annars í VA í stofu 11. Mikilvægt er að allir mæti því í þessum tíma verður farið í námsfyrirkomulag og skipulag kennslu haustannar.
Upphaf haustannar 2011.
Mánudaginn 22. ágúst opnar heimavistin fyrir nemendur sem þar munu búa í vetur. Heimavistin verður þéttsetin og fyrir 18. ágúst þurfa nemendur heimavistar að tilkynna um herbergisfélaga sína. Ellegar verður þeim raðað saman í herbergi tilviljunarkennt.
Skólasetning verður þriðjudaginn 23. ágúst kl. 08.30. Kennsla hefst að henni lokinni. Nýnemar hitta umsjónakennara sína þá og fá stundaskrár sínar en eldri nemendur þurfa að prenta stundaskrárnar út úr Innu eftir kl. 14.00 föstudaginn 19. ágúst.
Rútuferðir verða í umsjá Tanna travel og verða daglega frá Olís Reyðarfirði kl. 07.35 og frá Shell Eskifirði kl. 07.50 alla daga. Brottför frá VA er kl. 16.20 síðdegis alla daga nema föstudaga en þá verður brottför kl. 15.00. Um fyrirkomulag rútukorta koma upplýsingar síðar. Frávik frá akstri og aðrar tilkynningar birtast á heimasíðunni og á auglýsingaskjám í skólanum jafnóðum og er mikilvægt að nemendur fylgist vel með þeim.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá þá áfanga sem nýnemar taka á fyrstu önn sinni á náttúru - eða félagsfræðibraut:
Náttúrfræðibraut:
Félagsfræðibraut:
Skipt er í áfanga í íslensku, ensku, dönsku og stærðfræði eftir einkunnum úr grunnskóla.
Einkunn undir 5,0 - ÍSL 192
Einkunn 5,0 - 6,9 - ÍSL 102
Einkunn 7,0 - 10 - ÍSL 103
Sambærilegt í áðurnefndum greinum.
Nemendur sem fara á iðnbrautir og framhaldsskólabraut geta séð áfangana sína hér til vinstri með því að velja haustönn 2011.
Bókalisti haustannar er undir námið - haustönn 2011.
Skrifstofa VA opnar þann 8. ágúst nk. kl. 09.00.
Fyrir þann tíma þurfa allir sem ætla að stunda nám við skólann að hafa greitt innritunargjald haustannar, ellegar verður litið svo á að viðkomandi nemandi sem fengið hefur gíróseðil ætli ekki að stunda nám á komandi haustönn.
Lokun skrifstofu vegna sumarleyfa.
Skrifstofa VA verður lokuð frá 25. júní til 08. ágúst.
Ekki verður hægt að nálgast aðrar upplýsingar en þær sem finna má á heimasíðunni á meðan á lokun stendur.
Hægt verður að senda tölvupóst á skólameistara ef nauðsyn ber til olga@va.is.
Nemendur hafa fengið gíróseðil fyrir innritunargjaldi og öðrum gjöldum eftir eðli þess náms sem þeir hafa valið.
Mikilvægt er að gíróseðillinn sé greiddur á tilsettum tíma því annars er litið svo á að nemandinn ætli ekki að stunda nám við VA og verður hann tekinn út úr Innu, nemendaskráningarkerfi framhaldsskóla.
Nýnemar hafa aðgang að Innu (sá sami og nýttur var við innritun á Menntagátt) þegar opnað verður fyrir hana 19. ágúst. Eldri nemendur nota sama aðgang og áður.
Bókalisti í flestum áföngum verður aðgengilegur á heimasíðunni frá 24. júní.
► Nýtt og spennandi nám frá hausti 2011!
► Fjórar annir, 32-36 einingar. Að mestu kennt með fjarfundasniði, hægt að stunda á þeim stöðum sem bjóða upp á afnot af fjarfundabúnaði.
► Gert er ráð fyrir að tölvu- og tölvubókhaldsnám fari fram í staðbundnum lotum.
► Meginmarkmið er að veita nemendum víðtæka og almenna þekkingu í greinum sem nýtast vel við fjölbreytt störf í nútímastarfsumhverfi á skrifstofum og hjá fjármálafyrirtækjum.
► Ath. Lágmarksfjölda nemenda þarf til að farið verði af stað með námið.
Sjá nánara fyrirkomulag á slóðinni:www.me.is
Innritun í nám á næsta skóaári er lokið. Aðsókn er með allra besta móti og eru flestir hópar í iðnnámi skólans fullir. Á komandi haustönn verður kennsla á fyrstu og þriðju önn á háriðnbraut, fyrsta og þriðja önn grunndeildar málmiðna verða kenndar ásamt fimmtu önn í vélvirkjun. Þá verða fyrsta og þriðja önn í grunndeild rafiðna kenndar og fyrsta og þriðja önn í húsasmíðanámi. Að auki verða að sjálfsögðu náttúrurfræði -, félagsfræði - og framhaldsskólabrautir (áður almenn braut) kenndar. Á starfsbraut verða 4 nemendur. Nýnemar eru skráðir 43 og eldri nýir nemendur 38. Góð aðsókn er einnig á heimavist skólans og hafa um 40 nemendur sótt um hana. Þá verða síðdegisbrautirnar okkar að sjálfsögðu keyrðar áfram en það er okkar öfluga sjúkraliðabraut og námsbraut fyrir stuðningsfulltrúa í leik - og grunnskólum.
Eins og undanfarin ár býður Menntaskólinn við Hamrahlíð upp á stöðupróf í tungumálum og stærðfræði í ágúst nk.
Þá verður einnig boðið upp á próf í fleiri tungumálum í september.
Þeir sem áhuga hafa á að kynna sér þessi mál frekar smella HÉR
Innritun fyrir nám á næsta skólaári stendur yfir og þann 09. júní lýkur innritun grunnskólanemenda.
Úrvinnsla umsókna hefst strax þann 10. júní. Svör verða send til nemenda í síðasta lagi þann 24. júní um skólavist ásamt greiðsluseðlum fyrir innritunargjöldum.
Eldri nemendur sem ætla að sækja um nám fyrir næsta skólaár eru hvattir til að ganga frá því sem allra fyrst eða í síðasta lagi fyrir 09. júní.
Vakin er athygli á umsóknareyðublaði á heimasíðu skólans um námsstyrk á málm - og rafiðnbrautum fyrir grunnskólanemendur en skólinn fékk fjármagn til þessa frá Samfélagssjóði Alcoa.
Föstudaginn 20. maí var brautskráning frá Verkmenntaskóla Austurlands.
Alls 44 nemendur luku prófi, 7 af félagsfræðibraut, 4 af húsasmíðabraut, 4 með meistaranám (3 í vélvirkjun og einn af snyrtibraut), 4 af námsbraut fyrir leiðbeinendur í leikskólum, 9 af námsbraut fyrir stuðningsfulltrúa í grunnskólum, 1 af námsbraut fyrir leiðbeinenendur í leik og grunnskólum, 4 af náttútrufræðibraut, 6 af sjúkraliðabraut, 1 af starfsbraut, 1 í vélvirkjun, 3 með viðbótarnám til stúdentsprófs.Því miður gátur ekki allir verið viðstaddir athöfnina bæði vegna veðurs og annara ástæðna. Fimm nemendur fengu skírteini sín við útskrift frá FAS s.l. laugardag og tvær frá MÍ á Ísafirði n.k. laugardag.
Lesa meira...Þrátt fyrir vetrarveður og slæma færð yfir Oddskarð verður útskriftin í dag eins og áður hafði verið ákveðið. Kl. 14.30 fer rúta frá VA með starfsfólk, útskriftarefni og aðra þá sem höfðu ætlað sér yfir. Rútan frá Austfjarðarleið verður á keðjum og tekur 58 manns þannig að það ættu a.m.k. tveir frá hverjum nemanda að komast með. Rútan fer svo til baka með sömu farþega að athöfn og myndatöku lokinni um 17.30.
Við vonum að við getum notið brautskráningar þrátt fyrir að vetur konungur hafi komið óboðinn í heimsókn.
![]() |
Þessari spurningu er varpað fram í auglýsingum frá tímaritinu Frjálsri verslun og vísað í grein um könnun Pawels Bartozek um gæði framhaldsskóla á Íslandi. Við viljum setja alvarlega fyrirvara um þau vinnubrögð sem þar eru viðhöfð en einnig er fréttaflutningurinn af könnuninni mjög ámælisverður.
Þessi könnun flokkaði framhaldskóla í bestu og verstu skóla landsins og segir Pawel að nemendur geti notað þessa könnun þegar þeir velja sér framhaldsskóla. Aðferðarfræðin sem Pawel beitir er meingölluð og hafa skólmeistarar ýmissa framhaldsskóla sem og menntamálaráðherra dregið stórlega í efa hversu góður mælikvarði á gæði skólastarfs þessi könnun sé. Við í Verkmenntaskóla Austurlands getum ekki setið undir því sem fullyrt er í greininni um gæði skólans okkar. Við vitum að hann er góður skóli og er okkur í lófa lagið að búa til mælikvarða sem sýna að hann sé jafnvel sá besti á landinu.
Lesa meira...Föstudaginn 20. maí kl. 16.00 verður brautskráning 44. nemenda af 11 mismunandi námsbrautum frá Verkmenntaskóla Austurlands. Brautskráningin fer fram í Kirkju - og menningarmiðstöð Fjarðabyggðar á Eskifirði. Fimm nemendur munu fá skirteini sín í útskrift frá FAS á laugardaginn og tveir við útskrift frá Menntaskólanum á Ísafirði um næstu helgi. Nokkrir nemendur sem ljúka prófi á þessu vori hafa aldrei komið í skólann og er það tákn um nýja tíma. Þeir hafa tekið allt sitt nám í fjarnámi. Morgundaguinn er hátíðisdagur í VA þrátt fyrir afleitt vorveður.
