Vélstjórn B - ný braut

Vélstjórn B

Nám til vélstjórnar veitir, að uppfylltum skilyrðum um menntun, starfsþjálfun, siglingatíma, aldur og heilbrigði, atvinnuréttindi til starfa um borð í skipum. Námskrá þessi gerir einnig ráð fyrir því að nemendur öðlist viðeigandi menntun og þjálfun þannig að þeir geti sinnt vélstjórnarstörfum í landi, t.d. á sviði orku- og veitufyrirtækja og í iðnaði. Til þess að fá útgefið atvinnuskírteini skal viðkomandi jafnframt hafa lokið viðurkenndri verkstæðisþjálfun í landi eða um borð í skipi og tíminn skráður í þjálfunarbók, eða sveinsprófi í vélvirkjun.

Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.

Nám til B réttinda vélstjórnar skilar nemendum hæfni á 3. þrepi. Námstími er 3 ár í skóla. Til að standast námsmat í áfanga* og fá heimild til að hefja nám í eftirfarandi áfanga þarf lágmarkseinkunnina 5. Reglur um námsframvindu eru birtar í skólanámskrá.

*IMO – Séráfangar í skip-og vélstjórnarskólanum: Í ákveðnum áföngum í skip- og vél­stjórn eru sér­kröfur um loka­ein­kunnina 7. Sér­kröf­urnar eru skil­greindar sér­stak­lega í kennsluáætlunum. Í þessum áföngum er einnig heimilt að gera kröfu um lág­marks­ein­kunnina 7 í lyk­ilmatsþáttum sem vega a.m.k. 15% af loka­ein­kunn.

Sjá nánar á vefsíðu IMO – European Maritime Safety Agency


*Þessar sérkröfur taka gildi frá og með 19. ágúst 2025 og á ekki við um nemendur sem hófu nám fyrir þann tíma.

Nánari brautarlýsing

 

Námsgrein             f-ein
Íslenska ÍSLE 2BR05 2MB05       10
Enska ENSK 2LM05 2TM05       10
Stærðfræði STÆR 2BR05 2AF05 3VH05     15
Hreyfing HREY 1AI01(A) 1AI01(B) 1LM01(A) 1LM01(B)   4
Náms- og starfsfræðsla NÁSS 1NN03 3ÁM02       5
Efnafræði EFNA 2AE05         5
Eðlisfræði EÐLI 2BY05         5
Grunnteikning GRTE 1FF05         5
Heilbrigðisfræði HBFR 1SA03         3
Hlífðargassuða HLGS 2MT03         3
Hönnun skipa HÖSK 2SS05         5
Iðnteikning IÐTE 2VB04 3AC05       9
Jafnréttis- og kynjafræði JAFN 1JK03         3
Kælitækni KÆLI 2VK05         5
Lagnatækni LAGN 3RS04         4
Logsuða LOGS 1PS03         3
Rafsuða RAFS 1SE03         3
Rafmagnsfræði RAMV 1HL05 2MJ05 2SR05 3RF05   20
Reglunartækni REGL 2HR05         5
Rafeindatækni REIT 2AR05         5
Rökrásir RÖKR 3IS05         5
Sjóréttur SJÓR 2ÁS05         5
Skyndihjálp SKYN 1GR01         1
Smíðar SMÍÐ 1VA06 2VB06 3VB06     18
Stjórnun VIÐS 2PM05         5
Stýritækni málmiðna STÝR 1LV05         5
Stöðugleiki skipa STÖL 2SA04         4
Umhverfisfræði UMHV 2ÓS05         5
Vélvirkjun VÉLV 3VA04         4
Vélfræði VÉLF 1AE05 2VE05       10
Vélstjórn VÉLS 1GV05 2KB05 2TK05 3VK05 3SV05 25
Véltækni VÉLT 3ÁL04         4
Viðhalds- og öryggisfræði VÖRS 1VÖ04         4
          Alls f-einingar 231

 

Skipulag eftir önnum

Grunnnám málm- og véltæknigreina 3. önn 4. önn 5. önn 6. önn
1. önn 2. önn
ÍSLE2BR05 IÐTE2VB04 VÉLS2TK05 SMÍÐ3VB06 REIT2AR05 NÁSS3ÁM02
HREY1AI01(A) HLGS2MT03 VÉLF1AE05 VÉLF2VE05 LAGN3RS04 RAMV3RF05
NÁSS1NN03 SMÍÐ2VB06 HBFR1SA03 STÆR3VH05 VÉLS3VK05 VÉLS3SV05
STÆR2BR05 VÉLS2KB05 HÖSK2SS05 IÐNT3AC05 SJÓR2ÁS05 RÖKR3IS05
RAMV1HL05 HREY1AI01(B) STÆR2AF05 ENSK2TM05 EÐLI2BY05 VÉLT3ÁL04
GRTE1FF05 STÝR1LV05 HREY1LM01A HREY1LM01B RAMV2SR05 VÉLV3VA04
LOGS1PS03 ÍSLE2MB05 ENSK2LM05 UMHV2ÓS05 EFNA2AE05 REGL2HR05
RAFS1SE03 JAFN1JK03 KÆLI2VK05 STÖL2SA05   VÖRS1VÖ04
SMÍÐ1NH05 RAMV2MJ05       VIÐS2PM05
VÉLS1GV05          
           
40 37 34 37 34 39

 

Uppfært 17.11.2026