Lýsing
Í þessum áfanga verður fjallað um einstaklinginn, fjölskylduna og samfélagið. Eitt af markmiðunum er að nemandi öðlist sjálfsskilning og vinni með sitt eigið sjálf. Lögð verður áhersla á sjálfsskoðun þar sem unnið verður með styrkleika nemandans, sjálfsmynd, tilfinningar, gildismat, lífsstíl og framtíðarsýn. Unnið verður markvisst að því að styrkja stöðu nemandans í skólanum með því þjálfa tjáningarhæfni, kenna honum að setja sér markmið og að nýta sérnámstækniaðferðir. Farið verður yfir fjármálalæsi og stöðu fólks á vinnumarkaði. Fjallað verður um fjölskylduna, ólíkar fjölskyldugerðir, hlutverk fjölskyldna í samfélaginu og hlutverk og skyldur samfélagsins, sveitarfélaga og ríkis við fjölskyldur. Fjallað verður um mikilvægi þess að vera borgari með réttindi, ábyrgð og skyldur gagnvart sjálfum sér og samfélaginu.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- gildi sjálfsþekkingar.
- sjálfum sér og styrkleikum sínum. • mismunandi hugmyndum um lífsgildi
- mikilvægi þess að temja sér öguð og vönduð vinnubrögð í skólanum.
- að tjá skoðanir og eiga gjöful samskipti við annað fólk.
- fjármálalæsi og stöðu fólks á vinnumarkaðinum.
- almennri þjónustu samfélagsins við einstaklinga og fjölskyldur.
- ólíkum fjölskyldugerðum og fjölskylduaðstæðum.
- helstu lögum og reglum sem lúta að réttindum einstaklinga og fjölskyldna.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna með eigin styrkleika.
- setja sér námsmarkmið.
- nota ákveðnar námstækniaðferðir.
- vinna með eigin fjármál.
- nýta sér þekkingu sína á sjálfum sér og grenndarsamfélaginu við að setja sér markmið til að auka öryggi sitt,skilning og þátttöku.
- skilja mismunandi hlutverk einstaklinga innan fjölskyldunnar.
- beita þekkingu sinni á samfélaginu við lausn ýmissa verkefna.
- finna viðeigandi upplýsingar sem hann getur nýtt sér til framdráttar fyrir sjálfan sig og aðra.
- tjá sig og vinna með aðferðum nútímatækni í upplýsingamiðlun.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- greina eigin getu og beita styrkleikum sínum til að verða hæfari við að lesa í aðra og geta veitt góða þjónustU hverju sinni.
- bæta námsgetu sína með því nýta sér viðeigandi námstækniaðferðir.
- halda utan um og skipuleggja sín eigin fjármál og annarra.
- skilja stöðu einstaklinga í því samfélagi sem þeir búa í.
- nýta upplýsingaöflun við að auka þekkingu sína á almennri þjónustu samfélagsins við einstaklinga og fjölskyldur sem metið er með skriflegum verkefnum.
- vinna úr upplýsingaöflun til lausnar eigin viðfangsefna og annarra sem metið er með leiðarbók sem sýnir þátttöku og framfarir.
- mæta ólíkum fjölskyldugerðum.
- leita raunhæfra leiða við lausn á lífsverkefnum fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem metið er með einstaklings- og hópverkefnum.
- skilgreina lausnarefni og leita upplýsinga um þjónustu eða lagaleg réttindi til hagsbóta fyrir sjálfan sig eða aðra sem metið er með dagbókarfærslum.
- vinna með og miðla þekkingu sinni á lýðræði og hlutverki helstu stofnana samfélagsins sem metið er með einstaklings- og hópverkefnum.