Starfsmenn VA hafa lesið grein sem birtist í nýjasta tölublaði Frjálsrar Verslunar og gerð var að umtalsefni í fréttatíma Stöðvar 2 sl. mánudagskvöld. Samkvæmd henni má í stuttu máli segja að skóli á borð við VA sé ekki samanburðar hæfur þar sem hann tekur ekki þátt í flestum þeim keppnum sem þar eru skoðaðar og verður því ekki dæmdur af þeim. Í úttektinni er ekki tekið tillit til staðsetningar, stærðar, námsframboðs, árangurs nemenda eftir nám í skólum, fjölbreytileika nemdahópsins og fleiri innri og ytri þátta sem meta þarf ef dæma á skóla góðan eða vondan. Í lögum um framhaldsskóla er innra og ytra mat á skólastarfi bundið í lög, ákvæði þeirra eru ekki tekin fyrir í þessari úttekt. Því vísum við þeim ummælum á bug sem haldið er fram í fréttinni að VA sé versti framhaldsskóli landsins. Í tímaritinu er rætt við menntamálaráðherra ásamt skólameistara þriggja "bestu" skólana skv. úttektinni og þau setja öll fram efasemdir um að umrædd úttekt sé marktæk á gæði skóla.
Lesa meira...![]() |
Sl. föstudag var undirritaður samstarfssamningur í safnahúsinu í Neskaupstað á milli VA, Alcoa Fjarðaáls og ÞNA um rekstur og kennslu Stóriðjuskóla Fjarðaáls. Starfsmenn VA munu kenna við skólann sem er samtals 7 annar nám, 3 annir í grunnnnámi, 4 í framhaldsnámi. Við sama tækifæri var einnig skrifað undir samning á milli VA og Alcoa um samstarf um námskeiðahald og símenntun sem og eflingu iðn - og tæknináms.
Þessir samningar eru mikilvægir fyrir alla aðila og styrkja stoðir Verkmenntaskóla Austurlands.
Í dag er prófsýning kl. 11.30 - 13.00. Við hvetjum nemendur sem vilja skoða prófúrlausnir sínar til að koma.
Rúta verður frá Olís Reyðarfirði kl. 10.45, frá Eskifirði kl. 10.55. Rútan fer til baka frá VA um 12.30.
Á morgun föstudag eru sjúkrapróf fyrir þá sem ekki hafa mætt á venjulegum prófdegi. Allir þurfa að skila læknisvottorði í prófinu.
Miðvikudaginn 18. maí kl. 10.30 verður opnað fyrir niðurstöður prófa í innu. Sama dag kl. 11.30 verður prófasýning en þá geta nemendur komið og skoðað próf sín og áttað sig á niðurstöðum þeirra. Útskrifað verður íí Kirkju - og menningarmiðstöðinni á Eskifirði föstudaginn 20. maí kl. 16.00. Fjörutíu og sex nemendur munur þá útskrifast frá VA.
Í dag kl. 18.00 verður opið hús í VA fyrir verðandi nemendur og aðstandendur þeirra. Þeim gefst þá tækifæri til að skoða húsakynni skólans, hitta kennara og kynna sér þá kennslu sem fram fer. Verkkennsluhúsið verður einnig opið. Aðrir áhugasamir eru að sjálfsögðu velkomnir í skólann líka. Heitt verður á könnunni.
Um 100 manns fjölmenntu á góðan og upplýsandi málþing," Bara gras" í gæri í grunnskóla Reyðarfjarðar. Á eftir fyrirlesurum voru líflegar hópumræður. Heildaniðurstaða þeirra var að mikilvægt er að þétta raðir foreldra, að þau hafi samráð, samvinnu og samskipti sín á milli um ungmennin í Fjarðabyggð. Að gætt sé að því að samfélagið láti sig varða um ungmennin okkar. Kallað var eftir meiri fræðslu þeirra aðila sem stýra afþreygingu og fræðslu ungmenna, bæði fyrir þau og aðstandendur. Við hér í VA eru afar ánægð með þessa tvo fundi um þennan vágest sem ógnar tilveru ungmenna og köllum eftur breiðri samstöðu geng honum.
![]() |
Forfarnarfundurinn sem haldinn var í Neskaupstað í vikunni fyrir páska verður endurtekinn í grunnskólanum á Reyðarfirði mánudaginn 9. maí nk. kl. 19.30.
Þarft mál verður á dagskrá og hvetjum við alla áhugasama aðstandendur ungmenna til að mæta. Fundurinn er öllum opinn.
Niðurstöður viðhorfskönnunar meðal foreldra nemenda yngri en 18 í ára í Verkmenntaskóla Austurlands benda til þess að þeir séu almennt ánægðir með skólastarfið. Könnuninni svöruðu rúmlega 70% foreldra sem verður að teljast nokkuð gott. Niðurstöðurnar eru um margt athyglisverðar en mest afgerandi er að níu af hverjum tíu foreldrum telur að skólinn veiti nemendum almennt góða þjónustu. Foreldrar virðast áhugsamir um félagslífið í skólanum og finnst mörgum að þeir eigi að taka þátt í því t.d. með gæslu á böllum eða störfum leikfélagsins. Í athugasemdum kemur fram að slíkt muni veita aðhald og stuðning en einnig sé það gott fyrir nemendur að foreldrar hafi áhuga.
Próf hefjast nk. mánudag kl. 09.00.Nafnalistar nemenda um staðsetningu í prófi verða listaðir upp í anddyri skólans að vestanverðu.Það er mikilvægt að nemendur lesi prófareglur vel og kynni sér hvort og þá hvað má mæta með í próf. Það er einnig mikilvægt að mæta tímanlega og virða þann tíma sem gefinn er til próftöku. Veikindi þarf að tilkynna til ritara áður en próf hefst og skila vottorði frá lækni þegar nemandi mætir í sjúkrapróf þann 13. maí. Gangi ykkur vel.
Fimmtudaginn 14. apríl s.l. tók Verkmenntaskóli Austurlands ásamt Háskólanum í Reykjavík og Þekkingarneti Austurlands á móti peningastyrk úr alþjóðasjóði Alcoa. Þessum styrk er ætlað að efla menntasamfélagið á Austurlandi. Sá hluti styrksins sem rennur til VA verður nýttur annars vegar til að auka aðsókn að málm- og rafiðnnámi skólans meðal nýnema (sjá nánari útlistun á heimasíðunni hér til hliðar) og hins vegar til að endurmennta kennara skólans. Styrkurinn er veittur til þriggja ára. Það er gríðarlega kærkomið að fá slíkan styrk og sýnir mikinn velvilja í garð skólans. Þökkum við kærlega fyrir okkur.
Rútuferðir verða alla daga frá Olís Reyðarfirði kl. 08.05, frá Eskifirði kl. 08.20.
Brottför frá VA verður kl. 11.10.
Það styttist í lokaprófin á önninni. Kennslu lýkur nk. föstudag og er því mikilvægt að nemendur gangi frá öllum skilum á verkefnum og öðru sem kennarar óska eftir. Þá er líka mikilvægt að nemendur skili bókum á bókasafnið ef þau eru með þær, gangi frá lyklamálum af skápum og loki öllum málum gagnvart skólanum.
![]() |
Páskaleyfi er frá 18.4 til og með 26.4. Skrifstofan opnar 26.4.
Geðilega páska
![]() |
Margrét Perla Kolka Leifsdóttir forvarnarfulltrúi VA ræðir um
unglingadrykkju og Örebro verkefnið.
Orri Smárason, sálfræðingur, skaðsemi kannabisreykinga og langtímaafleiðingar.
Steinar Gunnarsson, lögregluvarðstjóri, ræðir um fíkniefnavandann.
Hver er afstaða ungmenna til kannabis ?
Hvað verður um efnið sem ræktað er um allt land ?
Kaffihlé
Umræður og hópavinna
Fundarstjóri Páll Bj. Guðmundsson bæjarstjóri
![]() |
Á sunnudag gerðist sá hörmulegi atburður að nemandi skólans, Daniel Krzystztof Sakaluk lést í bílslysi.
Daniel var góður nemandi og félagi. Hann var efnilegur knattspyrnumaður og spilaði með KFF. Hans verður sárt saknað í skólanum af félögum og starfsfólki. Starfsfólk og nemendur VA votta fjölskyldu Daniels samúð sína.
Á morgun þriðjudag verður opnuð minningarbók í skólanum sem nemendur og starfsfólk geta skrifað í og vottað þannig fjölskyldu Daniels samúð sína.
Í kvöld kl. 18:00 verður kaþólsk minningarathöfn í Norðfjarðarkirkju þar sem allir eru velkomnir og geta sýnt samhug í verki. Mikilvægt er að aðstandendur nemenda mæti með þeim og styðji þá.
W niedziele mialo miejsce tragiczne zdarzenie, uczen naszej szkoly Daniel Sakaluk zginal w wypadku samochodowym. Daniel byl dobrym uczniem i kolega. Byl obiecujacym pilkarzem, gral w druzynie KFF. Wszystkim nam bedzie Go brakowalo.
Pracownicy szkoly oraz uczniowie wyrazaja glebokie wyrazy wspolczucia Jego rodzinie. Jutro tj. we wtorek bedzie mozna wpisywac sie do ksiegi kondolencyjnej, gdzie wszyscy uczniowie oraz pracownicy beda mogli zlozyc kondolencje.
Dzisiaj wieczorem o godz. 18 odbedzie sie msza sw. w kosciele Norðfjarðarkirkja w Neskaupstaður w intencji Daniela, wszystkich zapraszamy. Wazne jest, aby w tym trudnym momencie uczniowie mieli wsparcie swoich rodzin
Lesa meira...Á laugardagskvöldið verður söngkeppni framhaldsskólanna haldin á Akureyri. Keppandi VA að þessu sinni verður Rannveig Júlía Sigurpálsdóttir, við óskum henni alls hins besta. Valnúmer hennar verður 9002005. Nemendur úr háriðndeild skólans munu sjá um hárgreiðslu keppenda undir stjórn Eydísar Ásbjörnsdóttur deildarstjóra í hárdeild..
Það skal tekið fram að skólinn stendur ekki fyrir ferð annara nemenda á keppnina að þessu sinni en erfiðlega gekk að útvega gistingu á Akureyri um þessa helgi fyrir framhaldsskólana. Nemendur sem fara norður eru á eigin ábyrgð. Við hvetjum alla til að fara varlega og vera sér og sínum til sóma.
Lesa meira...![]() |
Að loknum opnu dögunum 1. - 3. mars 2011 var gerð skoðanakönnun meðal nemenda skólans um hvernig til tókst. Könnunin var send um 120 nemendum í tölvupósti og fengust svör frá 64 þeirra eða u.þ.b. 50%. Þetta er mun betri svörun en undanfarin ár, t.d. voru heimtur um 21% á síðasta ári. Mikil ánægja var með opnu dagana og mest var ánægjan með hafragrautinn og morgunsönginn.
