ÍSLE1LL02

Lýsing

Lögð er áhersla á þjálfun í að auka leshraða og bæta lesskilning. Nemendur velja texta og kryfja þá. Einnig fá nemendur tækifæri til að velja texta á íslensku við hæfi og í samræmi við áhuga sinn til að vinna verkefni sem leiða til aukinnar þekkingar.

Einingar 2

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • að greina á milli þeirra tjáskiptaleiða sem henta honum
  • hinum ýmsu lestrararaðferðum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • tjá sig í ræðu og riti
  • lesa texta og sögur sér til gagns

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta sér mælt og ritað mál í daglegu lífi
  • efla lestrarfærni sína og geti lesið ýmiskonar texta sér til gagns, ánægju og yndisauka