Á opinni stúdentsbraut er lögð áhersla á gott almennt nám og þekkingu. Nemendur taka 105 eininga kjarna. Þeir velja síðan 95 einingar úr öllu námsframboði skólans. Þær einingar geta verið í bóklegum, verklegum og eða listgreinaáföngum.
Inntökuskilyrði má sjá hér.
Námsbrautin skiptist í kjarna og frjálst val. Kjarninn samanstendur af áföngum sem nemendur á öllum stúdentsbrautum taka. Gæta þarf að því að kröfum um fjölda eininga á hæfniþrepi sé fullnægt:
- Einingar á fyrsta hæfniþrepi eiga að vera 17 – 33%
- Einingar á öðru hæfniþrepi eiga að vera 33 – 50%
- Einingar á þriðja hæfniþrepi eiga að vera 17 – 33%
Bent er á að við skipulagningu náms á opinni stúdentsbraut er æskilegt að nemendur hafi samráð við náms- og starfsráðgjafa.
Nánari brautarlýsing
Kjarni