Jóga í VA

Fullkomin slökun í lokin á jóga tíma
Fullkomin slökun í lokin á jóga tíma
Nemendur VA fóru í jóga á dögunum til að slaka á og tæma hugann fyrir jólaprófin. Nemendur geta valið jógaáfanga á næstu vorönn. Jógaiðkun er góð fyrir líkama og huga, hún styrkir, liðkar og róar hugann. Einbeiting og bæði andlegt og líkamlegt jafnvægi eykst og nemendur læra að njóta þess að losna við áreiti og dvelja með sjálfum sér. 
 
Kennarahópurinn fékk svo einnig að reyna sig í jóganu og teygja á stirðum bökum og öxlum eftir annir síðustu daga!