ÍSLE1MF01

Lýsing

Í áfanganum er unnið með málfræði, grundvallar málfræðihugtök rifjuð upp auk algengustu hugtaka setningarfræðinnar. Unnið er með fjölbreytt málfræðiverkefni til að auka máltilfinningu nemandans. Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér jákvætt viðhorf til móðurmálsins og eigin málnotkunar.

Einingar 1

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Grunnatriðum íslenskrar málfræði
  • Flokkun fallorða, sagnorða og smáorða.
  • Einföldum textum.
  • Hjálpatækjum sem hægt er að nota við ritun eða greiningu á íslensku máli

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • flokka og greina nokkra þætti íslenskrar málfræði
  • beita hugtökum málfræðinnar við greiningu á einföldum textum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • vinna með og rita einfaldan texta án aðstoðar
  • skrifa einfaldan texta á góðu máli.
  • nota íslenskuna sér til gagns og gamans