Lýsing
Í þessum áfanga er viðfangsefnið bókmenntasaga og bókmenntir 20. og 21. aldar með áherslu á ný verk og samhengi viðstrauma og stefnur tímabilsins. Nemendur kynnast helstu höfundum og verkum og haldið er áfram að þjálfa nemendur í ritun. Lesnir eru lengri og styttri textar þar sem nemendur hugi að jafnrétti og lýðræði og efli um leið læsi á umhverfi sitt.
Einingar 5
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ritun og heimildanotkun
- orðaforða til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
- stefnum í bókmenntum
- helstu bókmenntahugtökum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita gagnrýninni hugsun við ritgerðaskrif og koma efninu til skila á skýru og blæbrigðaríku máli
- ganga frá texta og nýta sér uppbyggilega gagnrýni
- nýta sköpunargáfu við úrvinnslu verkefna
- skilja og nota viðeigandi stílbrögð og orðatiltæki í ræðu og riti
- flytja vel uppbyggða kynningu á krefjandi efni
- lesa sér til gagns og gamans bókmenntir 20. og 21. aldar
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- rita margvíslega texta
- leggja mat á og efla eigin málfærni
- tjá rökstudda afstöðu, komast að ígrundaðri niðurstöðu og taka þátt í málefnalegum umræðum
- lesa, túlka og vinna úr krefjandi textum