EFNA2AE05

Lýsing

Í þessum áfanga er fjallað um frumatriði almennar efnafræði. Til umfjöllunar er bygging atóma/frumeinda, lotukerfið,efnatengi, nafngiftareglur, efnahvörf, oxun/afoxun, ástand efna, lausnir, sýru/basar og orka í efnahvörfum.

Einingar 5

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • byggingu atóma
  • uppbyggingu lotukerfisins
  • rafeindaskipan á hvolf
  • áttureglu frumefna
  • efnatengjum
  • helstu nafngiftareglum ólífrænna efnasambanda
  • mólhugtakinu
  • oxun og afoxun
  • ástandsformi efna
  • mismunandi lausnum og leysni efna
  • sýrum og bösum
  • pH-hugtakinu
  • orku í efnahvörfum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota lotukerfið
  • rita rafeindaskipan frumefna
  • rita rétt nöfn ólífrænna efnasambanda
  • stilla einfaldar efnajöfnur
  • nota mólhugtakið við einfalda útreikninga
  • ákvarða oxunartölur og nota þær til þess að stilla efnajöfnur
  • meta hvort efni oxist eða afoxist í efnahvörfum
  • reikna mólstyrk efna
  • þekkja einföld sýru- og basahvörf

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • notfæra sér lotukerfið og nauðsynlegar hjálpartöflur
  • lesa úr efnatáknum og efnajöfnum
  • sýna sjálfstæð og öguð vinnubrögð í upplýsingaöflun, mati, úrvinnslu og framsetningu
  • auka skilning sinn á notagildi efnfræðinnar og tengja hana við daglegt líf