HBFR1TA02

Lýsing

Í áfanganum er tómstundaframboð í nærsamfélaginu kannað og mikilvægi tómstundaiðju í daglegu lífi. Farið verður yfir hvaða getu þarf til að sinna tómstundum og skoðað hvaða tómstundir henta hverjum með tilliti til áhuga, aldur oglíkamlegrar færni.

Einingar 2

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • tómstundum og afþreyingu í daglegu lífi
  • mikilvægi þess að vera virkur og taka þátt
  • því hvaða líkamlegu og andlegu færni þarf til að stunda tómstundir
  • meta eigin færni í samræmi við kröfur

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • stunda tómstundir við hæfi

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • afla sér upplýsingar um tómstundir sem eru í boði í nærsamfélaginu
  • þekkja hvaða tómstundir eru við hæfi fyrir aldur sinn og líkamlega færni