Lýsing
Áfanginn er verklegur. Markmið áfangans er að nemandi kynnist og þjálfist í helstu vinnureglum við að matbúa einfaldan heimilismat, leggja á borð og ganga frá. Farið er yfir grunnreglur um vinnuaðferðir, hollustuhætti og hreinlæti, vélar og tæki, borðsiði og umgengni, skipulag og samvinnu. Snyrtimennska og kurteisi er í hávegum höfð. Nemandi lærir að setja upp matseðil. Í lok áfangans er haldin veisla (kvöldverður) fyrir foreldra og gildir hún að hluta til inn í lokaeinkunn.
Einingar 2
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu matreiðslu- og framreiðsluaðferðum
- mikilvægi hreinlætis í eldhúsi
- helstu áhöldum og tækjum í eldhúsi og á bar
- hráefni, næringargildi og hollustu
- uppsetningu matseðla og matseðlafræði
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nota almenna borðsiði og sýna kurteisi
- fylgja uppskriftum og leiðbeiningum
- nota viðeigandi áhöld, vélar og tæki í eldhúsinu
- brjóta servíettur, leggja á og dúka borð
- reikna út magn, næringargildi, kostnað og rýrnun
- útbúa einfaldar máltíðir
- sýna samvinnu og skipta verkum í eldhúsi
- reikna út kostnað við máltíð
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skipuleggja máltíðir og litlar veislur...sem er metið með...skriflegum verkefnum, útreikningum og verklegum æfingum
- setja saman holla og næringarríka máltíð...sem er metið með...t.d. skriflegu matseðlaverkefni út frá næringargildi oghollustu
- áætla kostnað við máltíð eða litla veislu...sem er metið með...að t.d. bera saman kostnað og næringargildi millimismunandi máltíða