Lýsing
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með alla þætti íslenskunnar þar sem tjáning verður höfð að leiðarljósi. Áhersla er á að efla þekkingu, leikni og hæfni nemenda í notkun tjáskiptaleiða sem henta hverjum og einum. Megin áhersla verður á að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemendur búa nú þegar að. Farið verður í fjölbreytt viðfangsefni, s.s. umræður í litlum og/eða stórum hópum, framsagnarverkefni, hugtakaverkefni og fjölbreytt verkefni sem stuðla að því að styrkja sjálfstraust nemenda. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir, sjálfshjálparbækur, íslenska tónlist og fjölbreytt verkefni.
Einingar 3
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Samskiptaleið sem hentar viðkomandi
- Skoðunarfrelsi og/eða tjáningarfrelsi
- Mikilvægi þess að láta skoðanir sínar í ljós og hlusta á sjónarmið annarra
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Tjá sig fyrir framan nemendahópinn
- Virða skoðanir annarra
- Taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir
- Leggja mat á eigin verkefni og/eða frammistöðu
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Vera meðvitaður um styrkleika sína
- Að spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
- Bera virðingu fyrir skoðunum annarra
- Kynna sjálfan sig með fullu nafni og svarað spurningum um fyrirfram ákveðið viðfangsefni
- Bíða eftir að röðin komi að sér