Lýsing
Áfanginn er verklegur og nemendur taka hann samhliða Lífsstíl A. Lögð er áhersla á að nemendur fái fjölbreytta hreyfingu sem styrkir hjarta- og æðakerfið, byggir upp vöðva og eykur liðleika. Leitast er við að hver og einn geti tekið þátt á sínum forsendum en að allir séu virkir.
Einingar 1
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- forsendum og áhrifum þjálfunar á líkama, heilsu og líðan
- mismunandi aðferðum til heilsuræktar
- mikilvægi upphitunar, liðleika- og styrktarþjálfunar
- þoli, uppbyggingu þess og mismunandi þolþjálfun
- slökun
- fjölbreyttum möguleikum til hreyfingar
- grunnreglum ýmissa íþróttagreina
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- stunda líkams- og heilsurækt
- stunda almenna og sérhæfða upphitun
- stunda markvissa og fjölbreytta styrktar-, liðleika- og þolþjálfun
- tileinka sér slökun
- iðka æfingar og hreyfingu sem stuðla að bættri líkamsbeitingu
- beita samvinnu sem stuðlar að tillitsemi og hvatningu
- klæða sig til íþróttaiðkunar eftir aðstæðum, úti sem inni
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- meta eigið þol, styrk og liðleika
- skipuleggja eigin þjálfun
- leysa af hendi æfingar og leiki sem viðhalda og bæta samskipti, líkamshreysti og heilbrigðum lífsstíl
- glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsurækt