Helgarnám í húsasmíði

Umsókn um helgarnám

Verður í boði næst haust 2025

Ath að ekki verða teknir inn nýjir nemendur í verklegt á 1. önn fyrr en haust 2025 

Í Verkmenntaskóla Austurlands er boðið upp á helgarnám í húsasmíði fyrir 23 ára og eldri.

Helgarnámið er blanda af fjarnámi og staðnámi. Fagbóklegir hlutar námsins eru í fjarnámi og verklegir hlutar sem krefjast veru á smíðaverkstæði skólans eru kenndir í lotum um helgar. 

Á haustönnum er boðið upp á helgarnám á eftirfarandi önnum námsins:

Á vorönnum er boðið upp á helgarnám á eftirfarandi önnum námsins:

  • 2. önn, 4. önn, 5. önn - sjá nánar röðun áfanga á annir í brautarlýsingum

 

-----------------------------------------------------------------------------------

Ýmsir gagnlegir hlekkir:

Helgarlotur tímasetningar - vorönn 2024

Hér má sjá tímasetningu á lotum eftir hópum:

 

Próf - fyrirkomulag

Námsmatsdagar á vorönn hefjast (með fyrirvara um breytingar) 17. maí.

Próftafla sem sýnir tímasetningu lokaprófa verður birt á heimasíðu skólans þegar líður á vorönn. Í sumum áföngum í bóklegum fögum eru lokapróf og fara þau fram skv. próftöflu.

Ekki er heimilt að færa lokapróf til að öðru leyti en því að nemendur sem eru veikir þegar lokapróf fara fram geta skráð sig í sjúkrapróf. Slík skráning þarf að fara fram sama morgun og viðkomandi próf átti að fara fram og er gert með því að hafa samband við skrifstofu skólans.

Náms- og starfsráðgjöf

Í helgarnáminu, eins og öðru námi, er mikilvægt að stunda námið jafnt og þétt og hefjast handa strax í upphafi annar. Þetta er lykilatriði gagnvart árangri enda margir áfangar undir hjá flestum nemendum dreifnámsins.

Helgarnemar geta svo nýtt sér þjónustu námsráðgjafa VA eftir þörfum - sjá hér.

Gjaldskrá

Gjaldskrá VA

 

 

-----------------------------------------------------------------------------------

Frekari upplýsingar um helgarnámið veita:

  • Unnur Ása Atladóttir, áfangastjóri, unnurasa@va.is

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, skólameistari, eydis@va.is