GRTE1FF05

Lýsing

Í áfanganum kynnast nemendur helstu áhöldum og efnum sem notuð eru við teikningu og þrívíddarhönnun. Nemendurlæra hornrétta fallmyndun með því að sýna hlut frá minnst þremur sjónarhornum: framan frá (F) frá hlið (H) og ofan frá (O)Nemendur fá æfingu í fríhendisteikningu með því að rissa upp myndir og málsetja þær. Samhliða þessu læra nemendur ámælikvarða og málsetningu og sýna stærðarhlutföll teikninga og raunstærð þeirra hluta sem teikningarnar sýna.

Einingar 5

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu áhöldum sem notuð eru við teikningu, hafi vald á málsetningu og geti sýnt raunstærð þeirra hluta semteikningarnar sýna.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota teikniáhöld til að teikna hornréttar fallmyndir.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • teikna bæði tví- og þrívíðar myndir til að tjá sig