Lýsing
Í áfanganum fá nemendur yfirlit yfir sögu og þróun íslenskra barna- og unglingabóka. Auk þess kynnast ýmsum flokkum barnabóka, svo sem þjóðsögum og ævintýrum, myndabókum, bókum fyrir stálpuð börn, myndasögum og unglingabókum. Í áfanganum eru því lesnar margar barnabækur, íslenskar og þýddar, af ýmsum gerðum auk fræðigreina um efnið. Einnig er barnaefni skoðað í tengslum við bókmenntirnar. Markmiðið er að nemendur geri sér grein fyrir gildi barnabóka og þeim möguleikum sem markvisst starf með þær býður upp á. Í tengslum við efni áfangans fá nemendur þjálfun í notkun spjaldtölva í starfi með börnum.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þróunarsögu íslenskra barna- og unglingabóka.
- helstu flokkum barnabóka og einkennum þeirra.
- fræðilegri umræðu um um barna- og unglingabókmenntir.
- aðferðum við markvissa notkun barnabóka og menningarefnis í starfi með börnum.
- möguleikum við notkun spjaldtölva í starfi með börnum.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- flokka barna- og unglingabókmenntir.
- skoða barna- og unglingabækur í sögulegu samhengi.
- greina og túlka texta og myndir barna- og unglingabókmennta.
- lesa fræðilegt efni um barnabækur
- vinna með heimildir.
- vinna ýmis verkefni, munnleg og skrifleg um efni áfangans.
- nota spjaldtölvu í námi og starfi.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- velja gott lesefni handa börnum og unglingum og rökstyðja val sitt.
- geti greint, túlkað og metið barnabækur.
- skila skriflegum og munnlegum verkefnum sem uppfylli kröfur um vinnubrögð og heimildir.
- vinna á skapandi hátt með bókmenntir í starfi með börnum.
- nota spjaldtölvur í starfi með börnum.