Myndlistarnámskeið Menningarstofu Fjarðabyggðar í mars 2023

Menningarstofa Fjarðabyggðar mun halda kvöldnámskeið í myndlist í mars. Námskeiðin verða haldin í Neskaupstað, Eskifirði og Fáskrúðsfirði 7. – 30. mars og verða fjögur skipti á hverjum stað. Á námskeiðinu verður farið í gegnum litafræði, formfræði og myndbygginu. Kennt verður um áhrif lita, vægi forma og hlutfalla á fleti/rými, kynnst verður sjónrænum áhrifum þessa þátta og aðferðum við að nota þessa þekkingu meðvitað í útfærslum í átt að tilbúnu myndverki. Markmið er að þátttakendur munu öðlast leikni í að blanda og beita litum og formum til að ná fram mismunandi sjónrænum áhrifum til að byggja upp myndverk/mynd/málverk. Leiðbeinandi er Hreinn J. Stephensen og er hann menntaður myndlistarmaður. _______________________________________________________________

NESKAUPSTAÐUR - Þórsmörk: Þriðjudagar í mars, 7. 14. 21. og 28. mars kl. 19:30 - 21:30 ESKIFJÖRÐUR - Valhöll: Miðvikudagar í mars, 8. 15. 22 og 29. mars kl. 19:30 - 21:30 FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR - Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar: Fimmtudagar í mars, 9. 16. 23. og 30. mars kl. 19:30 - 21:30 Skráning: https://forms.gle/ypoRinZdNYFRbWid6 Verð: 8000 kr. Fjöldi þátttakenda á hverjum stað: 10 Aldur: 16 ára og eldri. Yngri en 16 ára er velkomið að taka þátt í fylgd með fullorðnum. Efni: Menningarstofa útvegar það efni sem notast verður við á námskeiðinu, en nemendur þurfa að mæta með hringfara, ritföng og reglustiku. Frekari upplýsingar veitir Hreinn J. Stephensen: hreinn.stephensen@fjardabyggd.is