ÍSLE1SA03

Lýsing

Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með alla þætti íslenskunnar þar sem sköpun er höfð að leiðarljósi í þeim tilgangi að brjóta upp hefðbundið mynstur í íslenskukennslu með áherslu á uppgötvun, gagnrýna hugsun, umræður og ígrundun ásamt hefðbundnum kennsluaðferðum. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir, sjálfshjálparbækur og unnið með hugtök, málfræði, íslenska tónlist, lesskilning og fjölbreytt verkefni.

Einingar 3

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hugtakinu sköpun í víðu samhengi
  • Að sköpun er ferli sem byggist á ímyndunaraflinu
  • Að vinnuferlið er ekki síður mikilvægt en afraksturinn
  • Að hægt er að leita leiða á fjölbreyttan hátt
  • Að það eru ekki alltaf allir sammála og það er allt í lagi
  • Að sjónarhorn allra er jafnt mikilvægt

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Leita mismunandi leiða í vinnuferlinu
  • Að hægt er að nálgast viðfangsefni á mismunandi hátt
  • Að beita mismunandi aðferðum til að túlka
  • Að gagnrýna á uppbyggilegan hátt
  • Að koma skoðunum sínum á framfæri

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Nýta sér fjölbreytta nálgun í daglegu lífi
  • Leita nýrra leiða og mynda sér sjálfstæðar skoðanir
  • Hlustað á sjónarmið annarra af víðsýni
  • Lesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar
  • Leggja mat á árangur sinn og möguleika sína
  • Tjá eigin skoðanir