Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Eigin getu og getu annarra til að takast á við flókin úrlausnarefni í félagsfærni.
- Siðferði sem ein af grunnstoðunum í að útskýra samskipti fólks.
- Reiðistjórnun sem aðferð til að ná betri tökum á eigin lífi og hvernig hægt er að leiðbeina öðrum í þeim efnum.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Takast á við einföld og flókin félagsfærniatriði og séð samhengið á milli þeirra.
- Meta árangur fólks í daglegu lífi út frá siðferðislegri ákvarðanatöku.
- Meta árangur fólks í daglegu lífi út frá getu einstaklinga til að takast á við tilfinningar sínar.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Hæfni í að meta framfarir í eigin hegðun og geta nefnt dæmi þar um.
- Geta metið eigin framfarir í að meta muninn á réttu og röngu og hvort það hafi skilað sér í betri samskipum við aðraog nefnt dæmi þar um.
- Geta metið eigin framfarir í reiðistjórnun og geta nefnt dæmi þar um.