Frábær Tæknidagur

Tæknidagur fjölskyldunnar sem VA og Austurbrú héldu í fjórða sinn nú um helgina heppnaðist afar vel. Mikill fjöldi gesta heimsótti skólann og komu margir þeirra langt að. Um 1000 gestir skrifuðu nöfn sín í gestabók og er það mikil fjölgun frá síðasta Tæknidegi. Ljóst er að þessi frábæri dagur er búinn að stimpla sig rækilega inn hjá Austfirðinum og er kominn til að vera.

Þátttakendum fjölgaði einnig og er óhætt að segja að meira sé lagt upp úr þátttökunni með hverju árinu sem líður. Dagskráin var afar fjölbreytt og fundu allir eitthvað við sitt hæfi. Myndir og myndbönd frá deginum má sjá hér

Takk fyrir komuna öll sem eitt - sjáumst aftur að ári!