Lýsing
Grunnþættir áfangans eru lestur, tjáning og ritun. Til að ná þeim lesa nemendur fjölbreytta texta frá ólíkum tímum. Nemendur æfast í munnlegri og skriflegri tjáningu og réttri notkun heimilda.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mismunandi tegundum texta og helstu hugtökum í bókmenntaumfjöllun
- fjölbreyttum orðaforða
- málfræði-, ritunarhugtökum og ritreglum sem nýtast í tal- og ritmáli
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa bókmenntatexta og aðra texta og geta fjallað um inntak þeirra
- nýta upplýsingar úr heimildum á réttan hátt
- flytja af öryggi ræður og kynningar
- beita gagnrýninni hugsun við ritun rökfærsluritgerða og annarra texta
- nota hjálpargögn við frágang ritsmíða
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- túlka ólíka texta
- nota handbækur til styrktar eigin málfærni
- taka þátt í málefnalegum umræðum og komast að rökstuddri niðurstöðu
- beita tilbrigðum í ræðu og riti
- vinna að skapandi verkefnum tengdum námsefninu