Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu tegundum skerðinga og einkennum þeirra.
- helstu skilgreiningum á hugtakinu þroskahömlun og þeim þáttum sem vekja grun um þroskaröskun af einhverju tagi.
- hvert skuli leita ef grunur vaknar um þroskafrávik hjá barni.
- helstu atriðum þess að nálgast stuðning eða sérþekkingu vegna ýmissa frávika.
- helstu þjálfunar- og meðferðarþörfum fatlaðs fólks.
- þeim áhrifum sem fötlun hefur á einstaklinginn og fjölskyldu hans
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- greina skerðingar, helstu orsakir þeirra og einkenni.
- ræða um hvað felst í hugtökunum fötlun og þroskahömlun.
- taka þátt í þeim þjálfunar- og meðferðarúrræðum sem beitt er.
- finna upplýsingar um fatlanir og hagsmunafélög þeim tengdum.
- miðla upplýsingum um sérúrræði fyrir börn með námserfiðleika.
- sjá hvaða áhrif fötlun getur haft á einstaklinginn og fjölskyldu hans.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- styrkja hæfni sína til að bera kennsl á mismunandi fötlun, helstu orsakir hennar og einkenni og geta miðlað þeim upplýsingum í mæltu og rituðu máli. Metið með verkefnum og, umræðum.
- leysa af hendi verkefni um hinar ýmsu skilgreiningar hugtaksins þroskahömlun sem metið er með verkefni og könnunum.
- setja upp einstaklingsmiðaða þjálfunaráætlun í teymi vegna ýmissa frávika með rökstuðningi, munnlegum eða skriflegum. Metið með verkefnum.
- taka þátt í umræðum og miðla fróðleik um fatlanir og sérúræði fyrir börn með námserfiðleika sem metið er með umræðum og fyrirlestrum sem nemendur halda.
- nota upplýsingatækni til að auka skilning sinn á því hvaða áhrif fötlun getur haft á einstaklinginn og fjölskyldu hans sem metið er með umræðum og verkefnum