ATFR2VÖ05

Lýsing

Í áfanganum er fjallað um starfsumhverfi og vinnuvernd starfsfólks í umönnunar-, uppeldis- og tómstundagreinum. Gerð ergrein fyrir uppbyggingu og þróun velferðarkerfisins og vinnumarkaðarins með áherslu á almannatryggingar oglífeyriskerfið. Fjallað er um grundvallaratriði sjálfbærrar þróunar, m.a. jöfnuð innan og milli kynslóða og virðingu fyrirumhverfinu, og hvernig sjálfbærnin tengist störfum á þessu sviði. Sérstök áhersla er lögð á forvarnastarf sem tengistvinnustöðum og vinnuaðstæðum þannig að aðstæður ógni ekki heilbrigði og öryggi starfsfólks. Í því sambandi er fjallað umfélagslegt og andlegt vinnuumhverfi og rétta líkamsbeitingu. Jafnframt er farið yfir viðbrögð við starfstengdu ofbeldi ogumgengni við ofbeldishneigða einstaklinga. Nemendur læra gerð áhættumats og notkun þess í vinnuverndarstarfi.

Einingar 5

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnatriðum sjálfbærrar þróunar.
  • uppbyggingu velferðarsamfélagsins.
  • grunnatriðum vinnumarkaðarins.
  • mikilvægi vinnuverndar.
  • réttri líkamsbeitingu.
  • starfstengdu ofbeldi.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • starfa í samræmi við markmið um sjálfbæra þróun.
  • stuðla að heilbrigðum og öruggum vinnustað.
  • koma auga á hættur í vinnuumhverfinu og bæta úr þeim.
  • gera áhættumat fyrir vinnustaði.
  • nota vinnustellingar sem best henta í mismunandi verk.
  • fást við árásargjarna notendur þjónustunnar.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og beita henni í störfum sínum sem metið er með skriflegu prófi ogdagbók.
  • skilja hlutverk íslenska velferðarsamfélagsins, þ.m.t. uppbyggingu vinnumarkaðarins, sem metið er með fyrirlestrumog skriflegu prófi.
  • stuðla að heilbrigði og öryggi á vinnustað, bæði hjá samstarfsfólki og notendum þjónustunnar, sem metið er meðáhættumati og ábyrgð.
  • átta sig á eigin styrkleikum og veikleikum í tengslum við heilbrigði og öryggi á vinnustað sem metið er meðsjálfsmati og rökstuðningi.
  • gera sér grein fyrir hvernig best er bregðast við ýgi og ofbeldi notenda þjónustunnar á skynsamlegan hátt semmetið er með verklegum æfingum.