Dagur íslenskrar náttúru 16. sept.

Dagur íslenskrar náttúru þann 16. september mun marka formlegt upphaf á þátttöku VA í alþjóðlega verkefninu Skólar á grænni grein.

Af þessu tilefni verður stutt dagskrá í félagsaðstöðu nemenda í austurendanum kl. 9:30. Þar mun skólameistari og nemendaráð kynna fyrstu skrefin í sorpflokkun og einnig munu nemendur úr LIA flytja ljóð.

Nemendur, kennarar og annað starfsfólk VA vinnur saman að þessu verkefni en hvatinn er kominn frá nemendum sjálfum.

Hvað er ,,Skólar á grænni grein“?

Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja menntun til sjálfbærni í skólum. Skólar ganga í gegnum sjö skref í átt að aukinni umhverfisvitund og sjálfbærni. Þegar því marki er náð fá skólarnir að flagga Grænfánanum til tveggja ára og fæst sú viðurkenning endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi.

Grænfáninn er umhverfisviðurkenning sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum.

Markmið verkefnisins eru að:

  • Bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku.
  • Efla samfélagskennd innan skólans.
  • Auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu og utan.
  • Styrkja lýðræðisleg vinnubrögð við stjórnun skólans þegar teknar eru ákvarðanir sem varða nemendur.
  • Veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál.
  • Efla alþjóðlega samkennd og tungumálakunnáttu.
  • Tengja skólann við samfélag sitt, fyrirtæki og almenning.