Lýsing
Heilbrigður lífsstíll og áhrif lifnaðarhátta á heilsufar svo sem mataræði, hreinlæti, hreyfing, geðrækt, svefnvenjur, skynsemií fjármálum, kynheilbrigði og tölvunotkun. Fræðsla og forvarnir tengdar sjúkdómum og slysum og áhættuhegðun. Verkefnitengd ábyrgðri hegðun á fullorðinsárunum svo sem foreldrahlutverkinu og fjármálafærni. Nemendur skoða lífssýn sína oggildi. Verkefni miða að því að nemendur búi sig undir að taka ábyrgð á eigin lífi og verða meðvitaðir um ábyrgð sína sem samfélagsmeðlimir.
Einingar 3
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Hvað heilbrigður lífsstíll er og áhrif lifnaðarhátta á heilsufar. Þættir sem m.a. er farið í eru mataræði, hreyfing,geðrækt, hreinlæti, svefnvenjur, skynsemi í fjármálum, kynheilbrigði og tölvunotkun.
- Fræðslu og forvörnum tengdum sjúkdómum, slysum og áhættuhegðun.
- Skyldu og ábyrgð sem fylgi fullorðinsárunum svo sem foreldrahlutverkinu og fjármálafærni.
- Eigin lífssýn og gildi og áhrif hegðunar sinnar og lífsstíls á líðan og heilbrigði.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Í að taka ábyrgð á eigin lífi og efla ábyrgð sína sem samfélagsmeðlimur.
- Meta umhverfi sitt og sína eigin hegðun út frá heilsueflandi sjónarmiðum og áhrifum á líf, líðan og heilsu sína.
- Meta umhverfi og aðstæður út frá forvarnarsjónarmiðum tengdum slysum og sjúkdómum.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Horfa gagnrýnum augum á eigin hegðun og lífsstíl og tileinka sér heilbrigða lifnaðarhætti.
- Fara inn í fullorðinsárin meðvitaður um þá ábyrgð sem því fylgir.
- Geta greint áhættuþætti í umhverfi sínu sem geta valdið skaða svo sem slysahættu og afleiðingar afáhættuhegðun.