Þessi könnun er liður í sjálfsmati VA og munu niðurstöðurnar nýtast við undirbúning opinna daga í framtíðinni. Þeir sem vilja geta skoðað niðurstöðurnar HÉR.
Forráðamenn nemenda yngri en 18 ára sem ekki hafa svarað könnun frá skólanum um samskipti og líðan nemenda sinna eru vinsamlegast beðnir um að gera það sem allra fyrst. Það er mjög mikilvægt að fá svör frá sem flestum forráðamönnum til að geta bætt skólastarfið. Hlekkur á könnunina var sendur í tölvupósti til forráðamanna.
Í dag varð Þróttur Nes bikarmeistari í blaki kvenna. Stelpurnar unnu HK í æsispennandi leik 3 - 2. Í liði Þróttar eru 6 nemendur VA og svo hún Bobba okkar sem er áfangastjóri skólans. Við erum afar stolt af stelpunum og óskum þeim öllum innilega til hamingju með frábæran árangur.
Þriðjudaginn 15. mars verður valdagur í VA. Þá hitta nemendur umsjónarkennara sína og velja nám næstu annar. Það er mikilvægt að nemendur skoði vel bæklinginn áfangar í boði sem hægt er að nálgast hjá ritara, einnig er hann að finna á heimasíðunni til að hafa á hreinu hvaða nám nemandinn ætlar að stunda á næstu önn. Nánar verður þetta auglýst á skjánum í skólanum.
Í dag mánudag fáum við góða gesti í heimsókn, eða fulltrúa Samtaka 78. Þau munu ræða við nemendur um samkynhneigð og samtökin. Í kjölfarið verða nemendahópar með umræður um málefnið og fordóma í samfélaginu. Þessi viðburður fer fram í matsal heimavistar kl. 13.00 - 14.30. kennsla verður í lokatímanum í dag eins og venjulega.
Nýlega var forráðamönnum send skoðunarkönnun um ýmsa þætti sem snúa að tengingu þeirra við VA. Þá er einnig leitað eftir upplýsingum af nemendum í könnuninni.
Það er okkar ósk að sem flestir sjái sér fært að svara þessari könnun sem allra fyrst því upplýsingar af þessu tagi gefa okkur færi á að bæta okkur í samskiptum við nemendur og forráðamenn þeirra.
Lesa meira...Þorrablót VA verður haldið í Valhöll Eskifirði í kvöld, föstudaginn 04. mars kl. 20.00. Dansleikur verður frá 00.00 - 03.00 þar sem hljómsvietin Í svörtum fötum leikur.
Það er Rauða torgið í Neskaupstað sem sér um matinn og dansleikinn. Ballið er hugsað fyrir árgang 1994 og eldri. Ölvun ógildir miðann.
Rútuferðir verða frá Neskaupstað kl. 19.00 og frá Reyðarfirði kl. 19.15. Húsið opnar kl. 19.30. Brottför verður til baka á báða staði kl. 03.15. Mikilvægt er að nemendur skrái síg í rútur í dag hjá ritara. Rútuferðir eru án endurgjalds fyrir nemendur VA.
![]() |
Fjölbreytt dagskrá hefur verið í boði undanfarna daga og hafragrauturinn og lýsið hafa gert sérlega mikla lukku meðal nemenda. Um 70 - 90 skammtar hafa klárast á morgnana og sumir skellt í sig lýsinu líka..
Veður er að ganga niður og rútan frá Tanna fer af stað um 10.
Mæting á Olís á Reyðarfirði kl. 10.05. Á Eskifirði 10.20 frá Shell.
Brottför frá VA í dag er kl. 15.20 eins og í gær.
Hóparnir halda sér eins og skráð var en styttast hjá þeim sem koma með rútunni.
Lesa meira...Eins og er er ófært um Oddskarð. Við biðjum nemendur um að fylgjast vel með upplýsingum sem settar verða inn um leið og færð breytist og rútan kemst yfir. Næsta klukkutímann er ófært skv. Vegagerðinni. Nýjar fréttir koma inn kl. 09.00.
Á morgun þriðjudaginn 1. mars hefjast opnir dagar í VA. Dagskrá þeirra mun endanlega liggja fyrir síðar í dag og verða hópar með nöfnum nemenda birtir á auglýsingaglugga á 1 hæð bóknámshússins. Nemendur völdu þrjá viðburði á hverjum dagparti og er þeim síðan raðað eftir þátttöku og óskum. Nokkrir viðburðir falla niður vegna ónógrar þátttöku. Nemendur mæta í skóann kl. 09.00 þessa þrjá daga og fá hafragraut og syngja morgunsöngva við undirleik Arnars og Dodda. Í hádeginu fá nemendur hádegisverð á heimavistinni án endurgjalds. Degi lýkur síðan um 15.00.
Rútan fer frá Reyðarfirði 08.05 og frá Eskifirði 08.20. brottför frá VA verður 15.20 þessa þrjá daga. Opnir dagar eru upplit frá amstri hversdagsins og kærkomnir til að prófa eitthvað allt annað en venjulega í skólanum. Góða skemmtun á opnum dögum.
Þá er loks komið að því. Í kvöld kl. 20.00 verður frumsýning á Múlan rús eða Rauðu millunni, hjá leikfélaginu Djúpinu. Sýningin verður í Egilsbúð í Neskaupstað. Miðar verða seldir við innganginn kl. 19.30. Það ríkir mikil eftirvænting meðal allra sem að sýningunni koma en það er einkum vaskur hópur nemenda sem unnið hefur gríðarlega vel að öllum undirbúningi frá því í haust.
Leikstjóri er Snorri Emilsson, Svanlaug Aðalsteinsdóttir kennari í VA er aðstoðarleikstjóri. Að tónlistarundibúningi með nemendum kom Ágúst Ármann Þorláksson og á seinni stigum Guðjón Birgir Jóhannson sem er tæknimaður sýningarinnar. Fjölmargir hafa unnið með þessum forkólfum og eiga þeir þakkir skyldar, þ.m.t. kennarar og starfsmenn VA sem unnu að yfirlestri og samsetningu leikskrárinnar.
Mörg fyrirtæki hafa styrkt uppsetningu leikfélagsins. Þar leiðir hópinn Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað sem ítrekað hefur styrkt skólann og leikfélagið Djúpið rausnarlega. Allir styrktaraðilar eiga miklar þakkri skyldar. Það er von okkar að sýningin falli vel í kramið og lífgi upp á tilveru bæjarbúa.
Næstu sýningar á Múlan rús verða á morgun, laugardaginn 26. febrúar, mánudaginn 28. febrúar, 2 og 3 mars. Allar sýningar hefjast kl. 20.00.
Góða skemmtun
Opnir dagar verða í VA dagana 1. – 3. mars. Ýmsir hópar eru í boði til að brjóta upp hina hefðbundnu kennslu í skólanum. Nemendur eru beðnir um að kynna sér vel hópana sem í boði eru. Valið fer fram á morgun, fimmtudag kl. 13:05 í kennslustund. Þeir nemendur sem ekki eru í kennslustundum á þeim tíma eru beðnir um að velja hjá Sigrúnu skólaritara.
Lesa meira...Sl. föstudagskvöld var undankeppni VA fyrir söngkeppni framhaldsskólanna haldin á Rauða torginu, skemmtistað í Neskaupstað. Fjögur lög kepptu um sigurinn. Að auki söng Hrafna Idol keppandi lag úr Múlan rús sem Djúpið frumsýnir nk. föstudag og Sigfús Ólafur tók einnig nokkur lög á meðan dómnefndin réði ráðum sínum. Sigurvegari keppninnar og fulltrúi VA í úrslitakeppninni þann 09.04 á Akureyri verður Rannveig Júlía Sigurpálsdóttir. Hún söng frumsamið lag og spilaði undir á píanó. Hún flutti lagið óaðfinnanlega og mun verða verðugur fulltrúi VA á Akureyri. Við óskum Rannveigu innilega til hamingju með sigurinn.
Í dag er opnað fyrir miðannarmat nemenda, en þar gefst nemendum tækifæri til að meta stöðu sína í einstökum áföngum. Miðannarmatið gildir sem hluti af lokaeinkunn í áfanga. Það er reiknað út frá mætingu, verkefnum og útkomu á skyndiprófum það sem af er önn. Við viljum hvetja nemendur og aðstandendur til að fara vel yfir miðannarmatið og ræða útkomu þess.
Þessa dagana er unnið að skipulagi opinna daga sem haldnir verða í næstu viku, 1,2,3. mars. Dagskrá verður alla daga frá 09.00 til 15.00. Morguninn byrjar alltaf á að nemendur fá hafragraut áður en dagskrá hefst kl. 09.30. Hádegishlé verður milli 12.00 - 13.00 og þá fá nemendur hádegisverð í mötuneyti skólans án endurgjalds. Dagskráin verður birt nk. miðvikudag 23. febrúar, þá þurfa allir að kynna sér hana vel og velja síðan þá dagskráliði sem hugur þeirra stendur til. Fyrirkomulag verður útskýrt nánar á skjá skólans og í tímum á miðvikudag. Undanfarin tvö ár hafa opnir dagar verið með svipuðu sniði og hefur mikil ánægja verið með þá.
Á morgun föstudaginn 18. febrúar, verður undankeppni VA fyrir söngkeppni framhaldsskólanna. Undankeppnin fer fram á Rauða torginu og hefst upp úr kl. 20.00.
A.m.k. fjögur lög verða flutt og mun hljómsveit Sigfúsar Ólafs, nemanda VA leika undir.
Þá vekjum við athygli allra á að það styttist í frumsýningu á Múlan rús í leikstjórn Snorra Emilssonar þann 25. febrúar. Auglýsingum um aðra sýningadaga verða settar upp í Fjarðabyggð á næstunni. Við hvetjum alla til að panta sér miða sem fyrst því þetta er virkilega vel unnin og metnaðarfull uppsetning nemenda VA.
