Skólahjúkrunarfræðingur

Jónína Salný Guðmundsdóttir er skólahjúkrunarfræðingur VA. Hún er með viðveru alla miðvikudaga frá kl. 12:30-14:30. Tímapantanir eru í netfanginu skolahjukrun@va.is.

Hún veitir ráðgjöf til nemenda og svarar spurningum um ýmis heilsufarsleg vandamál, t.d. varðandi:

  • meiðsli og sjúkdóma
  • áfengis- og vímuefnaneyslu
  • kynheilbrigði
  • tilfinningalega og geðræna erfiðleika
  • verki eða vanlíðan
  • mataræði og hreyfingu
  • sjálfsmynd og líkamsímynd

Hjúkrunarfræðingur er bundinn þagnarskyldu eftir því sem lög kveða á.