Málstefna

Íslenska er fyrsta tungumál Verkmenntaskóla Austurlands (VA) sem starfar samkvæmt lögum nr. 92/2008 um framhaldsskóla. Kennsla, verkefni og samskipti fara fram á íslensku. Aðeins áfangar í erlendum tungumálum eru þar undanskyldir.

Íslenska er sjálfgefið tungumál, hvort sem er í ræðu eða riti, í öllu starfi VA í samræmi við lög nr. 61/2011 um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls.

Málstefna VA byggir á Íslenskri málstefnu 2021-2030.

Helstu áherslur málstefnu VA

- Kennarar og annað starfsfólk eru málfyrirmyndir og skulu ávallt vanda meðferð íslenskunnar í ræðu og riti.

- Kennarar skulu gera kröfur um að nemendur skili verkefnum á vönduðu máli. Allir kennarar eru íslenskukennarar.

- Allt efni sem frá skólanum kemur s.s. auglýsingar, kynningarefni, tölvupóstar o.þ.h. skal vanda sérstaklega.

- Kennarar skólans sem eiga annað tungumál en íslensku eru líka mikilvægar fyrirmyndir og sýna að eðlilegt er að íslenska sé töluð á mismunandi hátt. Íslenska með hreim er líka íslenska.

- Fundir og önnur stjórnsýsla skólans skal fara fram á íslensku svo sem fundarboð, fundargerðir, tilkynningar, fréttir og skýrslur.

- Námsefni skal vera á íslensku sé þess kostur og kennarar skulu nota íslensk fræðiorð í námsgreinum séu þau til og eigi þau við.

- Notendaviðmót hugbúnaðar sem starfsfólk og nemendur nota innan skólans skal vera á íslensku sé þess kostur.

- Nemendur skila öllum verkefnum á íslensku. Leitast skal við að koma til móts við nemendur með annað móðurmál en íslensku. Íslenskan víki þó aldrei fyrir öðrum tungumálum heldur sé alltaf fyrsta mál.

- Nemendur sem eru með annað móðurmál en íslensku eiga rétt á að fá kennslu í íslensku sem annað mál.

- Kennarar og annað starfsfólk fylgist með þróun gervigreindar og áhrifum hennar á íslensku og veiti leiðbeiningar um ábyrga notkun hennar.

Síðast uppfært 26.5.2025