![]() |
Leikfélagið Djúpið sem er leikfélag Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað setur nú upp sína sjöttu sýningu. Í ár er það söngleikurinn Múlan Rús í leikstjórn Snorra Emilssonar sem settur verður upp í Egilsbúð. Nemendur sjálfir standa algjörlega að baki sýningarinnar og vinna t.d. sjálfir að búningargerð og leikmynd. Leikfélagið Djúpið setur upp metnaðarfullar sýningar á hverju ári og sem dæmi má nefna sýningarnar Vælukjói, Blái hnötturinn og Krummaskuð. Leikfélagið hefur því heldur betur sett svip sinn á menningarlífið í Neskaupstað. Í Verkmenntaskólanum er stór hópur nemenda í listaakademíu sem hefur verið í gangi frá því í haust. Nemendurnir hafa komið fram við ýmis tækifæri og sótt námskeið sem tengjast leiklist. Söngleikurinn Múlan Rús verður frumsýndur föstudaginn 25. febrúar klukkan 20:00 í Egilssbúð, Neskaupstað.
Lesa meira...Annarlegt miðannarmat verður birt á næsta mánudag. Miðannarmatið gildir allt að 20% af lokavitnisburði í áfanga. Þar er einkum horft til vinnu nemenda það sem af er önn, mætingar og niðurstaðan af skyndiprófum og verkefnum. Miðannarmatið er gott viðmið fyrir áframhaldandi vinnu á önninni.
Hið árlega Barkaball sem Menntaskólinn á Egilsstöðum heldur er í kvöld í Valaskjálf og stendur til 03:00.
Þar sem nemendafélag VA, NIVA ætlar að bjóða nemendum upp á rútuferð á ballið sendum við annan félagslífsfulltrúa okkar með rútunni og verður hann á ballinu.
Rútan fer frá VA kl. 22:30 og stoppar svo auðvitað á Eskifirði og Reyðarfirði. Það kostar 1500 í rútuna og 1900 á ballið.
Reglan á framhaldsskólaböllum er að ölvun ógildi miðann. Verði nemandi uppvís af ölvun verður haft samband við foreldra sem eiga nemendur yngri en 18 ára og ætlast er til þess að þeir sæki ungmennið í Egilsstaði. Aðrir nemendur verða teknir til hliðar og fá ekki aðgang á ballið.
Lið Verkmenntaskóla Austurlands féll út í fyrstu umferð spurningaþáttarins Gettu betur sem fór fram á Rás 2 í síðustu viku eftir 9-8 tap fyrir liði Menntaskólans í Kópavogi. Eins og tölurnar gefa til kynna var um geysispennandi keppni að ræða enda réðust úrslit ekki fyrr en í síðustu spurningu.
Lið VA var skipað nýnemunum Garðari Eðvaldssyni og Húnboga Gunnþórssyni auk reynsluboltans Guðmundar Guðlaugssonar. Eftir nokkuð stranga æfingatörn í janúar mættu drengirnir galvaskir og til í tuskið í útvarpshúsið á Egilsstöðum á föstudagskvöldið. Keppnin í útvarpinu var í þremur liðum; fyrst voru hraðaspurningar í 90 sekúndur, þar næst voru bornar upp 12 bjölluspurningar og að lokum var tóndæmi sem liðin þurftu að svara spurningu úr.
Lesa meira...![]() |
VA sendir vaska sveit í Gettu betur keppnina í kvöld. Þá keppir lið VA við Menntaskólann í Kópavogi. Síðasta æfing fyrir kvöldið fór fram í skólanum í dag kl. 10.00 en þá vann lið VA, þeir Garðar Eðvaldsson, Guðmundur Daði Guðlaugsson og Húnbogi Gunnþórson lið kennara, Jóhann Zóega, Þorbjörgu Ó Jónsdóttur og Pjétur St Arason með þremur stigum. Við óskum liðinu okkar góðs gengis og munum við fylgjast með keppninni á Rás 2, kl. 20.30 í kvöld. Áfram VA
Lesa meira...Um þessar mundir er allra veðra von. Það er mikilvægt að nemendur sem alla jafna ferðast á bílum sínum í og úr skóla velti fyrir sér að kaupa rútukort og taki rútu í stað þess að fara af stað í tvísýnu veðri. Það er ekki sjálfgefið að nemendur sem komast ekki á sínum bíl fái fjarvist sína þurkaða út vegna þessa ef rútan kemst yfir Skarð.
Við búum á köldu svæði eins og það er kallað í bókum Fjármálaráðuneytis og þurfum að taka mið af því hvað vetrarhörkur varðar.
Lesa meira...Líðandi vika er síðasta vika fyrsta talningatímabils. Það er mikilvægt að nemendur og aðstandendur fylgist vel með mætingum. Í næstu viku verður sendur póstur úr Innu, upplýsingakerfi framhaldsskóla til allra varðandi mætingar. Þá fá þeir nemendur bréf sem eru komnir undir eðlileg mætingaviðmið miðað við skólasóknarreglur VA sem er að finna á heimasíðunni og farið var yfir í tímum með nemendum fyrir stuttu.
Við hvetjum nemendur til að ganga vel um skólann sinn og passa vel upp á eigur sínar. Notkun munntóbaks er bannað í skólanum.
Í dag fengu nemendur og aðstandendur yngri nemenda sendar upplýsingar beint úr Innu í tölvupósti, um mætingu það sem af er annar. Það er mikilvægt að fylgjast vel með mætingu og bregðast við athugasemdum. Næstu upplýsingar verða sendar í lok fyrsta talningatímabils og svo framvegis í lok hvers tímabils. Áfram munu nemendur og aðstandendur fá send bréf þegar niðurstöður liggja fyrir eftir hvert talningatímabil ef mætingu er ábótavant. Skólasóknareglur VA er að finna á vef skólans.
Lesa meira...
Vegna handboltaleiksins við Spánverja í dag lýkur kennslu kl. 15.10, síðasti tíminn fellur niður. Þar sem leikurinn verður í opinni dagskrá geta nemendur horft á leikinn í skólanum. Rútuferðin á Eskifjörð og Reyðarfjörð verður strax að leik loknum. Áfram Ísland 
![]() |
Í dag föstudag var Smára Geirssyni afhent afmælisgjöf af tilefni sextíu ára afmæli hans sl. mánudag. Smári hefur unnið við skólann í tugi ára við góðan orðstír. Hann er í leyfi þetta skólaár og hefur m.a. kynnt sér framhaldsskóla í Noregi ásamt því að rita sögu hvalveiða norðmanna við Ísland.
Að sama tilefni fögnuðu starfsmenn VA því að nú er sólin farin að skína aftur á skólann og voru sólarpönnukökur með kaffinu að hætti Heiðu okkar, í mötuneytinu.
Frá og með deginum í gær hófst innritun fatlaðra nemenda í framhaldsskóla. Innritun stendur yfir til 28. febrúar. Þetta gefur skólum gott svigrúm til að skipuleggja nám þeirra nemenda sem sækja um skólavist. Upplýsingar um starfsbrautir má finna á heimasíðu skólans og annara framhaldsskóla á slóðinni http://framhaldsskolar.menntagatt.is
Lesa meira...
Um þessar mundir standa yfir æfingar hjá leikfélagi VA, Djúpinu, á söngleiknum Múlan Rús. Leikstjóri er Snorri Emilsson og tónlistarstjóri Ágúst Ármann. Þetta er afar metnaðarfullt verk að setja upp og leikhópurinn ósérhlífinn við æfingarnar. Stefnt er á að frumsýna leikritið þann 19. febrúar í Egilsbúð Neskaupstað.
Þá vinnur stjórn NIVA að undirbúiningi dagskrár árshátíðar en hún verður haldin í Félagsheimilinu Valhöll á Eskifirði þann 4. mars nk. Það er ljóst að mikill hugur er í stjórninni og eftirvænting meðal annara nemenda er vaxandi.
Lesa meira...![]() |
Haldið verður smáskipanámskeið í Verkmenntaskóla Austurlands í janúar – mars.
Kennt verður eftirtalda daga
Smáskipanám kemur í stað þess sem áður var nefnt 30rl réttindanám (pungapróf) og miðast atvinnuskírteinin nú við lengd skipa í stað brúttórúmlestatölu áður. Réttindin miðast skv. því við skip 12 metrar og styttri að skráningarlengd, m.v. að hafa lokið 12 mánaða siglingatíma skv. reglugerð nr. 393/2008.
Lesa meira...Nú eru rútukortin komin í hús hjá okkur og nemendur þurfa að kaupa þau í þessari viku til að vera örugg um að fá far með rútunni.Nemendur greiða 5000 krónur fyrir kortið og síðan er restin af verði kortsins dregin af jöfnunarstyrknum sem greiddur er til nemenda af LÍN í lok annar.
Það þarf ekki að minna nemendur á að mæta í alla tíma og að notkun munntóbaks er bönnuð í skólanum.
Lesa meira...Í dag kl. 18.00 hefst kennsla á sjúkraliðabraut í fjarfundarbúnaði VA í ýmsar áttir.
Laugardaginn 15.janúar hefst kennsla á LL og SG brautum kl. 10.00.
Þá hefst kennsla í iðnmeistaranáminu nk. föstudag, 14. janúar kl. 18.00 í tölvustofu VA, nánara skipulag verður sent nemendum í vikunni.
Nemendur þurfa að fylgjast vel með skilaboðum frá áfangastjóra og kennurum um fyrirkomulag kennslunnar. Þá verða upplýsingar settar á heimasíðuna í næstu viku þegar kerfisstjóri kemur reynslunni ríkari af Bett - tölvu og kennslugagnasýningu í London.
Lesa meira...Því miður komst rútan ekki til baka með nemendur á tilsettum tíma í dag. Í staðinn var nemendum sem ekki komust heim boðið í hressingu á heimavistinni, vöflur og skúffukökur. Þau lögðu síðan af stað frá heimavistinni um 17.30. Það má búast við að viðlíka tafir geti komið upp aftur og þurfa nemendur og aðstandendur að reikna með því þegar veður er eins og verið hefur sl. tvo daga.
Lesa meira...Kennsla verður í dag með eins eðlilegum hætti og hægt er. Rútan frá Reyðarfirði og Eskifirði fór í morgun en kom seint vegna þungrar færðar. Brottför er í dag til baka um 15.00 frá VA. Þeir nemendur sem þurfa að komast heim um helgina sem eru á heimavist geta valið að taka rútuna ef færð krefur í dag. Þau komast með henni á Reyðarfjörð. Þangað þarf að sækja þau.
