FÉLF1FF02

Lýsing

Gert ráð fyrir því að nemendur kynnist grunnþáttum og öðlist færni í að takast á við og ræða einfaldari gerðir félagsfærni,siðferðismats og sjálfsstjórnar. Unnið er að bæta færni nemanda í mannlegum samskiptum, kenna nemendum að takast ávið tilfinningar sínar (aðallega reiðina) og takast á við siðferðisklípur sem upp gætu komið í raunveruleikanum. Þjálfuninmiðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfstjórn barna og unglinga og þjálfa þau í að ræða um tilfinningar og átta sigá þörfum sínum.

Einingar 2

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Grunnþáttum félagsfærni
  • Hugtakinu siðferði
  • Reiði sem tilfinningu og einfaldar leiðir til að takast á við hana

 

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Takast á við einfaldari félagsfærniatriði
  • Greina einföld siðferðisleg álitamál
  • Takast á við að greina og kannast við einfaldari reiðistjórnunaratriði

 

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Ræða um mikilvægi jákvæðra samskipta í daglegu lífi fólks
  • Geta rætt við aðra um siðferði sem hugtak
  • Geta rætt og metið einfaldar leiðir til að takast á við reiði sem tilfinningu