Heimildaskráning - Vefsíður og samfélagsmiðlar

Ef grein af netinu er ekki dagsett er sett skammstöfunin e.d. (engin dagsetning) í tilvísun og heimildaskrá. Við verkefnavinnu skal varast greinar á neti sem eru birtar án höfundar og dagsetningar. Ekki skal notast við vefsíðuna Wikipedia í heimildavinnu, því ekki er öruggt hver skrifar upplýsingarnar á þeirri síðu þar sem allir með nettengingu geta breytt innihaldi þess sem finnst á Wikipedia.

Vefsíður

Höfundar getið

Heimildaskráning: Nafn höfundar. (ártal, dagur. mánuður). Titill greinar eða undirsíðu. Vefsíða. Sótt dagsetning af www.xx

Tilvísun: (Höfundur, ártal)

Heimildaskráning: Emelía Dagný Sveinbjörnsdóttir. (2004, 31. mars). Hvenær var körfuboltinn fundinn upp? Vísindavefurinn. Sótt 23. apríl 2018 af http://visindavefur.is/svar.php?id=4115

Tilvísun: (Emelía Dagný Sveinbjörnsdóttir, 2004)

Ef höfundar er ekki getið fer nafn stofnunar í höfundarsæti, ef hvorki höfundur né stofnun er til staðar er titill settur í höfundarsæti

Stofnun í höfundarsæti

Heimildaskráning: Stofnun. (ártal, dagur. Mánuður). Vefsíða. Sótt dagsetning af www.xx

Tilvísun: (Stofnun, ártal)

Heimildaskráning: Mennta- og menningarmálaráðuneytið. (e.d.). Mennta- og menningarmálaráðuneytið. Sótt 31.8.2014 af http://www.menntamalaraduneyti.is/

Tilvísun: (Mennta- og menningarmálaráðuneytið, e.d.)  

Heimildaskráning: Titill. (ártal, dagur. Mánuður). Vefsíða. Sótt dagsetning af www.xx

Titill í höfundarsæti

Tilvísun: (Titill, ártal)

Heimildaskráning: Námsframboð á haustönn 2019. (2019, 11.mars). Verkmenntaskóli Austurlands. Sótt 22. mars 2109 af https://www.va.is/is/skolatorg/frettir/namsframbod-a-haustonn-2019

Tilvísun: (,,Námsframboð”, 2019)  

Blogg,  Facebook, Instragram, Twitter og aðrir samfélagsmiðlar

Til eru vefsíður sem einstaklingar halda úti og skrifa um málefni líðandi stundar. Þessar síður hafa í daglegu tali verið nefndar Blogg. Einnig færist í aukanna að fólk skrifi pistla á Facebook og aðra samfélagsmiðla. Ef skrifin eru löng er má stytta þau í titilsæti heimildarskráningar. 

Heimildaskráning: Nafn höfundar. (ártal, dagur. mánuður). Titill færslu [bloggfærsla eða ummæli/skrif á miðli]. Sótt dagsetning af www.xx

Tilvísun: (Höfundur, ártal)

Heimildaskráning: Jón Jónsson. (2018, 1. arpíl). Ég er orðinn hundleiður á aprílgöbbum... [Skrif á Facebook]. Sótt 3. apríl 2018 af www.xx

Tilvísun: (Jón Jónsson, 2018)