Vafrakökustefna

Skil­málar og per­sónu­vernd

Við notkun á þessari vefsíðu verða til upp­lýs­ingar um heim­sóknina. Verkmenntaskóli Austurlands (VA) notar þessar upp­lýs­ingar til að betr­um­bæta vefsíðuna og upp­lifun not­enda hennar. Við leggjum höfuðáherslu á varðveislu þessara gagna og afhendum þau ekki þriðja aðila nema um laga­lega skyldu sé að ræða.

Vafrakökur*

Vafra­kökum er safnað í þeim til­gangi að telja heim­sóknir sem og greina not­endaferðalag (e. Users journey) um vefsíðuna. Þessar upp­lýs­ingar eru greindar með því markmiði að bæta upp­lifun not­enda á vefsíðunni og auðvelda aðgengi not­enda að upp­lýs­ingum.

VA notar Google ana­lytics til að safna gögnum, þar koma fram upp­lýs­ingar um hverja heim­sókn, hversu lengi hún varði, hvert not­andi fór innan vefsíðunnar og hvar hann fór af léninu. Við leggjum höfuðáherslu á varðveislu þessara gagna og afhendum þau ekki þriðja aðila nema um laga­lega skyldu sé að ræða. Engar til­raunir eru eða verða gerðar til að komast yfir frekari upp­lýs­ingar um hverja komu eða tengja saman við aðrar per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar.

Fyrir þá notendur sem vilja ekki að notkun þeirra sé mæld á nokkurn hátt er skilvirkast að breyta „Do Not Track“ stillingum í viðkomandi vafra og sækja vafraviðbætur á borð við Privacy Badger, enda hafa slíkar breytingar áhrif á öll vefsvæði. Google býður einnig upp á vafraviðbót til að afþakka Google Analytics mælingar auk möguleikans að breyta skráningum notenda í auglýsinganeti sínu, þar á meðal að afþakka þær alveg.

SSL skilríki

Vefurinn notast við SSL-skilríki við gagnaflutning, þ.e. gögnin eru dulkóðuð og þar með öruggari.

Tenglar í aðra vefi

Á vef VA er stundum vísað á vefi annarra stofnana, félaga­sam­taka og fyr­ir­tækja. Reglur VA um öryggi not­enda gilda ekki á vefjum utan hans. VA ber ekki ábyrgð á efn­is­inni­haldi eða áreiðanleika slíkra vefja. Vís­unin þýðir heldur ekki að VA styðji eða aðhyllist nokkuð sem þar kemur fram.

Fyrirvari

Þótt leitast sé við að hafa upp­lýs­ingar á vef VA réttar og í sam­ræmi við nýj­ustu stöðu mála er ekki ávallt hægt að ábyrgjast að svo sé. Þetta á einnig við um til­vís­anir og tengla í efni utan vefsins.

 * „cookies“ - sérstök skrá sem komið er fyrir á tölvu notanda sem heimsækir viðkomandi vef og geymir upplýsingar um heimsóknina.