Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Muninum á einfaldri og flókinni félagsfærni. Sérstaklega unnið með að nemendur geti sett sig í spor annarra.
- Mikilvægi siðferðis í daglegu lífi.
- Hvað reiðistjórnun er og hvaða aðferðir eru til taks til að takast á við þessa tilfinningu og hún borin saman við líkar og ólíkar tilfinningar.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Takast á við flóknari félagsfærniatriði.
- Meta eigin siðferðisbresti og styrkleika.
- Takast á við flóknari reiðistjórnunaratriði og þau sett í samhengi við stjórn annarra tilfinninga.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Horfa gagnrýnum augum á eigin hegðun og geta rætt það við aðra.
- Geta rætt við aðra um siðferðisleg álitamál
- Geta rætt og metið eigin getu til þess að takast á við reiði og aðrar tilfinningar.