Lesa meira...Í dag fimmtudaginn 6. janúar verða engar ferðir frá Reyðarfirði og Eskifirði vegna ófærðar og lélegs skyggnis.
Kennsla verður í skólanum í dag og er nemendum bent á að fylgjast með á Moodle, kennsluvefnum bæði hvað varðar skilaboð frá kennurum og kennsluefni næstu daga.
Lesa meira...Kennsla á vorönn 2011 hefst samkvæmt stundatöflu miðvikudaginn 5. janúar. Opnað verður fyrir stundatöflur nemenda í Innu eftir hádegi þriðjudaginn 4. janúar. Nemendur geta séð bókalista annarinnar hér á heimasíðunni undir – námið – vorönn 2011. Þar er einnig að finna Pésann en í honum er að finna helstu upplýsingar annarinnar.
Heimavistin opnar kl. 17:30 þriðjudaginn 4. janúar.
Lesa meira...Rútuferð sem átti að vera vegna prófasýningar fellur niður vegna ófærðar. Þeir nemendur sem ætluðu að skoða prófin sín fá að gera það í janúar í staðinn. Opnað hefur verið fyrir einkunnir í Innu. Haustönn 2010 er lokið og nemendur og starfsmenn á leið í jólafrí.
Þá er öllum prófum lokið í ár. Unnið er úr þeim fram á föstudag en þá verður opnað fyrir einkunnir í Innu kl.11.00. Einkunnir verða því ekki sendar heim í pósti þær eru eingöngu rafrænar. Á föstudaginn verður prófasýning kl. 11.30 - 13.00. Rúta fer frá Reyðarfirði kl. 10.35. Eskifirði kl. 10.50. Brottför verður til baka kl. 13.00. Gíróseðlar fyrir skólagjöldum næstu annar og bréf til nemenda fara í póst í dag. Gjaldskrá VA er að finna á heimasíðunni.
Lesa meira...Á morgun þriðjudag eru síðustu prófin á haustönninni. Á miðvikudaginn verða sjúkrapróf og þurfa nemendur að mæta með læknisvottorð með sér.
Föstudaginn 17.12 verður prófasýning í VA kl. 11.30 - 13.00, rútuferð verður frá Olís Rf. kl. 10.35 og Shell Esk. kl.10.50. Klukkan 11.00 þann dag verður opnað fyrir einkunnir nemenda í innu.
Unnið er að því að kortleggja nám nemenda á næstu önn, í lok þessarar viku verða reikningar vegna skólagjalda sendir heim til nemenda.
Kennsla hefst þann 05.01. 2011 samkvæmt stundaskrá kl. 08.30.
Lesa meira...Í dag föstudaginn 3. desember er síðasti kennsludagur haustannar, skóla lýkur kl. 14.05. Á morgun er fyrsti prófdagur og fer rútan frá Olís Reyðarfirði kl. 08.05. Frá Eskifirði kl. 08.20. Brottför verður til baka frá VA kl. 11.05. Þessi tímasetning helst alla prófadagana. Mikilvægt er að nemendur mæti tímanlega í próf. Ekki er leyfilegt að hafa með sér annað en skrif-færi í próf. Vinsamlegast lesið prófreglur VA sem er að finna við hverja stofu.
Lesa meira...![]() |
Í dag var hefðbundin jólastund í setustofu nemenda í tilefni af 1.desember. Þar las Jóhanna Fanney jólasögu, Elvar Jónsson kennari rifjaði upp sögu fullveldisdagsins frá árinu 1918. Hann lagði áherslu á mikilvægi þessa dags fyrir fullveldi Íslands. Þá sungu nemendur og starfsmenn jólalög við undirleik Ágústar Ármanns. Boðið var upp á jólaöl og piparkökur. Þessi siður hefur fest sig í sessi og er skemmtileg hefð í VA.
Lesa meira...Kennslu haustannar lýkur nk. föstudag. Fyrstu próf verða laugardaginn 4. desember kl. 09.00 - 10.30.
Rútan fer frá Olís Reyðarfirði kl. 08.05 frá Shell Eskifirði kl. 08.20. Brottför verður frá VA kl. 11.05. Þessir tímar gilda alla prófadaga.
Það er mikilvægt að nemendur kynni sér prófareglur VA sem finna má á heimasíðunni.
Lesa meira...Í menningarferð nemenda til Akureyrar var tekið upp á þeirri nýbreytni að bjóða nemendum upp á að blása í áfengismæli í dagslok og sýna þannig fram á þau hefðu ekki drukkið áfengi. Nöfn þessa nemenda voru síðan sett í happdrættispott, svokallaðan edrúpott, þar sem þau hafa tækifæri á að vinna verðlaun. Fyrir stuttu voru nöfn þriggja nemenda dregin úr þessum potti og unnu þau máltíð fyrir tvo hjá Olís í Neskaupstað eða Reyðarfirði. Það voru þau Ásbjörn Huldar Hilmisson, Bergrós Sævarsdóttir og Sveinn Gunnar Guðmundsson sem dregin voru út og óskum við þeim til hamingju með það. Olís í Neskaupstað og Reyðarfirði þökkum við kærlega fyrir vinningana.
Lesa meira...Sl. vor sótti VA um að verða heilsueflandi framhaldsskóli frá og með haustinu 2011.
Fram að því er undirbúningur í höndum forvarnarfulltrúa og stýrihópa í þeim fjórum þáttum sem átakið gengur útá.
Næringu, geðheilsu, hreyfingu og lífsstíl nemenda. Unnið verður með þessa þætti og reynt að stuðla að bættu heilbrigði nemenda og starfsmanna sem skapa mun jákvæðan lífsstíl og aukna vellíðan. Á morgun þriðjudag, 23. nóvember, fáum við heimsókn frá Lýðheilsustofnun sem er ein af stoðstofnunum þessa verkefnis ásamt Landlæknisembættinu og Mennta - og menningarmálaráðuneytinu. Við hlökkum mikið til að takast á við þetta verkefni með nemendum VA.
Lesa meira...![]() |
Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í skólanum í dag. Nemendur söfnuðust saman í setustofunni og hlýddu á ljóðalestur, hugleiðingar og sögu. Þeir nemendur sem tróðu upp voru Þórhildur Eir Sigurgeirsdóttir, Sindri Már Smárason, Sunnu Júlía Þórðardóttir og Karítas Ósk Valgeirsdóttir. Nemendur listaakademíunnar sungu svo þrjú lög við undirleik Ágústar Ármanns Þorlákssonar og Arnars Guðmundssonar.
Nemendur og starfsfólk áttu ánægulega stund saman í tilefni dagsins.
Lesa meira...Þriðja fjarvistartímabilinu lauk sl. föstudag. Í framhaldi af því hefur verið farið yfir mætingu nemenda og munu einhverjir nemendur og aðstandendur fá send bréf heim vegna slakrar mætingar nemenda. Það er mikilvægt að foreldrar fylgist með mætingu ungmenna sinna og þeir sem fá boð á fund með umsjónakennara og/eða skólameistara mæti.
Lesa meira...Sl. helgi hélt Snorri Emilsson leikstjóri leiklistarnámskeið fyrir nemendur í listaakademíu VA sem flest munu koma að uppsetningu leikfélagsins Djúpsins á Moulan Rouge í febrúar nk. Þar voru m.a. þjálfaðir hópeflisleikir, spuni, tjáning, raddbeiting og traust til meðleikara. Leikstjórinn var afar ánægður með nemendur eins og kom fram "Þau voru svo meðvituð og fókuseruð að það var hrein unun að vinna með þeim, það bar ekki á nokkurri þreytu hjá þeim þrátt fyrir 7 klukkustunda tarnir og nóg annað sem þurfti að klára um helgina". Það verður spennandi að fara í leikhús á vori komandi, því það ber vott um mikinn metnað að ráðast í uppsetningu á þessu verki.
Lesa meira...![]() |
Um helgina var gerð atlaga að VA með því að kast glerkrukkum með barnamat í, í suðurveggi bóknámshússins. Það verður töluvert verk að hreinsa þessi ummerki. Þeir hinir sömu réðust einnig að spennistöð innar í bænum. Þá hvarf hluti af hliði staðsett við húsið norðaustanvert. Ef einhverjir geta gefið upplýsingar um þessi leiðindaratvik, sem að öllum líkindum áttu sér staða aðfaranótt sunnudags, þá vinsamlegast hafið samband við lögreglu og/eða skólameistara.
Það er innan við einn mánuður eftir af kennslu haustannar. Það er því mikilvægt að nemendur spíti í og vinni vel og nái dampi á þessum síðustu mikilvægu vikum. Allir eiga að vera búnir að velja nám næstu annar. Fyrsti prófdagur er laugardagur 4. desember.
Lesa meira...Menningarferðin gekk að mestu vel og komu allir heilir heim. Hópurinn var mjög duglegur að taka þátt í þeim uppákomum sem í boði voru og nutu þau þeirra.
Við lærum af hverri ferð og nýtum reynsluna til að lagfæra þá þætti sem betur geta farið. Á meðan nemendur standa við reglur getum við haldið svona ferðum á dagskrá.
Það var afar ánægjulegt að fá eitt foreldri með í ferðina og hafði hann orð á hvað nemendahópurinn væri samheldinn og að ekki bæri á að það skipti þau máli hvaðan þau væru. Að hinir fullorðnu gætu lært af þeim. Látum þau tilmæli berast sem víðasti í bæjarfélagið.
Lesa meira...Næst komandi föstudag verður árleg menningarferð VA til Akureyrar.
Það er NIVA nemendafélag skólans sem skipuleggur ferðina í samvinnu með félagslífsfulltrúunum. Farið verður frá VA kl. 13.30 29. október. Ýmisleg afþreyging verður fyrir nemendur og þar sem þátttaka er svo almenn gista þau á þremur mismunandi stöðum. Það er mikilvægt að foreldrar ítreki reglur sínar og skólans um áfengislausa ferð og að nemendur hlíti öllum reglum sem gilda í ferðinni. Kennararnir sem verða með í för eru Ingibjörg og Varði og hafa foreldrar þegar fengið símanúmer þeirra. Þetta verður skemmtileg ferð og sannarlega brot á hefðbundinni helgi nemenda. Við óskum öllum góðrar ferðar og heimkomu.
