Framboðsfundur og skuggakosningar

Nemendur VA fylltu fyrirlestrarsal skólans sl. miðvikudag þegar fulltrúar flokkanna í Norðausturkjördæmi komu í heimsókn. Fulltrúarnir fluttu stutt ávarp þar sem þeir kynntu flokka sína og stefnumál. Nemendum gafst svo kostur á því að spyrja frambjóðendurna um ýmis málefni.

Á fimmtudeginum fóru svo fram skuggakosningar þar sem nemendur skólans kusu í tveimur kjördeildum. Annars vegar þeir sem ekki eru komnir með kosningarétt og hins vegar þeir sem geta kosið í næstu Alþingiskosningum.

Þátttaka í kosningunum var með besta móti og er það von kjörstjórnar og starfsmanna skólans að lýðræðisvikan hafi eflt lýðræðisvitund nemenda og almennan áhuga á stjórnmálum.