Smáskipanám - vélstjórn á vorönn 2024

Verkmenntaskóli Austurlands stefnir á að bjóða upp á námskeið í smáskipanámi - vélstjórn undir 15m á vorönn 2024 ef næg þátttaka fæst. 

Nám­skeiðið er ætlað þeim sem vilja öðlast atvinnu­skír­teini til að starfa sem vél­stjóri <750 kW á smá­skipum allt að 15 m lengd í strand­sigl­ingum (með að hámarki 12 farþegum og tak­mörkun á farsviði).

Nám­skeiðið er að mestu í fjar­námi samkvæmt nýrri námskrá en til að ljúka því þarf að mæta í verklegar lotur í VA og er skyldu­mæting er í lotur. Nemendur munu þurfa mæta í 2-3 helgarlotur sem verða auglýstar þegar fjöldi nemenda og skipulag lotna liggja fyrir.

Nám­skeiðið sam­svarar 15 ein­inga námi í fram­halds­skóla (um hálfri önn). Því má gera ráð fyrir að um 270-360 klst fari í námið sam­kvæmt viðmiði fyrir fram­halds­skóla­nem­endur. Þar af eru rúm­lega 20 klst (3 dagar) í verk­legri þjálfun og prófi í viðhaldi, umhirðu, bilana­leit, viðgerðum og keyrslu vél­búnaðar í skipum.

Inntökuskilyrði miðast við að nemendur hafi lokið grunnskólaprófi og séu a.m.k. 16. ára þegar þeir hefja nám. Ekki er þó hægt að sækja um skírteini hjá Samgöngustofu fyrr en 18 ára.

Frekari upplýsingar um námið má finna hér.

Hægt er að sækja um með því að smella hér.

Námskeiðsgjald: 260.000 kr. (Námskeiðsgjöld eru óafturkræf)

Verkmenntaskóli Austurlands áskilur sér rétt til þess að aflýsa námskeiðinu ef þátttaka er dræm.