Lesa meira...Vetrarfrí verður í VA föstudaginn 22.10 og mánudaginn 25. 10. Skólinn og heimavistin verða lokuð þessa daga. Við vonum að allir njóti þessara frídaga og endurnærist fyrir lokatörn haustannar.
Lesa meira...Fyrirhuguð er menningarferð til Akureyrar helgina 29.-31. október 2010. Farið verður með rútu og gist á Gistiheimili Akureyrar. Nemendur munu fara í leikhús, út að borða, í keilu, á skauta og margt fleira. Þrír starfsmenn skólans fara með og ber nemendum að fara eftir þeim reglum sem þeir setja. Almennar skólareglur gilda í ferðinni.
Foreldrar/forráðamenn nemenda undir 18 ára þurfa að skrifa undir leyfisblað sem liggur frammi í afgreiðslu skólans og skila því þar fyrir þriðjudaginn 26. október. Með undirskrift hefur foreldri/forráðamaður gefið nemendanum leyfi til að að fara í ferðina en einnig skuldbundið sig til að sækja nemendann ef hann brýtur reglur ferðarinnar.
Ef einhverjar spurningar kveikna hafðu þá samband við Ingibjörgu eða Varða í síma 477-1620 eða með tölvupósti ingibjorg@va.isog vardi@va.is
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í VA á næstu önn fyrir þá sem ekki eru þegar nemendur í skólanum. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðunni undir Nám - vorönn 2011.
Lesa meira...Í dag kl. 11.35 fellur kennsla niður í einn tíma svo nemendur geti valið áfanga fyrir næstu önn. Umsjónarkennarar verða til aðstoðar við valið. Mikilvægt er að allir nemendur velji og gangi frá sínu vali. Ef einhver er veikur í dag þá þarf sá hinn sami að setja sig í samband við umsjónarkennara sinn og ljúka valinu sem fyrst.
Lesa meira...Dagskólanemendur skólans hafa nú fengið miðannarmat frá kennurum sínum. Matið er m.a. gert í þeim tilgangi að veita nemendum aðhald og leiðbeiningar við námið. Miðannarmat skólans leggur grunn að lokaeinkunn hvers áfanga, en matið gildir 20%. Matið byggir m.a. á prófum, verkefnaskilum, vinnubrögðum og ástundun.Forráðamönnum er bent á að kynna sér vel niðurstöður miðannarmatsins og stuðla með þeim hætti að góðum tengslum við nemendur og ekki síst við starfsfólk skólans. Árangursrík samskipti heimila og skóla skila sér oftast í betri líðan og námsárangri nemenda. Þá eru forráðmenn hvattir til að hafa samband við umsjónarkennara ef skýringa er þörf.
Valdagurinn verður 20. október en þá velja nemendur áfanga næstu annar. Námsframboðið (áfangar í boði) er á heimasíðunni. Mikilvægt er að nemendur setji sig vel inn í það til að vera undirbúnir fyrir að slá það inn á valdegi.
Lesa meira...Á morgun föstudaginn 1. október heldur Menntaskólinn á Egilsstöðum dansleik í Valaskjálf sem stendur til 03.00.
Þar sem nemendafélag VA, NIVA ætlar að bjóða nemendum upp á rútuferð á ballið sendum við annan félagslífsfulltrúa okkar með rútunni og verður hann á ballinu.
Reglan á framhaldsskólaböllum er að ölvun ógildi miðann. Verði nemandi uppvís af ölvun verður haft samband við foreldra sem eiga nemendur yngri en 18. ára og ætlast er til þess að þeir sæki ungmennið í Egilsstaði. Aðrir nemendur verða teknir til hliðar og fá ekki aðgang á ballið.
Lesa meira...Á morgun föstudaginn 24. september verður brottför rútunnar frá VA kl. 14.10 í stað 15.00. Þetta gildir bara þennan föstudag.
Þá er mikilvægt að foreldrar/forráðamenn nemenda skili inn vikrum netföngum því það hefur borið á að þau séu ekki rétt í okkar gögnum.
Lesa meira...Þórður Júlíusson (Doddi) átti merkisafmæli í síðustu viku og eins og siður er hér hjá okkur fékk hann pakka á kennarastofunni í dag.
Af því tilefni var afmælissöngurinn sunginn á fjórum tungumálum, þýsku, dönsku, sænsku og íslensku. Til hamingju með afmælið Doddi
Lesa meira...![]() |
Íþróttaakademían sem starfrækt er við VA fékk það verðuga verkefni að klífa Nípukoll nú á laugardag.
Eins og sjá má á myndunum var veðrið eins og best gerist í september. Það fengu margir aðrir einnig sem voru í leitum í Fannardal inn af Norðfirði.
Krakkarnir stóðu sig með mikilli prýði og komust flest á toppinn og voru þau ekki æst að fara niður aftur eftir nestið m.a. vegna þess hve veðrið var gott.
Lesa meira...Í dag miðvikudag var framkvæmd brunaæfing meðal nemenda og starfsmanna í bóknámshúsi VA. Að mestu gekk hún vel og nemendur voru snöggir að fylgja þeim fyrirmælum sem þau fengu. Einhverjir hnökrar komu fram við framkvæmd rýmingar sem hjálpar okkur að endurskoða verklag við brunaaðstæður. Skökkviliðsaðilar munu í framhaldinu heimsækja nemendahópa og fara með þeim yfir það sem þau þurfa að kunna. Það er ljóst að slíkar æfingar eru mikilvægar og verðmætar fyrir skólann og á slökkviliðið þakkir skyldar.
Lesa meira...![]() |
Árleg ganga nemenda VA var á þriðjudaginn sl í blíðskaparveðri. Gengið var frá Oddskarði í yfir Geldingaskarð - Tröllabotna niður Seldal og þessir hressu krakkar og kennarar fóru svo á Hólafjallið í leiðinni.
Í lok göngu var öllum nemendum og kennurum boðið upp á grillaðar pylsur við félagsaðstöðu hestamannafélagsins Blæs í Norðfjarðarsveit.
Á morgun þriðjudaginn 7. september verður kynningakvöld fyrir foreldra nýnema haustannar, fædd 1994.
Á þessari kynningu verða stjórnendur, námsráðgjafi, umsjónakennarar og forvarnarfulltrúi. Þá verður einnig kosning tveggja fulltrúa í stjórn foreldrafélags VA úr röðum forráðamanna nýnema. Allir forráðamenn nemenda undir 18 ára aldri eru sjálfkrafa meðlimir í foreldrafélagi skólans.
Lesa meira...Næstkomandi þriðjudag, þann 7. september verður árleg gönguferð nemenda og kennara VA. Að þessu sinni verður gengið frá Oddskarði niður Seldal og að reiðskemmu Blæs í Fannadal. Þar verður göngugörpum boðið upp á grillaðar pylsur. Þetta er skylduganga allra nemenda og mikilvægt að þeir mæti í góðum göngufötum og gönguskóm. Lagt verður af stað frá skólanum um kl. 10.30. Tveir fyrstu tímar þriðjudags verða kenndir samkvæmt stundarskrá.
Lesa meira...Kennsla í VA er fjölbreytt og í þessari fádæma blíðu sem nú ríkir hafa kennarar verið duglegir að fara út úr skólahúsinu með nemendur og leggja fyrir þau útiverkefni. Á morgun er hefðbundin kennsla til 12.00 en eftir það hefst busun nýnema. Hún mun fara fram á bæjarbryggjunni fyrir neðan Egilsbúð. Nýnemar eru hvattir til að mæta með þann búnað sem þegar hefur verið kynntur fyrir þeim í lífsleiknitímum. Rútan fer á venjulegum tíma á föstudegi, kl. 15.00 frá bílastæðinu neðan við Egilsbúð. Góða skemmtun.
Lesa meira...Í annari kennsluviku haustannar eru nemendur að undirbúa busadaginn sem verður nk. föstudag. Glens og grín einkennir samskipti yngri og eldri nemenda. Það er þó mikilvægt að allt grín sé innan siðgæðismarka. Þeir nemendur sem treysta sér ekki til að taka þátt í uppákomum vikunnar þurfa að gefa sig fram við umsjónakennara. Það er mikilvægt að muna að "aðgát skal höfð í nærveru sálar".
Lesa meira...Nú ættu allir nemendur að vera komnir með bækur og farnir að rata um skólahúsnæðið. Það er mikilvægt að nemendur mæti í skólann í þá tíma sem þeir eru skráðir í. Einnig er mikilvægt að foreldrar fylgist vel með mætingu ungmenna sinna.
Að gefnu tilefni vil ég benda foreldrum á að VA hefur engin afskipti af dansleiknum sem Menntaskólinn á Egilsstöðum stendur fyrir á morgun, föstudag. Nemendur úr VA fara á eigin vegum.
Lesa meira...Skólaakstur verður með svipuðu sniði og sl. vetur nema að nú mun Tanni travel sjá um aksturinn.
Fyrsta ferð verður frá Olís á Reyðarfirði kl. 07.35, frá Shell á Eskifirði kl. 07.50 þriðjudaginn 24. ágúst. Áætluð koma að skólanum er kl. 08.20.
Brottför verður frá VA kl. 15.30 þriðjudaginn 24. sept. Aðra daga er brottför frá VA kl. 16.25.
Tekið verður á móti pöntun á rútukorti hjá ritara í fyrstu kennsluviku, 24 - 27. ágúst. Mikilvægt er að nemendur gangi frá kortapöntun sem fyrst.
Lesa meira...Kennsla á þessum brautum hefst í viku 36 eða eftir 6. september.
Nánari upplýsingar verða sendar í tölvupósti og settar á heimasíðuna í næstu viku.
Lesa meira...Miklar viðhalds framkvæmdir eiga sér stað við skólann um þessar mundir. Verið er að skipta um þak, mála og ditta að ýmsu utanhúss. Þá er endurskipulagning í gangi innan dyra sem nemendur eiga eftir að taka eftir. Það er mikið atriði að allir gangi vel um húsnæði skólans og að verðandi nemendur tileinki sér góða umgengni. Í því skyni er nemendum bent á að hafa inniskó í skólanum til að nota yfir daginn því ekki er ætlast til að notaðir séu útiskór inni.
Lesa meira...Tónspil í Neskaupstað mun verða með skiptibókamarkað fyrir nemendur í framhaldsskólum nú á haustdögum.
Þeir nemendur sem eiga bækur frá fyrra námi ættu endilega að mæta með gömlu bækurnar og skipta þeim, þar er fjármunum vel varið.
