Grunnnám rafiðna

Grunnnám rafiðna (GNR)

Grunndeild rafiðna er ætlað að veita nemendum góða og almenna þekkingu á rafmagnsfræði og rafeindatækni. Einnig er lögð áhersla á að þjálfa nemendur til starfa á sem flestum sviðum rafiðna. Auk kjarnagreina taka nemendur faggreinar s.s. raflagnir, rafmagnsfræði og rafeindatækni. Brautin er undirbúningur fyrir sérnám í rafiðngreinum, eins og rafvirkjun og rafeindavirkjun.

Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.

Nám á grunndeild rafiðna er 122 eining og skilar nemendum hæfni á 2. þrepi. Námstími er 2 ár og ætli nemandi að ljúka námi á þeim tíma þarf hann að ljúka 61 einingu að jafnaði á ári. Til að standast námsmat í áfanga og fá heimild til að hefja nám í eftirfarandi áfanga þarf lágmarkseinkunnina 5. Reglur um námsframvindu eru birtar í skólanámskrá.

Námsgrein           f-ein
Íslenska ÍSLE 2SG05       5
Enska ENSK 2LM05       5
Stærðfræði STÆR 2AF05 2HV05     5
Val í kjarnagrein           3
Hreyfing HREY 1AI01(A) 1AI01(B) 1LM01(A) 1LM01(B) 4
Lífsleikni LÍFS 1HN02 1SJ02 2LC01 3LD01 6
Raflagnir RALV 1RÖ03 1RT03 2TM03 2TF03 12
Rafmagsfræði RAMV 1HL05 2ÞS05 2RS05 3RM05 20
Rafeindatækni RTMV 2DT05 2DA05     10
Stýringar og rökrásir RÖKV 1RS03 2SK05 2LM03 3SF03 14
Örtölvutækni MEKV 1TN03 1ST03 2TK03 2ÖH03 12
Verktækni grunnnáms VGFV 1ML05 2RS03 2PR03 3TP03 14
Smáspennuvirki VSMV 1TN03 3NT03     6
Skyndihjálp SKYN 1GR01       1
        Alls f-ein  122

 

Skipulag eftir önnum

1. önn 2. önn 3. önn 4. önn
ÍSLE2SG05 RALV1RT03 ENSK2LM05 RTMV2DA05
HREY1AI01(A) RAMV2ÞS05 RTMV2DT05 RALV2TF03
LÍFS1HN02 MEKV1ST03 RALV2TM03 RAMV3RM05
STÆR2AF05 VGRV2RS03 RAMV2RS05 RÖKV3SF03
RALV1RÖ03 RÖKV2SK05 RÖKV2LM03 MEKV2ÖH03
RAMV1HL05 HREY1AI01(B) MEKV2TK03 VGRV3TP03
RÖKV1RS03 LÍFS1SJ02 VGRV2PR03 VSMV3NT03
MEKV1TN03 STÆR2HV05 VSMV1TN03 LÍFS3LD01
VGRV1ML05   LÍFS2LC01 HREY1LM01B
SKYN1GR01   HREY1LM01A  
33 27 32 27

 

 * Nemendur þurfa að staðsetja val í kjarnagreinum sjálfir