FÉLA1AL05

Lýsing

Í áfanganum er fjallað um gagnvirk áhrif einstaklings og samfélags. Nemendur kynnast því hvernig félagsfræðin skoðar samband einstaklings og samfélags með hugtökunum menning, samfélag, félagsmótun, fjölskylda og stjórnmál. Námið í áfanganum felst í því að nemandinn tileinkar sér helstu hugtök félagfræðinnar svo sem gildi, viðmið, félagslegt taumhald,h nattvæðing, fjölmenning, hlutverk, staða, sjálfsmynd og notar þau til að greina umhverfi sitt nær og fjær. Fjallað er umþróun íslensks samfélags og megineinkennum þess lýst. Sérstök áhersla er lögð á að fjalla um félagsmótun einstaklingsins almennt, málefni fjölskyldunnar, kynhlutverk og mikilvægi stjórnmála í síbreytilegum heimi. Þá er fjallað aðhluta um félagsfræðina sem fræðigrein og námsgrein og helstu frumkvöðlar hennar eru kynntir.

Einingar 5

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnhugtökum félagsfræðinnar
  • tengslum gilda og viðmiða og með hvaða hætti þau tengjast almennu siðferði
  • ólíkum félagsmótunaraðilum sem hafa áhrif á mótun einstaklings og umhverfis
  • mismunandi fjölskyldugerðum og hjúskaparháttum
  • uppbyggingu íslensks stjórnkerfis m.t.t. þrískiptingu ríkisvalds, þingræðis og lýðræðis
  • mismunandi hugmyndafræði stjórnmála
  • þróun félagsfræðinnar og helstu frumkvöðlum hennar
  • gagnsemi félagsfræðilegrar umræðu um samfélagsleg málefni líðandi stundar

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • grunnhugtökum félagsfræðinnar
  • tengslum gilda og viðmiða og með hvaða hætti þau tengjast almennu siðferði
  • ólíkum félagsmótunaraðilum sem hafa áhrif á mótun einstaklings og umhverfis
  • mismunandi fjölskyldugerðum og hjúskaparháttum
  • uppbyggingu íslensks stjórnkerfis m.t.t. þrískiptingu ríkisvalds, þingræðis og lýðræðis
  • mismunandi hugmyndafræði stjórnmála
  • þróun félagsfræðinnar og helstu frumkvöðlum hennar
  • gagnsemi félagsfræðilegrar umræðu um samfélagsleg málefni líðandi stundar

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • leggja mat á upplýsingar um menningar- og samfélagstengd málefni líðandi stundar
  • leggja mat á fordóma gagnvart tilteknum menningar- og þjóðfélagshópum og greina mögulegar ástæður þessarafordóma
  • tengja félagsfræðileg hugtök við daglegt líf og sjá notagildi þeira
  • leggja mat á eigin félagsmótun og efla eigin sjálfsmynd
  • tileinka sér viðhorf sem einkennast af almennum jafnréttissjónarmiðum og taka þátt í lýðræðislegri samræðu ogsamstarfi
  • viða að sér efni og skrifa heimildaritgerð um afmarkað viðfangsefni
  • taka þátt í rökræðum um samfélagsleg málefni
  • takast á við frekara nám í félagsfræði og öðrum samfélagsgreinum