Hafið samband við Tónspil í síma 477-1580 til að fá nánari upplýsingar. Bókalisti haustannar er á heimasíðu skólans.
Lesa meira...Starfsemi VA er að komast í gang eftir sumarfrí. Unnið er við viðhald á bóknámshúsinu og við skipulangningu haustannar.
Þeir nemendur sem fengið hafa skólavist og gíróseðil heim þurfa að greiða þá sem fyrst því eftir helgi verður litið svo á að allir sem ekki hafa greitt innritunargjöldin ætli ekki að stunda nám við skólann í haust.
Skólasetning verður 23. ágúst kl. 15.00, kennsla hefst 24. ágúst.
Þeir sem þurfa að fá upplýsingar eða ná sambandi við skólann hringi í síma 477-1620 alla daga fram að kennslu frá 09.00 - 16.00.
Lesa meira...Þeir sem þurfa að ná sambandi sendið tölvupóst á olga@va.is
Við vonum að starfsmenn, nemendur og aðrir velunnarar eigi ánægjulegt sumar.
Í dag 23. júní voru bréf send út til nýnema sem sótt hafa um skólavist í VA. Allir fengu skólavist og er mikilvægt að þeir staðfesti hana með því að greiða skólagjöldin á tilsettum tíma. Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með 28. júní til og með 5. ágúst. Kennsla hefst þann 24. ágúst. Það er mikilvægt fyrir verðandi nemendur að fylgjast með heimasíðu skólans í ágúst því allar almennar upplýsingar verða birtar þar.
Í dag miðvikudag voru greiðsluseðlar sendir í pósti til endurinnritaðra nemenda VA. Það er mikilvægt að nemendur greiði innritunargjöldin á gjalddaga því annars er skólavist ekki trygg. Gerð stundartaflna byggir á þeim nemendum sem skráðir eru í nám og greiða skólagjöld. Nýnemar fædd 1994 fá sín bréf þann 23. júní nk. Er það í samræmi við samræmdar reglur allra framhaldsskóla á landinu.
Ennþá eru nokkrir nemendur sem ekki hafa skilað lyklum af skápum eða bókum af bókasafni. Þessir nemendur munu ekki geta opnað fyrir innu til að skoða stundaskrá sína í ágúst áður en skólinn hefst.
Í dag 11. júní er síðasti dagur fyrir 10. bekkinga til að sækja um framhaldsskóla fyrir næsta skólaár.
Í framhaldinu verður unnið úr umsóknunum. Mennta - og menningarráðuneytið hefur innleitt nákvæmt dagatal um vinnslu umsókna og hvenær svör á að senda út til nemenda. Nýnemar geta vænst þeirra eftir 23. júní. Eldri nemendur fá send bréf og gíróseðla í næstu viku, sem mikilvægt er að greiða á gjalddaga. Ellegar eiga þeir ekki vísa skólasókn í haust. Flestir nemendur sem sækja um nám í VA fá skólavist en stundum á annari námsbraut en sóst er eftir, vegna óuppfylltra skilyrða um námsárangur.
Þessa dagana er tiltekt eftir veturinn og undirbúningur fyrir næsta skólaár í gangi. Það er mikilvægt að nemendur skili gögnum sem sannarlega eru í eigu skólans svo þeir geti komið að hreinu borði í haust. EInnig er læst fyrir INNU hjá þeim sem skulda e-h til skólans eða í sjoppunni. Það mun hafa áhrif á aðgengi að stundaskrá nemenda í haust. Við viljum hvetja nemendur til að ganga frá sínum málum gagnvart VA sem allra fyrst.
Föstudaginn 21. Maí voru 39 nemendur brautskráðir frá VA.
7 stúdentar, þar af 2 með viðbótarnám til stúdentsprófs, 11 húsasmiðir, 2 vélvirkjar, 6 sjúkraliðar, 4 leiðbeinendur í leikskólum, 1 stuðningsfulltrúi í grunnskólum, 3 meistaranemar og 3 rafvirkjar en er þetta í fyrsta sinn sem skólinn útskrifar rafvirkja eftir nýrri námsskrá. Því miður gátu ekki allir verið viðstaddir athöfnina sem fram fór í kirkju – og menningarmiðstöðinni í Fjarðabyggð. Viðurkenningar voru veittar, fyrir frábæran námsárangur sem Sigrún Inga Sigurlínusardóttir fékk ásamt viðurkenningu í íslenskur. Framfara viðurkenningu fékk Una Gunnarsdóttir, bróðir hennar Gísli Gunnarsson sem bæði var að ljúka rafvirkjun og viðbótarnámi til stúdentsprófs fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í rafvirkjun. Eyþór Halldórsson og Símon J Benediktson fengu viðurkenningar fyrir ágætan námsárangur í húsasmíði og Hallur R Hauksson fyrir frábæran námsárangur í vélvirkjun. Hann hélt ræðu fyrir hönd útskriftarnema og lagði hann áherslu á vináttuna í sínni ræðu.
Formaður skólanefndar Jón Björn Hákonarson hélt ræðu og lagði hann áherslu á mikilvægi félagslífs í framhaldsskólum og þess sem sú þátttaka skilar nemendum. Hann lagði einnig áherslu á hvað mikilvægt er fyrir Fjarðabyggð að standa vörð um Verkmenntaskólann og að íbúar þyrftu að styðja hann í verki með því að beina ungmennum sínum til náms þar. Einnig að nemendur frá VA og öðrum landsbyggðarskólum væru með sambærileg próf og nemendur frá stærri skólum en því er gjarnan haldið fram að sé ekki.
Ræðu skólameistara má finna á heimasíðunni undir ýmislegt eða að smella á þennan tengil.
![]() |
Dagana 14. – 16. maí sl. fór fram sveinspróf í Verkmenntaskólanum. 8 nemendur þreyttu prófið sem var smíði snúins tréstiga . af þessum átta nemendum voru 2 sem höfðu farið í gegn um raunfærnimat á vegum Iðunnar á haustdögum og luku námi í dagskóla VA á vorönn.
Nöfn þeirra sem luku sveinsprófi talið frá vinstri: Símon Jóhann Benediktsson, Eyþór Halldórsson, Árni Magnússon, Vilhelm Arnar Kristjánsson, Björgvin Óskarsson, Trausti Magnússon, Jónas Bjarki Björnsson og Sveinn Daníel Sigurðsson.
Lesa meira...Á morgun fimmtudag verður prófasýning í VA kl. 11.30 - 13.00 þar geta nemendur komið og skoðað úrlausnir sínar úr prófum vorannar í viðurvist kennara. Það er mikilvægt að nemendur nýti þennan rétt sinn.
Rútan fer frá Olís á Reyðarfirði kl. 10.45. Frá Eskifirði kl. 11.00. Brottför frá VA kl. 13.00
Einnig minnum við nemendur á að ef þeir eiga eftir að skila lyklum af skápum, bókum á bókasafn eða gera upp skuldir við sjoppuna, þarf að ganga frá því á morgun. Að öðrum kosti er ekki hægt að opna fyrir niðurstöður prófa á innu.
Vorannar prófum við VA er lokið. Eingöngu eiga nokkrir nemendur eftir að ljúka sjúkraprófum á morgun, laugardag.
Framundan er yfirferð prófa og úrvinnsla námsafkasta nemenda í lok annar. Einkunnir verða birtar á Innu - upplýsingavef framhaldsskóla nk. fimmtudag.
Mikilvægt er að nemendur sæki um nám fyrir næsta vetur sem fyrst.
Brautskráning nemenda frá skólanum verður næstkomandi föstudag, 21. maí kl. 16.00 í Kirkju - og menningarmiðstöð Fjarðabyggðar.
Í dag þriðjudag verður opið hús í VA kl. 18.00 - 20.00. Þá gefst gestum tækifæri á að koma í heimsókn, skoða skólann, hitta starfsfólk og fá upplýsingar um hvaðeina sem skiptir máli fyrir nýja nemendur. Við bjóðum 10.bekkinga og aðstandendur þeirra sérstaklega velkomna.. Við vekjum sérstaka athygli gesta á verknámshúsi skólans sem er við hlið íþróttahússins en þangað er gaman að koma og kynna sér góða aðstöðu til verknáms. Verið hjartanlega velkomin í Verkmenntaskóla Austurlands.
![]() |
Þann 11. janúar 2010 undirrituðu Olga skólameistari f.h. VA-tréiðaðardeild og Guðbjartur Hjálmarsson f.h. Svarthamra ehf.samning um smíði 14 fermetra gesthúss. Samningurinn fól í sér að Svarthamar leggur til allt efni er þarf til verksins en nemendur 4. annar í húsasmíði við VA sjá um framkvæmdarliðin. Húsinu er skilað fullbúnu utan sem innan og þar með töldum raflögnum sem nemendur í rafdeild VA sáu um að framkvæma.
Lesa meira...Mánudaginn 3.maí hefjast próf í VA kl. 09.00. Rútan fer frá Reyðarfirði kl. 08.05 og frá Eskifirði 08.15. Brottför frá VA er kl. 11.10.Nemendur þurfa að mæta með skriffæri og þau gögn sem leyfileg eru í hvert próf. Vakin er athygli á reglum um próf á veggjum skólans. Nemendur þurfa að mæta tímanlega í próf. Listar með nöfnum þeirra hanga í báðum anddyrum, þar eru upplýsingar um í hvaða stofu hver nemendi á að taka sitt próf. Gangi ykkur vel í prófunum.
Síðasta kennsluvikan er runnin upp.
Nemendur eru að ljúka námsefni annarinnar og að skila verkefnum. Nú skiptir máli að nýta tímann vel og skipuleggja sig bæð við að klára það sem fyrir hefur verið lagt og einnig sem undirbúning fyrir prófin sem hefjast mánudaginn 3.maí. kl. 09.00.
Í kvöld, síðasta vetrardag, verður framhaldsskólaball sem ME heldur í Valaskjálf. NIVA verður með rútu á ballið. Að öðru leiti kemur VA ekki að skipulagi þessa dansleiks, né sendir kennara með rútunni. Ölvun ógildir miðann, þannig að það er von okkar að nemendur VA verði sjálfum sér og skólanum sínum til sóma.
