Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Muninum á einfaldri og flókinni félagsfærni. Sérstaklega unnið með að nemendur geti sett sig í spor annarra.
- Mikilvægi siðferðis í daglegu lífi og hvað einkennir þá einstaklinga sem eru siðblindir.
- Hvað reiðistjórnun er og hvaða aðferðir eru til taks til að takast á við þessa tilfinningu.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Takast á við flóknari félagsfærniatriði sbr. hlutverkaspennu.
- Meta siðferðisbresti og styrkleika annarra
- Takast á við flóknari reiðistjórnunaratriði
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Horfa gagnrýnum augum á eigin hegðun og geta rætt það við aðra.
- Geta rætt við aðra um siðferðisleg álitamál
- Geta rætt og metið eigin getu til þess að takast á við reiði og aðrar tilfinningar.