ÍSLE1SW02

Lýsing

Stafsetningaráfangi þar sem einnig er lögð áherslu á tjáningu í rituðu máli. Nemendur verða æfðir í notkun hjálpargagna. Nemendur æfist í ritun skapandi verka. Einnig munu þeir æfast í að lesa yfir eigin verk, gagnrýna og taka gagnrýni.

Einingar 2

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • einkennum íslensks máls sem nýtast við ritun
  • helstu stafsetningareglum.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • taka við gagnrýni á eigin verk og vinna úr henni
  • nýta handbækur og aðrar bjargir við ritun
  • stafsetja á íslensku.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita málinu á viðeigandi og árangursríkan hátt við mismunandi aðstæður
  • nýta ritbjargir á árangursríkan hátt
  • geta skrifað texta sem er að mestu villulaus.