Gerð rafrænnar ferilskrár – Europass – fimmtudaginn 15. apríl
Ársæll Þorsteinsson frá Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands mun kynna gerð rafrænnar ferilskrár, Europass, næstkomandi fimmtudag 15. apríl kl. 11:55 í stofu 1. Europass er safnheiti yfir staðlaða menntunar- og starfshæfnimöppu og hentar vel þeim sem stefna á nám eða störf í Evrópu í framtíðinni. Meginmarkmið Europass er að auðvelda gegnsæi menntunar og starfsreynslu, bæði heima og að heiman. Europass er einnig ætlað að auðvelda samhæfingu prófskírteina og viðurkenninga og þar með auðvelda samanburð menntunar og reynslu yfir landamæri í Evrópu. Europass ferilskráin hentar ungu fólki sérstaklega vel þar sem hún er fyllt úr á netinu, er eins á rúmlega 20 tungumálum og lögð er áhersla á hæfni og færni ekki einungis með formlegum prófum heldur einnig á lífsins leið. Frekari upplýsingar má sjá á www.europass.is
Laugardaginn 10. apríl n.k. fer Söngkeppni framhaldsskólanna fram á Akureyri. Jóhanna Fanney Hjálmarsdóttir mun keppa fyrir hönd VA. Einnig munu núverandi og fyrrverandi nemendur af háriðnbraut sjá um greiðslu keppenda í umsjá deildastjóra brautarinnar Svanlaugar Aðalsteinsdóttur.
Ekki reyndist nægur áhugi meðal nemenda skólans á að fara í rútu norður, gista og vera í umsjá skólans á meðan á keppninni stendur. Því mun skólinn ekki taka ábyrgð á þeim nemendum sem fara á eigin vegum til Akureyrar þessa helgi né senda starfsmann til eftirlits með nemendum.
Þriðjudaginn 6.apríl opnar skrifstofa kl. 09.00.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 7.apríl kl. 08.30. Kennslu á vorönn lýkur þann 30.apríl. Mikilvægt er að nemendur mæti og vinni vel það sem eftir lifir annar.
![]() |
Í dag er síðasti kennsludagur fyrir páskafrí. Kennsla hefst aftur miðvikudaginn 7. apríl.
Skrifstofa VA er lokuð um páskana frá 29. mars – 6. apríl 2010.
Gleðilega páska.
![]() |
Í kvöld er lokasýning leikfélagsins Djúpsins á verkinu Hið ljúfa líf. Sýningin hefst kl 21:00.
![]() |
Vegna ófærðar og veðurs er sýningunni sem átti að vera í kvöld aflýst. Næstu sýningar verða þriðjudaginn 23.mars kl. 20:00 og miðvikudaginn 24. mars kl. 21:00.
Lesa meira...Þá er loks komið að því að frumsýna leikritið Ljúfa líf eftir Benóný Ægisson í leikstjórn Árna Magnússonar.
Á morgun laugardag er frumsýning í Egilsbúð kl. 21.00. Miðaverð er 1.500.- krónur.
Önnur sýning verður mánudaginn 22. mars kl. 20.00. Lokasýning verður svo miðvikudaginn 24. mars.
Miðasala er við innganginn og einnig er hægt að panta miða í VA í síma 477-1620 virka daga.
Það hefur gengið á ýmsu á æfingaferlinu en nú er allt að smella.
Mikil eftirvænting ríkir í herbúðum leikara en margir hafa lagt hönd á plóg til að koma öllu í höfn.
Er öllum velunnurum, aðstoðarfólki og fyrirtækjum þökkuð vel unnin störf við undirbúning.
GÓÐA SKEMMTUN.
Um þessar mundir er Djúpið, leikfélag VA að leggja lokahönd á æfingar á leikritinu Ljúfa Líf eftir Beníoný Ægisson.
Þetta er söngleikur og leikur hljómsveitin Stjörnustrákar undir í verkinu. Frumsýning verður laugardaginn 20. mars í Egilsbúð.
Miðasala er í Egilsbúð klukkutíma fyrir sýningu. Einnig er hægt að panta miða í skólanum á opnunartíma skrifstofu, 08.00 - 16.00. Miðaverð er 1.500 krónur.
Væntanleg úrskriftarefni þurfa að setja sig í samband við ritara vegna útskriftarhúfu sem þarf að panta fyrir miðjan mars. Ritari er með allar upplýsingar, þannig að þið snúið ykkur til hennar hið allra fyrsta.
Valdagur var í gær og þá völdu flestir nemendur rafrænt, nám fyrir næstu önn. Þeir sem ekki gengu frá vali sínu í gær þurfa að gera það hið allra fyrsta. Vinsamlegast snúið ykkur til umsjónakennara ykkar og gangið frá valinu. Nemendur fæddir 1990 eða fyrr snúa sér til áfangastjóra.
Nýlega fékk leikfélagið Djúpið styrk frá Agli Rauða að upphæð 100.000. kr til uppsetningar á leikritinu Ljúfa líf eftir Benóný Ægisson sem nemendur eru að æfa um þessar mundir. Fyrr í vetur fékk Djúpið styrk frá Samvinnufélagi útgerðarmanna í Neskaupstað. Stefnt er á að frumsýna síðari hluta mars. Leikstjórn er samvinnuverkefni áhugasamra kennara og nemenda.
Háskólakynning verður í ME í dag á milli 11.00 - 13.30. Þar gefst nemendum tækifæri til að kynna sér nám á háskólastig. Rúta verður frá VA kl. 09.45.
Fimmtudaginn 4. mars kl. 13:10 velja nemendur áfanga næstu annar á fundi með umsjónakennara sínum. Mikilvægt er að nemendur kynni sér áfangaframboð og skoði námsáætlanir sínar fyrir fimmtudag. Þeir nemendur sem þurfa aðstoð geta pantað tíma hjá námsráðgjafa.
Lesa meira...Að gefnu tilefni langar okkur að taka það skýrt fram að nemendur fæddir 1994 fá ekki inngang á árshátíð né dansleik í Egilsbúð í kvöld sem nemendur VA halda . Við hvetjum foreldra því til að senda börn sín ekki á Norðfjörð í kvöld.
Árshátíð VA verður föstudaginn 26.febrúar í Egilsbúð. Húsið opnar kl. 19.30 og sendur dansleikur til 03.00. Kynnar og skemmtikraftar verða Auddi og Gilzenegger. Nemendur verða með annál og hópsöngur verður í umsjá Sigfúsar Ólafs Guðmundssonar sem einnig mætir með hljómsveit sína Stjörnustrákana . Það er mikill metnaður í stjórn NIVA og aðstoðarfólki þeirra að vel takist til og þau hafa lagt mikla vinnu í undibúning. Matseðill verður tveggja rétta. Hægt verður að láta taka mynd af sér í sínu fínasta pússi á staðnum. Að sjálfsögðu er þetta áfengislaus skemmtun. Það er von allra að allir mæti með góða skapið og skemmti sér vel í góðum félagsskap.
Lesa meira...Á morgun þriðjudag 23.febrúar hefjast opnir dagar í VA. Rútan fer frá Reyðarfirði á venjulegum tíma kl. 07.35. Kennt verður fyrstu tvo tíma dagsins. Síðan tekur óhefðbundin dagskrá við til 15.00 Brottför rútunnar verður frá VA kl. 15.15. Miðvikudag og fimmtudag hefst dagskrá kl. 09.30 og brottför frá Rf verður því kl. 08.35, frá Esk kl. 08.50. Heimferð verður kl. 15.15. Það er von okkar að þessir dagar heppnist vel og að allir mæti í valda dagskrárliði. Föstudaginn 26. febrúar verur árshátið VA. Nánar um hana síðar. Góða skemmtun.
Lesa meira...
Í næstu vikur eru opnir dagar í VA, frá þriðjudegi til fimmtudags. Kennsla er hefðbundin á mánudegi og tveir tímar kenndir að morgni þriðjudags, eftir það hefjast opnu dagarnir. Metnaðarfull dagskrá er í smíðum og verður hún birt á næstunni. Nemendur hitta umsjónakennara sína kl. 10.30 á morgun þriðjudag til að fá nánari upplýsingar um fyrirkomulag daganna. Vikan endar síðan með árshátíð nemenda á föstudagskvöldið 26. febrúar. Auglýsingar koma síðar. Það er mikilvægt að nemendur setji sig vel inn í dagskrána og mæti með opnum huga í skólann. Rútuferðir breytast aðeins og verða þær auglýstar mánudaginn 22.febrúar.
Lesa meira...
Í kvöld heldur ME ball sem nefnist Barkinn.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að VA hefur enga aðkomu að þessu balli og stendur ekki fyrir ferð á ballið í nafni skólans.
Enginn starfsmaður frá skólanum fer með rútu sem nemendur hafa tekið á leigu í egin nafni.
Forráðamenn sem leyfa ungmennum sínum að fara taka ábyrgð á þeim sjálfir.
Lesa meira...Forráðamenn nemenda yngri en 18. ára þurfa að tilkynna veikindi inn fyrir kl. 11.00 daglega. Aðrir hringja einnig inn fyrir 11.00. Kennaraforföll eru skráð á skjáinn og á heimasíðunni er hægt að sjá veikindi kennara. Því miður ekki fyrir 08.00. Þeir sem eiga eftir að sækja rútukortin þurfa að gera það til ritara sem fyrst, þeir greiða 5000.-kr við afhendingu. Síðan verður hluti af jöfnunarstyrknum tekinn í ferðakostnað og greiddur beint til skólans. Umsóknarfrestur v jöfnunarstyrks er 15.febrúar.
Lesa meira...Þeir nemendur sem hófu nám nú á vorönn og eiga eftir að sækja um jöfnunarstyrk til lin.is, þurfa að gera það fyrir 15. febrúar. Upplýsingar um umsóknarferlið eru á lin.is. Þá eru nokkrir nemendur sem ekki hafa vitjað um rútukortin sín hjá ritara. Það þarf að greiða 5000.- kr. við afhendingu kortanna.
Lesa meira...![]() |
Um helgina héldum við leiklsitanámskeið. Á námskeiðinu leiðbeindi leikstjórinn Guðjón Sigvaldason krökkunum með textameðferð og tjáningu. Námskeiðið var haldið á heimavist skólans og voru um 20 krakkar sem mættu báða daganna. Námskeiði er liður í undirbúningi á uppfærsu Djúpsins sem er fyrir huguð nú á vorönn 2010.
